Vikan


Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 43

Vikan - 26.07.1984, Blaðsíða 43
Framhaldssaga Þriðji hluti - Malcolm Williams - Þar sem grasið er grænt „Það hefur þú ekki verið heldur, hr. Buchanan. Ef þú vilt vera svo vænn að velja annað múldýraæki ætla ég að greiða fyrir dýrin. Svo kem ég í kring fundi með vinum mínum. Það er tími til kominn að við kynnumst öll finnst mér. ” ÞEGAR múldýraverslunin var afstaðin riðu Catherine og Buchanan að nágrannabæ til að leita að vögnum. Þau höföu samið svo um að þau sæktu múldýrin viku síðar. Buchanan ól á gremju sinni eina mílu eða svo, þá sagði hann hvasst: „Það verður nóg að gera fyrir karlmennina í hópnum þínum í þessari ferð. Hvar eru þeirannars?” „Þú skalt hafa áhyggjur af út- búnaðinum, ég skal hafa áhyggjur af hópnummínum.” Hann varð æ fjandsamlegri. „Ég býst við að þú hafir erft auðæfi þín, ungfrú Davenport.” „Ég er ekki auðug. Og faðir minn varð efnaður maður með því að fara til vinnu í myrkri og koma heim aftur í myrkri sjö daga vik- unnar. Það er ekki gaman að stjórna spunastofu — og þú ert að yfirheyramig!” „Þú skalt ekki vera stolt, ungfrú Davenport. Fólk á vesturleið hefur stundum gengið af vitinu af ósveigjanlegu stolti. Ég sá einu sinni mann skotinn vegna þess aö hann ræskti sig á óþægilegan hátt. Hann dó nærriþví.” „Þú myndir hætta við þessa ferð á hvern hátt sem þú sæir þér fær- an!” „Ef ég gæti, en ég er á kúpunni. Og ég skulda mánaðarleigu fyrir herbergið mitt í bænum.” Hvers vegna gat Cathy ekki snúið aftur heim til Englands? Hvað beið hennar í nýju, framandi og ótömdu landi? — Svarið er í þessari nýju framhaldssögu sem er í senn hugljúf og spennandi og segir frá ungri, enskri konu í rryju landi og kynnum hennar af nýju fólki þar sem maður og náttúra leggjast alltaf á eitt, hvort heldur er til góðs eða ills. 42 VIKan 30. tbl. „Af hverju ríðurðu ekki bara yfir næstu hæð? Ég gæti ekki haldið aftur af þér.” „Þú skalt ekki ímynda þér að mér hafi ekki dottiö það í hug. En þeir voru of margir sem sáu mig tapa í spilum.” Catherine gaf honum hornauga. „Þú hefur þá líka þitt stolt.” Þau komu upp á hæðarbrúnina og gripu í taumana, horfðu yfir í átt til St. Joseph og á glitrandi ána sem hlykkjaðist í austur. „Þú finnur ekkert E1 Dorado í vestri, ungfrú Davenport. Þessa stundina get ég mér til að þú hafir beint fallegu, grænu augunum þínum í átt að Snobb-Hill í San Francisco. Kannski fellur lífsmát- inn þar þér í geð. En á leiðinni þangað er skítur, blóðkreppusótt, ósigur og dauði. Ég veit það. Trúðu mér, fröken, ég veit það.” „Hr. Buchanan!” Reiðin bloss- aði upp í Catherine. „Ég réð þig til að fara með mig til Kaliforníu, ekki til aö telja mig ofan af því að fara. Vinsamlegast haltu hug- myndum þínum um uppgjöf fyrir sjálfanþig!” Hún starði kuldalega á hann, hristi svo taumana og hvatti hest- inn sinn niður hlíðina í átt að býl- inu þar sem þau ætluðu að kaupa vagna. „KOMDIJ MEÐ okkur í bæinn, Nancy,” bað Catherine hana blíð- lega síðdegis þennan dag. „Þú getur ekki endalaust lokað þig hémainni.” „Cathy hefur á réttu að standa, mamma,” tók Emmeline undir með henni. „Pabbi myndi ekki kæra sig um að sjá þig svona. Og andrúmsloftið í þessu