Vikan - 26.07.1984, Side 34
Uppgötvun hreyfimyndanna um 1915-1920 olli straumhvörfum í augnmálun. Konur
horfðu á Theda Bara, Mary Pickford og Clöru Bow og urðu fyrir sterkum áhrifum
af förðuninni - þessir dramatísku og seiðandi sálargluggar urðu ómótstæðileg fyrir-
mynd um allan heim.
Um 1930 kom svo Joan Crawford með sín einstöku augu og Marlene Dietrich
með augnlokin frægu. Þau voru að vísu löng en hún bætti um betur með þvf að
hafa þau hálfopin og förðunin undirstrikaði áhrifin.
Litir í augnskuggum sem hátískuvara komu svo rétt fyrir 1940. Elizabeth Arden
varð fyrst til að grípa gæsina með nýtískulegum augnskuggum í grænu, bláu, bleiku
og blágrænu. Kvikmyndastjörnur eins og Betty Grable voru fljótar að nýta sér þá og
innan tíðar voru slíkir skuggar nauðsynjavara í hugum kvenna um víða veröld.
Nútímastjörnurnar eru engin undantekning frá öðrum - sterkur augnsvipur er
þeirra vörumerki líka. Þau eru kannski ekkert lík að mörgu leyti þessi fjögur en
þarna má þekkja Debbie Harry - Blondie - , söng- og leikkonuna Cher og einnig
sýningarstúlkuna Jacki Adams. Sú síðastnefnda er dæmigerð fyrir snyrtingu
kvenna sem í dag fylgjast sem allra harðast með sveiflum tískunnar - þó án öfga.
Brún augu:
Tvöfaldi persónuleikinn enn á ferð-
inni. Annars vegar traustur og
áreiðanlegur, hagsýnn og orðheld-
inn. Hins vegar með afbrigðum
sveigjanlegur og mikil þörf fyrir að
vera óbundinn með öllu. Dökkbrún
eru fyrir þá sem eru lausir í rásinni,
Ijósbrún eru einkenni þess alvöru-
gefnari.
Græn augu:
Þeir græneygðu eru hamingjusam-
astir, sjálfsöruggir og færir um að
einbeita sér við ótrúlega erfiðar
aðstæður. Þeim verður ekki
auðveldlega komið úr jafnvægi og
störf í tengslum við fjölmiðlun og
önnur rnannleg samskipti ættu að
liggja óvenjuvel fyrir þeim.
Blá augu:
hætturnar. Hræsni og látalæti eru
eitur í beinum þess en það vill þó
að því sé sýnd fyllsta virðing og til-
málunum í framkvæmd og þá er
ekki dregið af neinu til að ná ár-
angri.
Lifandi og hæfileikamiklir persónu-
leikar sem eiga auðvelt með að afla
sér vina. Ákaflega viðkvæmir og
gefnir fyrir æðri hluti en verða
samt ekki auðveldlega brotnir
niður vegna þess að þarna er hug-
rekki og þrautseigja í miklum
mæli.
Svört augu:
Kynngimagnað fólk, fullt af afli og
innri krafti. Skapheitt og alltaf
tilbúið til að horfast í augu við
litssemi.
Ljósblá augu:
Grá augu:
Hugrekki og feimni eru sterk per-
sónueinkenni þeirra með gráu
augun. Hlédrægnin kemur þó ekki
í veg fyrir að sumir bíði eftir rétta
tækifærinu til að koma áhuga-
Mjög föllit augu sýna að þarna er á
ferðinni mjög jarðbundin mann-
eskja og á til mikla athafnasemi.
Þó er hætta á öryggisleysi sem
veldur vöntun á sjálfstrausti og
hræðslu við óþekkta hluti —
jafnvei meiriháttar fælni.