Vikan


Vikan - 27.12.1984, Side 26

Vikan - 27.12.1984, Side 26
Saga hljómplatnanna Texti: Anna Þegar Thomas Alva Edison reyndi hljóöritann sinn í fyrsta sinn, árið 1877, varð honum að orði: „Ég er alltaf hálfsmeykur við hluti sem virka í fyrsta skiptið sem þeir eru notaðir.” Hljóðritinn var ekkert sérlega traustvekjandi að sjá, minnti fremur á apparat til að afhýða greipaldin en tóngjafa. Engu að síður var hann nothæfur tíl að hljóðrita (með því að rispa málmhúðaðan flöt) og spila barnalagið sem Edison söng inn, „Mary Had a Little Lamb.” Edison sjálfur heyrði minnst af því sem afsprengi hans sagöi því þó hann væri aðeins þrítugur að aldri var hann orðinn svo gott sem heyrnarlaus. Samt sem áður hafði hann næga trú á fyrirtækinu til að stofna um það félag og tímaritið Scientific American sýndi því áhuga. Fólk flykktist í samkunduhús til að fá að heyra í tækinu sem gat talað. Tæknin hélst lítt breytt í nokkra áratugi. Edison var kallaöur töframaður en svo hvarf nýja- brumið smám saman. Edison sneri sér að uppfinningu á ljósa- peru í staðinn. Annar hópur uppfinninga- manna, með Alexander Graham Bell í broddi fylkingar, tók upp þráðinn og um 1885 var sá hópur búinn að finna upp vaxborin kefli í stað tinþynnanna sem entust oft ekki nema fimm spilanir. Vaxkefl- in þoldu miklu meiri spilun. Um 1896 var Edison kominn í spilið á nýjan leik og nú sneri hann sér að fólkinu með miðlungskaup- máttinn sem gat reitt fram fimmtíu dollara fyrir grammófón til heimilisnota. Ungur þýskur innflytjandi, Emile Berliner, átti þó næsta leik er hann fann upp tækni til að skera rákir í sink- plötur og steypa síðan nákvæmar eftirlíkingar af þeim í hart gúmmí. Utkoman var miklu betr: en á keflunum. Auk þess hentuði 26 Vikan 46. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.