Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 41
sóun. ” Allavega hugsaði hann eitt-
hvað í þessa átt. Að minnsta kosti
kom hann hlaupandi með 30 sentí-
metra sölumannsbros á vör til
okkar.
— Get ég nokkuð aðstoðaö
frúna?
— Aðstoðað? endurtók
Maríanna, — ja, það er ég nú ekki
svo viss um. Það er lítið úrval
hérna.
— Við erum með mörg þúsund
gerðir af skóm á lager. Og það ætti
nú ekki að vera svo ýkja erfitt að
finna eitthvað á svona vel skapaða
fætur og frúin er með.
Maríanna var greinilega
nokkuð uppveðruð og settist með
viðurkenningarbros á vör á stól
þarna hjá.
— Ég ætlaði að líta á gönguskó,
sagði hún.
— Við erum með mjög góða
ítalska hérna, stílhreina Kali-
forníuskó í drapp, karamellulit og
sandlit.
— Nei, ekki líst mér nú á það.
Hællinn er ekki nógu góður.
— Við eigum þá líka með
klumphæl og fíngerðum nælonhæl.
Hún mátaði.
— Nei, sagði hún stutt í spuna.
— Paradúlhæl kannski?
Hún mátaði meö paradúlhæl.
— Nei.
Sigfótur greip í snarheitum
þrjá, f jóra kassa úr hillunum.
— Jæja, þá erum við nú með
mjög skemmtilega handunna
chebrtau, eins og þessa
hér....taktu eftir spennunni sem
liggur hér fyrir og þessu hér.... og
hérna hvernig þeir eru skornir...
við eigum þá í heilum og hálfum
númerum efþaðmábjóða...
— Ég ætla að máta. Nei...ekki
þessa, hina...
— Þessa marínbláu?
— Já.
Hún mátaði þá. Ég eygöi von.
— Hvað finnst þér?
— Jú, ég flýtti mér að kinka
kolli — fáðu þá bara.
Hún gekk fram og aftur á rauða
dreglinum.
— Mér finnst þeir þrengja að
alls staðar — ég get ekki ímyndað
mér að nokkur manneskja geti
gengið í svona skóm. Ég vil hvorki
eiga þessa skó né sjá. Hvað ertu
með þarna í efstu hillunni?
Ég tók eftir að Sigfótur stundi
lágt. Hann var greinilega ekkert
yfir sig hrifinn af viðskiptavinum
sem vildu bara efstu hillurnar.
— Þessir eru háhælaðir úr
gervi-lamaskinni og petit-stultu-
hælum, en ég á von á að frúin hafi
áhuga á vandaðri skóm...ef ég má
ráða heilt.
— Ég ætla nú samt að máta.
Hann klifraði upp stigann og
kom með fangið fullt af skó-
kössum. I þeim var svo ekkert
sem Maríönnu líkaði. Hann fékk
að fara þrisvar, fjórum sinnum í
viðbót. Svo fór hún að sýna
þessum hallærislegu lághæluöu í
útstillingarglugganum áhuga.
— Hvaðer nú þetta?
— American Ohio-krókó.
— Gervikrókódílaskinn?
— Já.
— Þá er það ekkert fyrir mig.
Ertu meö eitthvað meira þarna í
efstu hillunum?
Sigfótur hóf sig á loft enn einu
sinni og enn kom hann niður með
fangið fullt.
— Hér eru þægilegir og mjög
klæðilegir skór, kantstungnar
mokkasínur, stillanleg rist, PVC-
sóli og góður tvöfaldur tax-hæll
með...
— Biddu fyrir þér, þetta er nú
líkara skinnbáti!
Sigfótur leit örvæntingarfullur
á mig. Hvað ætlaði ég aö gera í
málinu? Hann hafði nú brátt tekið
allt niður úr hillunum og mér
fannst útilokað að vera að ómaka
hann öllu meir.
— Er ekkert hér sem þú...?
byrjaði ég. Þá allt í einu var hún
komin á fullt að máta brúna skó.
— Veistu hvað? sagði hún og
virtist allt í einu áhugasöm —
þessir hérna millibrúnu....þeir
passa. Þeir eru þeir fyrstu sem ég
máta í dag sem mér finnst þægi-
legir.
Sigfótur varð að spenna greipar
til að halda geðshræringu sinni í
skefjum.
— Þetta eru skórnir sem frúin
var í þegar hún kom, sagði hann.
— Já, einmitt, sagði hún. Áttu
ekki eitthvað í svipuðum dúr bara
í öðrum lit, með hærri hæl og
kannski svolítið betur farna. Það
væri til dæmis gott að fá silfur-
gráa í rúskinni. Áttu svoleiðis?
