Vikan


Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 38

Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 38
Slúður Joanna Cassidy: I Hún hreppti hið eftirsóknarverða kvenhlutverk í UNDER FIRE! Hlutverk Joönnu Cassidy í kvik- myndinni Under Fire, sem sýnd hefur verið í Háskólabíói, var það hlutverk sem margar leikkonur Hollywood hafa látið sig dreyma um undanfarin ár. Sumir segja að þetta sé í fyrsta skipti sem nú- tímakonu sé lýst á eðlilegan og heiðarlegan hátt í kvikmynd. En hver er þessi rauðhærða, 38 ára Joanna Cassidy sem hreppti hnossið? Hún hefur hingað til ekki verið áberandi í kvikmyndum. Fyrsta hlutverk hennar var í The Laughing Policeman, 1975, með Walter Matthau, seinna kom hlut- verk Zhöru í Blade Runner. Hún er fædd í Haddonfield, litlum bæ suður af New York. Frá því hún man eftir sér var það á stefnu- skránni aö koma sér burt þaðan. Hún hitti læknastúdent á herstöð í nágrenninu, giftist og eignaðist barn 18 ára gömul. Eftir það tóku við ferðalög um hinar ýmsu her- stöðvar í Ameríku. Að lokum enduðu þau í San Francisco þar sem hún vann fyrir heimilinu sem ljósmyndafyrirsæta. Hún eignað- ist annað barn og gerði allt sem ætlast var til af góðri eiginkonu. En undir niðri brann löngunin til að lifa öðru lífi. Hún skildi við mann sinn og fluttist með börnin Joanna lék hlutverk Zhoru á móti Harrison Ford í Blade Runner. Eftir það fór boltinn að rúlla. til Los Angeles þar sem hún hóf leiklistarnám. „Fólk var svo uppörvandi,” segir Joanna. „En ég var ekkert að flýta mér og því byggðist starfsferillinn upp smátt og smátt eins og pýramídi. Hlutverkið í Under Fire er fyrsta alvöruhlut- verkið mitt.” Vinir Joörrnu segja hana ekki ólíka persónunni í Under Fire og því hafi henni þótt auðvelt aö setja sig í spor hennar: „Ég vildi ekki gera fréttamanninn að einhverju karlmannlegu hörku- tóli. Eg vildi að hún héldi kvenleg- um eiginleikum, en væri sjálfstæð, dugleg og hugrökk. Þannig eru þær konur sem komast áfram í lífinu í dag. Ekki tilfinningasnauð- ar, samviskulausar skepnur, eins og þær eru svo oft sýndar í kvik- myndum!” En hvemig gekk Joönnu að lynda við Nick Nolte sem hefur orð á sér fyrir að vera hið mesta karlrembusvín? Mörgum mótleik- konum hans hefur gengið illa að lynda við þennan skapstóra leik- ara og Katharine Hepburn sagði hann aldrei hafa mætt á réttum tíma til vinnu þar sem hann hefði verið þjórandi á öllum krám bæjarins! „Það er satt að Nick fer í vamarstöðu,” svarar Joanna, „ef honum finnst konur ætla að vaða yfir sig á einhvern hátt. En þegar maöur kemst inn fyrir brynjuna finnur maður fljótt að þarna er á ferð ofur venjulegur maður, ein- lægur og mjög hjálpsamur. Það var ekkert sem hann lagði ekki á sig við kvikmyndatökurnar og hann gerði allt sem hann gat til að hjálpa mér í gegnum þær líka. Við unnum saman við erfiðar aðstæður í Mexíkó og kvikmyndin átti hug okkar allan. Og eftir því sem maður sökkti sér dýpra í kvikmyndina því betur gekk okk- ur að gæða persónurnar þeim til- finningahita sem var nauðsynleg- ur til að ástarsenurnar yrðu eðli- legar. Þar var alltaf fullt af fólki viðstatt og maður veröur að hafa mikið sjálfsöryggi til að geta gert þetta sannfærandi. Ég geri mér grein fyrir að það verður erfitt að verða þekkt leik- kona. Það er einmanalegt og Joanna bjó sig vel undir hlutverkið, kynnti sér störf fréttamanna og stjórn- málasögu Chad og Nicaragua. Hún neitaði að leika förðuð, sagði að enginn stríðsfréttamaður hefði tíma til að hlaupa um stríðssvæðið með kinnalitinn á lofti. framtíðin er því ekki eins þægileg og hún gæti verið. En ég fæ ekki útrás í gegnum velgengni ann- arra. Ég verð að eyða kröftum í það sjálf! Það er líka mikil hjálp í aö börnin mín trúa á mig. Þeim finnst ég vera mest og best og þau eru mjög stolt af þessum árangri hjá mér!” Góðan daginn, góðir há/sar. Þetta er Tómas Ragnarsson sem taiar frá óiympiuieikunum i Los Angeles. . . 38 Vikan 30. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.