Vikan


Vikan - 26.07.1984, Side 14

Vikan - 26.07.1984, Side 14
Litið inn til listamanna: Heimsókn á Fjölskyldan er oft öll á uinnustaðnum. Hér eru Leifur og Jói við vinnu. spurður að því hvort við veröum ekki leið hvort á öðru að vinna svona mikið saman en gler og ull eiga ýmislegt sameiginlegt og þar með líklega við. Jói sonur okkar var hins vegar eitt sinn spuröur að því hvar eða við hvað pabbi hans og mamma ynnu og svariö sem hann gaf var: Pabbi brýtur gler og mamma setur það saman.” Hvað er spennandi við gler og hvers vegna fór Leifur út í glerlist? „Mér finnst glerið mjög spenn- andi aö því leyti aö það er efni sem er lítt kannaö og þaö er ekki bund- ið neinu í tíma og rúmi. Gleriö hef- ur svo marga möguleika og það hefur þann eiginleika aö hrökkva í sundur. Glermyndir eru settar saman úr mörgum glerbrotum má segja, greyptum í blýfalsa og þær eru háðar birtu sem fellur í gegn- um þær en endurvarpa henni ekki eins og til dæmis málverkið gerir. Þetta er mjög spennandi því þaö er fyrst hægt að gera sér grein fyrir hvernig til hefur tekist með glermynd þegar hún er komin á þann stað þar sem hún á að vera því að með tilkomu utanaðkom- andi birtu og ýmsum hlutum í um- hverfinu er verkiö fyrst fullbúið. Þetta finnst mér alltaf spennandi augnablik. Ég var Myndlista- og handíöa- skólanum frá 1962—1966 og strax á öðru ári þar var ég ákveðinn í aö fara út í glerlistina. Þarna við skólann var starfandi skoskur vef- ari og glerlistarmaður, James Langan, og hjá honum gerði ég fyrstu tilraunir mínar með gler- myndir. Kynni mín af þessum skoska kennara réðu því sennilega aö ég fór í glermyndadeild lista- skólans í Edinburgh en listaskólar í Noröur-Englandi og Skotlandi hafa lengi lagt töluverða áherslu á hagnýtar listgreinar eins og til dæmis leirkerasmíöi, fatahönnun, vefnað og glermyndagerö. En viö þá sem hafa hug á að fara út í gler- list vil ég segja þetta: Mjög mikil- væg undirstaða er gott listrænt nám því tæknilegu atriðin eru æf- ing. Ef listrænu skólunina vantar er mikil hætta á að festast í ákveönum stíl. Aðalatriðið aö mínu mati er góð listræn skólun.” Ævaforn listgrein — Eru glermyndir í tisku? „Það hefur sjaldan ríkt eins mikil gróska í þessari listgrein eins og á síðustu áratugum en þetta er samt ævaforn listgrein sem er aö endurheimta forna frægð og nú á hvert land í Evrópu sér snilling á þessu sviði. Gler- myndirnar í dag höföa til samtím- ans eins og gömlu glermyndirnar til forna gerðu. Þetta eru mikil listaverk eins og til dæmis gluggi málarans Matisse í Time-Life byggingunni í New York en elstu uppistandandi gluggar sem vitaö er um eru frá 1065 og eru í dóm- kirkjunni í Augsburg í Þýska- landi. Það sem er mjög athyglis- vert við þessa fyrstu glugga sem við þekkjum er að þeir sýna full- komið vald yfir allri glermynda- tækni. Það er vitað um tilveru gler- hnullunga frá því um 12.000 f. Kr. en frá því um um 700 f. Kr. eru til litaöir glerbútar frá Miðaustur- löndum sem notaðir voru í skart- gripi og dýra skrautvasa. Með örri þróun í byggingarlist, sem fylgdi gotneska stílnum upp úr 1150, urðu kirkjur stærri og kröfðust meira ljóss aö innan og þar meö stærri glugga. Og þaö er einmitt þá sem blómaskeiö glermyndarinnar gengur í garð. Á12. og 13. öld þótti gleriö til dæmis sjálfsagt þegar verið var aö skipuleggja kirkjurn- ar. Hönnun kirknanna og bygging- anna og svo glerverkiö var ein órofa heild. Þetta er þaö sem koma skal að mínu áliti, sérstak- lega núna þegar steinda gleriö er aö endurheimta forna frægð sína. Þaö væri til dæmis æskilegt í sam- bandi við nýbyggingar, þar sem hönnuður hefði áhuga á að hafa glermynd í verkinu, að hann hefði strax á frumstigi sinna teikninga samband viö viðkomandi lista- mann og að þeir ynnu síöan saman að sem bestri útkomu því ákvörö- un um hvar glermynd á að koma er vandasamt verk og mikilvægt að vel sé að málum staöið. ” Ekki aðeins glerlist í kirkjum Verk Leifs má sjá víða og þau prýða ekki aðeins kirkjur eins og loftskreytingin á Skálafelli í Hótel Esju, veggur Þjóðleikhúskjallar- ans, ýmsir bankar og skólar og ýmis verk í einkaeign bera vott um. „Það má segja að verkin sem ég vinn að séu þrenns konar. Það eru verk í sambandi við umhverfið og arkitektúr sem eru þá verk sem ég er fenginn til að vinna aö. Það er mjög mikilvægt í sambandi við þessi verk að taka tillit til allra að- stæðna, hvernig húsnæðið er, hvernig útlínur þess eru, hvað á að hafast að innan veggja þess og þar fram eftir götunum. Þetta eru stóru verkin en samhliða þeim vinn ég það sem kallast frjáls verk. Þetta eru þá fríhangandi verk í glugga, verk í tengslum viö sýningar og fleira. Ég nota svo oft hugmyndir úr þessum minni verk- um í stærri verkin. Verk sem eru unnin fyrir einkaaðila krefjast líka umhugsunar. Þaö er ekki sama hvort verkið á að vera i stofu með nútímahúsgögnum eða hvort stofan er antík en þau mega heldur ekki týna persónulegu handbragði. Þetta allt verður að vinna saman. í þriöja lagi er ég síöan að vinna verk sem ég kalla umhverfisverk en það eru til dæm- is ýmiss konar glerskúlptúrar. ” — Uppáhaldsverk? „Nei, eiginlega ekki. Mér finnst venjulega mest gaman að því verki sem ég er að vinna að hverju sinni. Nú á drekinn minn, sem fer á Kjarvalsstaði, hug minn allan.” Glerlistarverk verður til Þegar horft er á glerlistarverk, til dæmis stóran og margbrotinn glugga, vaknar sú spurning hvaða vinna liggi að baki. Leifur út- 14 Vikan 30. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.