húsi er slæmt.” „Jæja.” Nancy sneri sér að Sarah. „Mér finnst að við ættum öllaðfaraíbæinn.” Sarah var þessu samþykk. „Cathy hefur lagt svo hart að sér og við verðum öll að hitta þennan hr. Buchanan.” Þau gengu inn í St. Joseph til að spara og þögðu á leiðinni, jafnvel tvíburamir voru ekki annaö en bældir skuggar af sjálfum sér. 1 þetta skiptið fagnaði Cathy látun- um og hávaðanum í bænum. Troðfullar gangstéttir beindu hugsunum allra frá nýliðnum harmleik. Fyrir framan stærsta hótelið stönsuðu þau öll og horfðu á skrautvagn sem glæsilega klædd kona steig niður úr með aðstoð manns með pípuhatt úr silki og í svörtum lafafrakka. Þegar parið stikaði tígulega inn í gistihúsið smellti ekillinn svip- unni og vagninn skrölti burt. Charity horfði á eftir honum með eymdarlegri þrá. „Við áttum einu sinni okkar eigin vagn, veistu það, Cathy.” „Og þjóna,” mundi Milton. Cathy lagði handleggina utan um tvíburana og þrýsti þeim að sér. „Það gerir fólk ekki alltaf hamingjusamt að vera ríkt, skuluð þiðvita.” „Það gerir fólk ekki heldur hamingjusamt að vera fátækt,” svaraði Charity. „Ég vildi óska að við hefðum aldrei farið frá New York, Cathy.” „Uss uss, látið þær hinar ekki heyra ykkur tala svona. Þetta batnar allt bráðum, Charity, sannaðu bara til.” Milton var efins á svipinn. „Ætlar þessi hr. Buchanan að gera allt betra fyrir okkur, Cathy?” Hún hikaði snöggvast áður en hún svaraði. „Hr. Buchanan ætlar að aðstoða okkur, Milt. Hann ætlar að vísa okkur veginn vestur. ’ ’ Þau komu saman, eins og ákveðið hafði verið, í versluninni skammt frá smiðjunni. Tvíbur- arnir dunduðu sér við að kanna aftari hluta dimmrar verslunar- innar sem seldi allt frá jámvöru upp í fíngeröa kniplinga. Nancy og Emmeline helltu sér yfir borðið með smávörunum, Sarah skoðaði efnisstranga og Catherine ræddi við verslunareig- andann, hávaxinn, tekinn mann með síða svuntu. Svo gall dyrabjallan og Buch- anan kom inn. „Góðan dag, Buchanan,” sagði rámur verslunareigandinn. „Hvemig gengur, Frank?” Búkur Buchanans fyllti upp í gættina og hann rýndi tortrygginn inn í dimma verslunina. „Ég frétti að þú værir að fara vestur, Buchanan, værir að koma saman vagnalest,” sagði verslunareigandinn. Buchanan rumdi og gekk inn, leit spyrjandi til Catherine. Hún hafði kviðið þessari stundu en nú, þegar hún var runnin upp, brosti hún bjart til hans. „Við erum héma öll,” sagði hún við hann og benti á Sarah sem var næst þeim. „Hr. Buchanan, Sarah East- lake.” Sarah brosti kurteislega en varkár til hans. „Við höfum heyrt margt um þig, hr. Buchanan.” „Við?” Hann varð æ ringlaðri þegar hann sá Catherine gefa Nancy og Emmeline bendingu um að koma. Nancy hafði lagt hart að sér til að virðast róleg og hún rétti fram höndina. Buchanan snerti hana lauslega. „Frú mín.” Hann tók af sér hattinn og sneri sér að Emmeline sem brosti vingjamlega til hans. „Þú ert nákvæmlega eins og ég hafði gert mér þig í hugarlund, hr. Buchanan, bara hærri.” „Eg hafði gert mér eitthvað allt annað í hugarlund,” urraði hann og áhyggjumar leyndu sér ekki í svip hans þegar hann starði á kon- urnar fjórar. „Nancy og Sarah eru svilkonur, hr. Buchanan,” útskýrði Emme- line, „og Nancy ermóðirmín.” Hann steig skrefi