Vikan - 27.12.1984, Blaðsíða 44
■HHi ym
Framhaldssaga N
blóðslettur á húð hans. Svo var
það gærujakkinn og kryppan og
loks hauskúpa og efri skoltur
dauða og trygga hundsins hans.
Emma leit undan við þá sjón.
„Þú veröur að taka riffilinn
minn. Veistu hvernig á aö skjóta
af honum?”
Hún kinkaði kolli. „Ég drap
mann með svona vopni,” hvíslaöi
hún.
„Þá veistu hvernig þú átt að
fara að ef svo ótrúlega vill til að
rauðskinnarnir sjái í gegnum her-
bragð mitt. Það eina sem þú þarft
að gera er að setja hlaupið viö
hjarta þitt og...”
„Ég geri ekkert slíkt! ” tilkynnti
Emma. „Þetta eina skot skal
binda enda á líf eins þessara and-
skotans villimanna — og þeir geta
farið með mig eins og þeim
sýnist!”
„Þarna talaöi sönn hefðar-
kona!” sagði Yves. „Emma, þú
átt engan þinn líka. Þú ert einstök.
Oviðjafnanleg.”
Hún fylgdi í fótspor hans upp
skriðuna. Hún fór varlega, líkt og
hann haföi gefið henni fyrirmæli
um, til að velta engum steini úr
stað á uppleiðinni. Handan við og
fyrir ofan skriðuna varð léttara að
klifra. Þau fóru upp brattan klett
sem tími og veður höfðu klórað í
nokkurs konar stiga. Hann fór
hægt, tók tillit til hennar, en
Emma átti í engum erfiðleikum
með að fylgja honum, jafnvel þó
hún þyrfti að rogast með riffilinn
og aðrar föggur. Svo voru þau
komin upp úr gilinu og á sléttuna
þar sem írókarnir áttu sér búðir.
Hann lagði höfuð sitt þétt að
höfði hennar og hvíslaði í eyra
henni: „Vertu hérna kyrr. Undan-
komuleið okkar er í þessa átt —
eftir klettabrúninni. Um leið og ég
er búinn aö skjóta írókunum
ærlega skelk í bringu skaltu fara
hér niður og ég kem á eftir. Ef
mér mistekst — ef þeir þekkja
mig sem þann sem ég er — skjóttu
þá! Og þar sem þú ert staðráöin í
að eyða því sem eftir er ævinnar
sem húsþræll og hóra heldur en að
deyja mæli ég með því að þú mið-
ir á Svörtu-Kráku, höfðingjann,
hávaxna manninn þarna. Hann er,
fyrir utan aö vera sá auvirðileg-
asti og svikulasti náungi sem ég
hef nokkru sinni augum litið, svar-
inn óvinur ættjaröar þinnar. En ég
vona að til þess komi ekki,
Emma.”
„Og ég sömuleiðis!” hvíslaði
hún ástríðufullt.
„Einn koss — til vonar og
vara.”
„Taktu þá af þér þennan skelfi-
lega haus.”
Hann hlýddi. Varir þeirra
mættust.
„Eitt enn,” sagði Yves. „Ekki
taka þátt í vælinu sem ég ætla að
skemmta rauðskinnunum með. Ef
þeir heyra kvenmannsrödd vita
þeir að við erum'ekki illir andar.”
„Af hverju?”
„Af því aö í helgum bókum
rauða mannsins eru allir illir
andar karlkyns. Við skulum fara.
Haltu þig vel úr augsýn, Emma. ’ ’
í bjarmanum frá eldinum sáu
þau um það bil tylft manna sitja
umhverfis eldinn. Hávaxni
höföinginn var hærri en allir hinir,
jafnvel þó hann sæti á hækjum
sér. Sitt hvorum megin við eldinn
voru tveir trumbuslagarar með
háa trumbu milli hnjánna og slógu
á hana síbreytilegan takt, hvorn
gagnstæðan við takt hins. Áhrifin
frá sjónarhomi Emmu á gilbrún-
inni — dökkir, álútir menn,
skuggamyndir í logandi rauðu,
ákafur trumbuslátturinn — voru
yfirþyrmandi villimannleg. Hún
greip þéttar um langan riffilinn,
miðaði á breiða bringu íróka-
höfðingjans.