Sigfótur varð aö játa að hann
átti ekki silfurgráa.
Maríanna leit snöggt á efstu
hillumar. Þar var ekki meira að
hafa.
Hálftími leið. Svo gerðist
kraftaverkið. Hún ákvað að fá sér
ósköp venjulega brúna bandaskó.
Sigfótur var ekki seinn að koma
þeim í kassann og setja band utan
um. Hann var rétt að fá mér
reikninginn þegar Maríanna sagði
dálítið sem fékk hann til að verða
alveg heið-American-krókó-
grænan í framan. Hann var greini-
lega kominn á fremsta hlunn með
að rjúka í hana yfir borðið og taka
hana kverkataki.
Maríanna sagði:
— Nei, ég held ég vilji þá
annars ekki....ég er ekkert hrifin
af þessum kassa.
\s
Stjörnuspá
Hrúturinn 21. mars- 20. apríl
Þótt þú eigir í erfið-
leikum með að lynda
við vinnufélaga þína
skaltu ekki láta hug-
fallast. öll él birtir
upp um síöir og væri
reynandi fyrir þig að
líta í eigin barm og
kappkosta að vera
hlýr og vingjarnlegur
í viðmóti.
Krabbinn 22. júni - 23. júli
Þér hættir til aö gera
of miklar kröfur um
fullkomnun. Reyndu
að líta á björtu hlið-
arnar á tilverunni og
leggja ekki of mikiö
upp úr smámunum.
Vertu sérlega blíður í
garð þinna nánustu.
Nautið 21. apríl - 21. mai
Loksins gefst þér
tækifæri til að slaka á
eftir annasamar vik-
ur að undanförnu.
Vertu ekki of kröfu-
harður, hvorki í eigin
garð né annarra. I
fjármálunum er útlit-
ið óvenjulega bjart.
Ljónið 24. júlí - 24. ágúst
Það er ljóshærður
maður að laumast
inn í líf þitt. Vertu
ekki of áköf heldur
íhugaðu málin vel og
flanaðu ekki að
neinu. Einbeittu þér
að starfinu. Það mun
borga sig.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Þú átt von á óvænt-
um endurfundum við
vin sem þú hélst að
þú sæir ekki aftur.
Taktu þér tak og
leggðu af ýmsa ósiði,
en til þess gefst gott
færi núna.
Steingeitin 22. des. - 20. jan.
Eftir erfiðan tíma
undanfarið er nú loks
tími til að slaka á og
líta yfir farinn veg.
Þú ættir að einbeita
þér að fjölskyldunni
og reyna að fá sem
mest út úr samskipt-
um þínum við þína
nánustu.
Sppfðdrekinn 24. okt. - 23. nóv.
Þér virðist hætta til
þess að mikla fyrir
þér erfiðleika. Mundu
að hlutirnir eru
aldrei eins erfiöir
þegar á hólminn er
komið. Þú ættir að
reyna að koma
ýmsum persónuleg-
um smámálum á
hreint.
Vatnsberinn 21. jan. ~ 19. febr.
Loksins virðist vera
runnin upp vikan þín.
Þér gengur flest í
haginn en mundu aö
iðjusemin er upp-
spretta velsældarinn-
ar. Láttu ekki blind-
ast af velgengninni
og mundu að lánið er
valt.
Tviburarnir 22. mai - 21. júní
Þú hefur haft
áhyggjur af nákomn-
um ættingja undan-
farið en allt bendir til
að áhyggjurnar séu
óþarfar. Þú færð gott
tækifæri á næstunni
og um aö gera að
glata því ekki með
óþarfa fljótfæmi og
fumi.
Meyjan 24. ágúst - 23. sept.
Það er engin ástæða
fyrir þig að örvænta
þótt þér þyki lítið
miða. Róm var ekki
byggð á einum degi!
Kappkostaðu að ljúka
þeim verkum sem
liggja á borðinu þínu.
tJtlit er fyrir
skemmtilegt ferðalag
hjá þér á nasstunni.
Bogmaðurinn 24. nóv. - 21. des.
Þú skalt ekki halda
að annað fólk hafi
það ævinlega betra en
þú. Jörðin er óttaleg-
ur táradalur, að
minnsta kosti ef
maður er sífellt að
bera sig saman við
aðra. Reyndu heldur
að gleðjast yfir því
sem þú hefur.
Fiskarnir 20. febr. - 20. mars
Láttu ekki hugfallast
þótt þér finnist að þér
hafi mistekist. Þú
skalt ekki taka ein-
hverjum gylliboðum
þótt þau berist. Það
er meira virði að
sinna vel því sem þú
hefur fyrir stafni
núna.
30. tbl. Vikan 41