aftar og starði á Catherine. „Hvar eru karlmennimir? Ungfrú Davenport, þú sagðir sex — alls.” Catherine leit framhjá verslunareigandanum og kallaði inn í verslunina. „Milt?Hvar ertu?” Þögn. Buchanan beið eftirvænt- ingarfullur. Svo gægðist Milton gætilega framhjá eplatunnunni með ljósa lokkana í óreiðu undan hattinum. „Héma, Cathy.” „Komdu hingað, Milt. Herra- manninn langar til að hitta þig.” Milton kom yfir til Buchanans og horfði lotningarfullur upp eftir honum. „Maður lifandi!” Hann saup hveljur. „Þú hlýtur að vera tíu feta hár.” Buchanan vissi ekki hvaðan á sigstóðveðrið. „Milton er tvíburabróðir Charity,” sagði Catherine honum. „Charity?” bergmálaði Buch- anan og horfði hrelldur á Charity koma hægt fram undan eplatunn- unni þegar hún heyrði nafn sitt kallað svona hvasst. Hjarta Catherine baröist ótt og títt. Hún gekk yfir að eplatunn- unni, tók í hönd Charity og leiddi hana yfir til hinna. Þegar sannleikurinn rann upp fyrir Buchanan horfði hann hrelldur yfir hópinn, af einu and- liti á annað. „Hvað gengur hér á? Fjórar konur og tveir krakkar!” Hann virtist ekki vita sitt rjúkandi ráð. „Það eru engir karlmenn í hópnum þínum!” „Ég sagði aldrei að það væru karlmenn,” svaraði Catherine, en það gerði bara illt verra. „Heldurðu að þið getið farið vestur? Hópur kvenna og barna?” Hann hló fyrirlitlega og Catherine fann reiði sína vaxa. „Við erum fær um að gæta okkarsjálf...” „Gæta ykkar sjálf?” sagði hann hæðnislega. „Karlmannslaus?” „Sú er ástæðan,” svaraði Catherine, „fyrir því að við réðum þig.” „Auðvitað!” glopraði Milton út úr sér. Buchanan virti hann ekki viðlits en talaði kuldalega til Catherine. „Þú lékst á mig. Þetta setur allt annan svip á málið.” „Þú settir engin skilyrði,” benti hún á, ámóta kuldalega. „Þú sam- þykktir einfaldlega að vísa okkur tilKaliforníu.” „Það er rétt hjá henni, Buch- anan,” samsinnti verslunareig- andinn ákafur. „Þannig heyrði ég sagt frá því í bænum. ” Buchanan sendi honum illt auga. „Skiptu þér ekki af þessu, Frank. Mér er sama hvaða kjafta- sögur þú heyrðir í bænum. ” „Þetta er mín verslun, Buch- anan, og. ..” „Það er satt!” gall í Emmeline og maddonnusvipurinn var horf- inn af henni. „Leiðangursstjóri þarf ekki að vera ruddi! Ekki þegar hann fær laun. Ég held að þú hafir þegar valdið mér von- brigðum, hr. Buchanan.” Buchanan hlustaði orðlaus á Charity andmæla líka. „Og þú myndir ekki tala svona við okkur ef Robert frændi væri hérna eða hann pabbi minn! ” „Hr. Buchanan.” Nancy tók í fyrsta sinn til máls og rödd hennar var kyrrlát eins og myllutjörn. „Mágur minn bíður okkar í Kaliforníu. Eiginmaður minn er nýlátinn. Heföi hann haft góða heilsu hefði hann fylgt okkur vestur án þess aö vera nokkrum háður. Eins og málum er háttað setjum við traust okkar á þig, viö öll. ” Augnaráð hennar átti líka við Catherine. Stuðningur Nancy hvatti Catherine og hún hélt áfram. „Nú, þegar þú ert búinn að hitta okkur öll, hr. Buchanan, geturðu betur gert þér grein fyrir því hvaða vistir við þurfum fyrir ferðina. Ég legg til að við byrjum hérna í þessari verslun.” Verslunareigandinn jafnaði sig heldur. „Svona er það, Buchanan. 30. tbl. Vikan 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.