Vikan - 27.12.1984, Blaðsíða 22
Ástin breyttist á skömmum
tíma í dómstólaþvarg milli
Marlons Brando og fyrstu
konu hans, önnu Kashfi.
um til aö þenja þær út og brúnar
kontaktlinsur yfir gráu augunum,
lék mexíkanskan byltingarsegg á
móti Anthony Quinn. Movita er
móðir tveggja barna hans,
Rebeccu og Michael — en Michael
er jafngamall Christian, syninum
sem hann á meö Önnu Kashfi.
Nautpeningur og
lönd
Öll þessi ár, sem Brando var
stöðugt aö verða frægari og auð-
ugri, afhenti hann föður sínum
samviskusamlega launin sín, að
undanskildum 50 dollurum á viku.
Fyrir þessa 50 dollara liföi hann
eins og ræfill með þvottabirninum
sínum í subbulegri íbúð í New
York. Marlon Brando eldri sá um
fjárfestingar fyrir son sinn og
keypti í hans nafni nautpening og
lönd í Nebraska fyrir allt sem til
féll. En það var í íbúðarkytruna í
New York sem 17 ára gömul dóttir
fransks fiskimanns, Josanne
Mariani Berenger, heimsótti hann
áriö 1954:
„Marlon setti lágværa, seiöandi
tónlist á fóninn og kom svo til mín
meö flösku af ilmolíu. Hvorugt
okkar mælti orð af vörum meðan
hann lagði trefil yfir borðlamp-
ann, tók hægri hönd mína í vinstri
hönd sína og smurði á okkur hend-
urnar með olíunni. Svo tók hann
trefilinn, heitan af lampanum, og
batt hendur okkar saman. Svo dró
hann mig að sér og kyssti mig
undurblítt.”
En Josanne komst fljótt aö því
að þessi blíði elskhugi, sem lagði
stund á búddisma, var líka
„kvalinn og klofinn” og gerði
stúlkur svo óhamingjusamar að
þær vildu ekkert nema deyja. En
þessi kvikmyndastjarna, sem
konur dáöu svo mjög og fékk
einkunnina „óviðjafnanlegur”
sem elskhugi, gat enga elskað
með hjartanu eftir því sem hann
sagði Josanne einhvern tíma.
Fráfall móður hans varö honum
þungt högg. Þau voru alltaf mjög
nátengd. Þegar hún dó sagði
Brando við Josanne: „Veistu að
ég gat aldrei fengið mig til að
segja henni hvað mér þótti vænt
umhana.”
Og Josanna heldur áfram aö
rifja upp endurminningarnar:
„Eitt kvöldið, þegar viö vorum
að dansa, náfölnaöi hann allt í
einu. Hann gerði sér grein fyrir að
ég var meö ilmvatnstegund sem
móðir hans hafði notað kvöldið
sem hún dó. „Þetta er hræðilegt!
Ég þoli það ekki,” sagði hann.
„Ég held að við ættum að
skiljast.”
Kóngulær á lofti
Josanne veslingurinn komst að
því að lífiö með Brando var stund-
um ljúft, stundum skelfilegt. Hún
vissi aö hann hafði aðrar konur
jafnframt, en hún þoldi ekki þegar
hann hamraði á bongótromm-
urnar eða geðveikislega hegðun
hans á köflum — eins og að halda
lifandi kóngulóm yfir andlitum
sofandi gistikvenna uns þær
vöknuðu meö hryllingsveini. Um
skeið bjuggu þau Josanne og
Marlon saman og voru meira að
segja trúlofuð þar til hann
sparkaði henni. Árið 1958 var því
öllu lokið. Hann gat einhvern
veginn ekki haldiö varanlegt
ástarsamband við konur. Hins
vegar hafði hann líka notið ásta
austrænna kvenna. Sú fyrsta var
japanska balletmærin Marie Cui
sem hann kynntist við tökuna á
Tehúsi ágústmánans.
Svo kom hann auga á stúlku
með austrænt yfirbragð. Hún
sagðist heita Anna Kashfi og vera
indversk. Og rómantíkin tók að
blómstra. Ekki kom það þó í veg
fyrir að Brando brygði ærlega
fyrir sig betri fætinum í París
ásamt Dean Martin þegar þeir
unnu saman að töku myndarinnar
Ungu ljónin. Þessir tveir gleði-
menn voru sífellt á skemmti-
stöðum borgarinnar með
frönskum fegurðargyðjum. Einu
sinni sátu þeir tveir á bar George
V hótelsins meö tveimur
smástirnum. Brando var aö sötra
te, Martin eitthvað sterkara. Allt í
einu, og alveg óviljandi, hvolfdi
Martin tebollanum ofan í klofið á
Brando, með sjóðheitu teinu.
Marlon stökk upp, öskrandi og for-
mælandi, leysti ofan um sig í flýti
og sprautaði úr sódakönnu yfir
kalónuð líffærin. Síðan voru
brunasárin meðhöndluð á
kaþólskum spítala og það leyndi
sér ekki að nunnurnar þyrptust að
þegar skipt var um umbúöir á
gullinu.
En heima í Hollywood
blómstraði Kashfi-Brando róman-
tíkin. Og 11. október 1957 gengu
þau í hjónaband. Þá sprakk
blaðran. Illgjarnir blaðamenn
afhjúpuðu þá staðreynd að vega-
bréf Önnu var gefið út á nafn Joan
O’Callaghan frá Cardiff í Wales.
Brando varö brjálaður. Tveim
mánuðum seinna var hjónabandið
farið í hundana og hin nýja frú
Brando tilkynnti aö hún væri ólétt.
Sjö mánuðum seinna fæddist
Christian sonur þeirra. Brando
viöurkenndi að hann hefði gengið í
hjónaband bara til þess að fá
skilnaö. Anna kallaði hann „tillits-
lausan sjálfselskubrjálæðing”.
Urskurðurinn 1959, þegar
Brando var dæmdur til að greiða
Önnu 560 þúsund dollara í
skilnaðarbætur, var aðeins fyrsti
áfanginn í 14 ára orrustu þeirra
fyrir rétti og utan hans.
Svo kom tímabil með hinni
unaðslegu France Nuyen, fransk-
kínversku stúlkunni sem lék hina
lánlausu Liat í South Pacific.
Þegar France frétti aö hann væri
að leika sér með öðrum lódökkum
ljúflingum við töku myndarinnar
One-Eyed Jack, sem hann
stjórnaði líka, flaug hún frá
Frakklandi til Bandaríkjanna til
að reyna að vinna hann aftur.
Henni tókst það í nokkrar vikur en
tapaði fyrir bragöið hlutverki sínu
í The World of Suzie Wong sem
hún hafði leikið á sviði með eftir-
minnilegum glæsibrag.
A tlaga með hnífi
Allan þann tíma sem verið var
aö taka þessa mynd lögðust
atvinnuvandamál Brandos —
hann fór fjóra mánuði og fjórar
milljónir dollara fram úr áætlun
— á eitt með opinberri baráttu við
Önnu Kashfi út af syni þeirra, sem
þá var þriggja ára. Sagt er að hún
hafi ruðst inn í íbúð hans, komið
aö honum með annarri konu og
lagt til hans með hnífi. Þegar á
allt er litiö má furöulegt teljast að
Brando skyldi lánast að ljúka við
þessa kvikmynd. Því jafnframt
virðist svo sem hann hafi leyni-
lega gengið að eiga sína gömlu
vinkonu, Movitu, sem hann átti
soninn Michael með. Og Anna
Kashfi var í hernaöi og notaði
þetta til að sanna að Brando væri
22 Víkan 46. tbl.