Vikan - 26.07.1984, Síða 61
Texti: Hörður
Englands, sjáið til dæmis Hanoi
Rocks og fleiri. Það er hins vegar
Heavy Metal rokkið sem sænskar
hljómsveitir stæla frá Bretlandi.
Candy Roxx er original hugmynd,
en við erum vissulega undir
áhrifum frá öðrum. Ég nefni fyrst
og fremst Sweet og svo eru það
fleiri, Alice Cooper, T. Rex og
nokkrir aðrir. Þú sérð að það sem
við erum er „dangerous”, þú
veist, og ég er frægur fyrir minn
sérlega slæma smekk og ég er
stoltur af því hversu slæmt orð fer
af mér og þannig erum við
reyndar allir. Leyfðu mér að út-
skýra málið. Þegar viö komum til
nýs bæjar stendur yfirleitt á
forsíðum bæjarblaðanna: „Læsið
inni dætur ykkar, Candy Roxx er á
leiðinni... ! „Þannig er ímynd
okkar.”
Þannig að þið eruð eitthvað á
milli Kiss og Sweet hvað það
varðar?
„Já grunnhugmyndirnar eru
þaðan en núna er ekki hægt að
benda á okkur og segja: „Þetta er
Kiss! og þetta er Sweet!
En sexið, eruð þið maskúlín,
feminín eða júnísex?
„Allt þrennt og leyfðu mér að út-
skýra mig að nýju. Þegar
söngvarinn okkar er á sviði er
hann bara í einum netsokka-
buxum, háum indíánastígvélum
með kögri, fjaðraskraut á höfðinu
og um hálsinn, með eitt pungbindi
og loks fullmálaður. Fjaðrirnar og
málningin eru kvenlegar, líka
stígvélin en pungbindið, það er
mjög, mjög karlmannlegt.
Þó við blöndum þessu öllu svona
saman þá erum við samt mikiö
meira „macho” en kvenlegir.”
En hvað með músíkina?
Sebastian syngur fyrir mig lag-
stúf sem gæti allt eins verið Bay
City Rollers, „Þetta er viðlagið og
svo er miklu meiri melódía í þessu
hjá okkur því að þetta er ekki
bárujárn, þetta er glamrokk, og
glamrokk hefur sterk viölög og
síðan mikla keyrslu í laginu
sjálfu, þú veist, við höfum intró,
lag og svo viðlag og þetta keyrum
við mikið með trommum og
bassa. Mér finnst við vera ferlega
góðir. . . ”
En textarnir?
„We wanna screw every
girl.. . Neinei, ég var bara að
grínast, en það er samt eitthvað í
þessa áttina, „Come on and whip
me allt night. .. ” Eitthvað veru-
lega varasamt og spennandi. Nú
erum við að fara að taka upp
þessa plötu og hún á að heita „Sex
And Leather”.”
Breytir það ekki kvennamálun-
um hjá þér að vera svona ofsalega
frægur?
„Júhú. Við verðum allir að
skipta um símanúmer hjá okkur á
þriggja mánaða fresti þannig að
það getur verið svolítið leiðinlegt.
Það eru vissir kostir við þetta og
svo líka gallar, til dæmis fjöl-
skyldulífið. Ég hef varla séð
mömmu mína í fleiri vikur núna
og samt bý ég í sömu borg og hún.
Líka er þaö að allir eru að bjóða
manni dóp til sölu. Ég nota bara
ekki svoleiðis og enginn í grúpp-
unni gerir það. Það voru tveir sem
voru farnir að reykja hass af mikl-
em móð og við rákum þá bara.
Það þýðir ekkert að standa í þessu
upp á eitthvað svoleiðis. Vissirðu
að bróðir nýja gítarleikarans okk-
ar er nýi gítarleikarinn í Kiss? ”
Ég neitaði því og roðnaði af
skömm yfir fáfræði minni. „Og á
ég að segja þér eitt í viðbót? Max,
millasonurinn, á kærustu, og
veistu hver hún er? Ha? Hún er
dóttir Peter Sellers og Britt
Ekland. Þetta er hlutur sem þú
færð bara að vita af því að þú ert
langskemmtilegasti blaðasnápur-
inn sem hefur talað við mig hér á
landi.”
Samtalið fór nú að leiðast inn á
ýmsar vafasamar brautir,
kvennafarssögur og margt fleira
sem á ekki heima í virðulegu
blaði. Sebastian var bæði blankur
og svangur þannig að við fórum út
að borða — á minn kostnað. Það
endaði nú með því að leiðin lá á
næturklúbb því að auk þess að
vera saddur og blankur var hann
óttalega einmana og þurfti hvort
sem er að halda sér vakandi þang-
að til hann flygi til Svíþjóðar. Á
klúbbnum varð honum að orði í
þriðja skiptið: „Ég hef aldrei á
ævi minni séð eins mikið af æðis-
legu kvenfólki og hér á íslandi.
Guð, hvað þið eigið gott. . . ”
30. tbl. Vikan 6X