Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 39
Flýtur á spennunni
Jerzy Kosinski hefur löngum
verið umdeildur. Ýmist hafa
menn haldið því fram að hann hafi
stoliö lunganum úr bókum sínum
eöa þá að þær séu ómerkilegar af-
þreyingarbókmenntir sem seljist
út af spennunni. En þessi pólsk-
ameríski rithöfundur „flýtur á
spennunni” í fleiri en einum skiln-
ingi. Nýlega brá hann sér til
Thailands og lærði þar af sérfróð-
um austurlenskum spekingi
hvernig unnt er að fljóta með því
einu að halda niðri í sér andanum
og sperra bringuna. Jerzy
Kosinski, sem nú er liðlega
fimmtugur, telur að þessar æfing-
ar séu æskubrunnur þreyttum rit-
höfundum og öðrum sem komnir
eru af léttasta skeiði. „Það hverf-
ur öll gigt og bakverkir,” segir
skáldið. Við komumst yfir þessa
mynd af Jerzy Kosinski og vinum
hans úr tískuheiminum þar sem
skáldið er aö leiöbeina
módelunum í því aö halda sér á
floti í sundlaug sinni í Los
Angeles. Ekki verður annað sagt
en það gangi misjafnlega en þetta
er líklega fyrsti tíminn og ekki
skortir einbeitinguna.
AIWA' AIWA AIWA
Glæsilegt úrval af ferðaútvarpstækjum með kassettum.
Verð frá kr. 6.980,-
Ráð gegn
kvefl
Lærlingur nokkur í lyfja-
búð lenti í því óláni eitt
sinn að láta viðskiptavini í
té rangt lyf. Maðurinn kom
inn í búðina og bað um
hóstasaft en í fljótræði lét
strákur hann hafa slurk úr
næstu krukku sem í var
laxerolía. Apótekarinn,
sem fylgdist með úr
bakherbergi, skammaði
strák og spurði hvort hann
héldi að manninum
batnaði hóstinn af þessu.
,,Já reyndar," sagði
stráksi og benti út um
gluggann, ,,þú sérð hann
þarna, manninn. Hann
hallar sér upp að Ijósa-
staurnum þarna og þorir
ekki að hósta."
AIWA CA-30
og þetta stórglæsilega tæki, 2x14w, með lausum hátölurum, á
aðeins kr. 13.980, staðgr.
AUt til hljómflutnings fyrir:
HEIMILIÐ - BILINN
OG
DISKÓTEKID
D i
Káalö
ARMULA 38 (Selmúla megin) 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF 1366
30. tbl. Vikan 39