Vikan


Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 35

Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 35
11 Draumar Neyðarkall Kæri draumráðandi. Eg skrifa þér í algjörri neyð og vona að þú getir hjálþað mér. Þetta er kannski svolitið óvenju- leg saga og ég á erfitt með að út- skýra hana. En hún byrjaði öll á draumi sem mig dreymdi fynr nokkrum mánuðum. Mér fannst ég vera að keyra niður Lauga- veginn ásamt vinkonum mínum (ég er ekki komin með bílþróf en ég átti að hafa fengið sérstakt leyfi frá lögreglunni til að keyra þennan eina dag). Það var ösku- dagur. Við keyrðum að stað þar sem í gangi var smámiða- haþþdrætti og dregið á staðnum. Vinkona mín keyþti sér miða og vann á hann bíl, Mazda 323, mosagrænan. Og við keyrðum áfram og þegar við komum að horni rauðu girðingarinnar hjá Eimskiþ var bíllinn þar ásamt 3 mönnum, einum miðaldra og tveim strákum, 2—3 árum eldri en ég er. Við löbbuðum allar út og fórum að sþjalla við þá. Eg sþurði annan strákinn að nafni og hann sagðist heita Kiddi. Hann þekkti vinkonur mínar en ekki mig. Eg er handviss um að ég þekki þennan strák í raunveruleikanum þó ég komi honum ekki fyrir mig og ég er ekki viss um að hann heiti Kiddi eins og ídraumnum. Síðan mig dreymdi þennan draum hefur mig dreymt þennan strák á hverri nóttu og margar tegundir af draumum. Oftast finnst mér hann vera að vara mig við einhverju en ég næ aldrei hverju. Einu sinni hefur mér fundist hann sárbœna mig um hjálþ en ég gat ekki af einhverj- um ástœðum hjálþað honum. Nokkrum sinnum höfum við verið í kirkju, þá alveg hvít- klædd með fullt af hvítum log- andi kertum í kringum okkur. Hann gaf mér hring með hvítum steini en varaði mig um leið við einhverju. Margar fleiri út- gáfur hafa verið af þessum draumum. Nær alltaf varar hann mig við einhverju sem ég næ ekki hvað er. Eg bið, svaraðu mér, þú mátt mjög gjarnan stytta bréfið. Þetta er eflaust mjög ruglingslegt allt en ég veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta, ég er handviss um að ég þekkiþennan strák. Hvað á ég að gera? Hvað þýðir þetta? Hvert á ég að snúa mér um hjálþ? Þetta ásækir mig. S.O.S. Meginefni þessara drauma allra er að að þér sækja einhver óvildaröfl, og þú skalt vera á varð- bergi gagnvart þeim sem vilja þér ekki vel, óvild, erjur, ef til vili heimiliserjur, og jafnvel að einhver vilji gera þér einhvern grikk (þú ert þó í engri hættu stödd og það vill enginn skaða þig líkamlega). Hatrammar deilur gætu sprottið upp út af þér. í draumunum kemur enn- fremur fram að einhver (þessi strákur sem þú kemur ekki fyrir þig — eða einhver annar) ber mjög sterkar/heitar tilfinningar til þín. Framundan gætu verið talsverðar sviptingar í einkalífi þínu og þú verður sannarlega að vera á varðbergi ef einhver vill koma höggi á þig, klekkja einhvern veginn á þér. Þarna gætu verið fieiri en einn á ferð og ástæðurnar sennilega afbrýði og öfund. Það er fremur erfitt að lesa þinn þátt út úr þessum draumum. Annaðhvort reynir þú að komast hjá því að horfast í augu við þetta eða þú gerir þér ekki grein fyrir því á þessu stigi, það er ekki komið fram. Þegar þú færð þessa ráðningu ættu þessir draumar að hætta að ásækja þig, skilaboðin eru komin til skila, og það er ekkert nema gott um viðvaranir í draumum að segja. Þú þarft ekkert að fara að tortryggja allt og alla, það ætti að vera nokkuð skýrt hver eða hverjir eiga í hlut og þú skalt bara taka þessu með þeim fyrir- vara að láta það ekki gera þig svartsýna. Ef þig dreymir meira og frábrugðið þessu skaltu skrifa aftur. Á skipi í höfn með rottum og selum Kæri draumráðandi. Viltu ráða þennan draum fyrir mig? Mér fannst ég vera stödd um borð í stóru skiþi. Það var ekki á ferð heldur lá við landfestar einhvers staðar í fallegri höfn einhvers staðar í stórborg t Evróþu fannst mér, ef til vill inni ílandi. Mér fannst ég standa úti á dekki og horfa út fyrir borð- stokkinn ásamt einhverju fólki sem ég kann nú ekki meira en svo skil á. Sjórinn var frekar sléttur og tær og mér fannst allt í einu einhver stór fltkUi koma syndandi, sennilega svona sjö að tölu. Eg var að þœla í hvað þetta væri og þá var mér sagt að þetta væru sennilega rottur. Þær voru alveg á stærð við stóra hunda og mjög fallegar. Eg er eitthvað að furða mig á því hvað rotturnar séu nú fallegar, snjáldrin minni á seli. En þá finnst mér, við nánari athugun, að þetta séu selir, ekki rottur, og snjáldrin enn mjög falleg. Það var sérkennilegt að dýrin komu syndandi í hálfhring beint að skiþinu en virtust ekkert ætla að ráðast til uþþgöngu, frekar eins og þau væru^forvitin. Meira var það nú ekki en nú vona ég að þú getir ráðið þetta fyrir mig. Þessi draumur er Ijóslifandi fyrir mér enn þó tvœr vikur séu síðan mig dreymdi hann. Eyrirfram þakkir fyrir ráðninguna, Brynja. Það eru einhverjar fyrirætlanir að vefjast fyrir þér og engu líkara en þú hreinlega þorir ekki í framkvæmdir. Ólíklegt er að þarna sé um hrein einkamál að ræða því það eru þarna fleiri en þú á sama báti. Flest bendir til að þessi ótti reynist ástæðulaus og andstæðingarnir óvenjulega vinveittir. Gættu þess þó að vanmeta ekki aðstæður. Ef þið farið að stefna að hlutum sem skarast er grunnt á afbrýði- seminni. Eins og málin standa virðist lítil hætta á því á næstunni. En greinilegt er að haft er vakandi auga með öllum aðgerðum þínum og samstarfs- manna þinna. MAKXLAoíft/\ FÉLAfrrt) — Nei, heyrðu mig, væni — svo makalaus erum við nú ekki! 30. tbl. Vikan 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.