Naumast var minna uggvænleg
skelfileg veran sem laumaðist að
hópnum: eyrun reist, álút, skreið
nærri því á fjórum fótum, elds-
bjarminn umlukti loðinn skrokk-
inn í björtum geislabaug. Stúlkan
horfði á og fann að hún var aftur
komin með gæsahúö.
Svona tíu skref frá varðeldinum
nam fyrirbærið staðar, reis upp í
fullri hæð, með kryppu á baki,
kastaði hræðilegu höfðinu aftur og
rak upp nístandi, skjálfraddaö
vein, langdregið ýlfur sem kyrröi
trumburnar og beindi allra augum
leitandi í skelfingu í myrkrið utan
við bjarmann af varöeldinum.
Sumir risu á fætur — hægt, eins
og menn sem vakna af martröö.
Hinir sátu kyrrir, hnöppuðust þétt
saman í skjóli af eldinum. Þeir
skiptust á kokmæltum einsat-
kvæðisorðum: „Hver.... ? Hvað.
.. ? Hvar.... ?” Ekki einn einasti
hermaður lét sér koma til hugar
að fara út í myrkriö og leita að
uppsprettu þessa skelfilega óps.
Emma sá Yves hreyfa sig aftur
fram á við. Hægt. Eitt skref í einu,
mat fjarlægðina frá eldsbjarman-
um svo að áhorfendum þætti hann
koma allt í einu út úr myrkrinu
líkt og opinberun.
Og það gerði hann. Síðasta
titrandi ýlfrið, handalyfting,
höfðinu meö reist eyrun kastað
aftur og annaö þurfti ekki. Þegar
rauðskinnarnir sáu þessa opinber-
un ráku þeir upp skelfingarvein og
féllu á kné. Svarta-Kráka höfðingi
var síöastur til aö krjúpa en hann
kraup — hægt, treglega, stoltur
maður sem laut kalli trúarsiöa.
Mið Emmu fylgdi honum eftir og
fingur hennar var á gikknum.
Það varð þögn. Ekkert heyrðist
nema brakiö í logandi eldiviön-
um. Yves kom léttfættur til henn-
ar aftur.
„Þeir bæra ekki á sér í nótt,”
hvíslaði hann. „Komdu, Emma.
Leiðin er okkur opin — til
dögunar.”
Þau flýttu sér eftir gilbrúninni.
Hann fór fyrir niður meö ánni.
Þau höfðu veriö á feröinni í hálf-
tíma án þess að segja nokkuð
þegar trumbuslátturinn upphófst
aftur — hraðari og með trylltari
takti en áður.
„írókarnir verða að biðjast
fyrir fram í dögun,” sagði veiði-
maðurinn. „Þeir biðja um eld og
trumbur til að halda þessum illa
anda frá.”
Mílu fjær eða svo breikkaði
gilið og dökkur borði lækjarins
fyrir neðan þau breikkaði líka.
Bjarminn frá öðrum varðeldi
birtist milli trjánna fyrir neðan
þau, flöktandi eldfluga sem spegl-
aðist í árstraumnum. Yves benti
niður.
„Þessar búðir marka endann á
gilinu og takmörk bannsvæðis-
ins,” sagði hann. „Þarna niðri
verður rauðskinni á bak við hvern
einasta runna, í leyni í hverri laut,
því þetta er leiðin sem Svarta-
Kráka ákvað að við hlytum að
fara ef við slyppum undan illu
öndunum.”
Emma gægðist niður. Klettarnir
voru snarbrattir og alveg ókleifir.
Það var auðvelt að sjá hvernig
þau hefðu verið veidd eins og
rottur í gildru, augljóst á svip-
stundu að herbragð Yves hafði
verið eini kosturinn.
Hún tók um handlegg hans.
„Ég hefði átt að treysta þér
oröalaust frá upphafi,” sagöi hún.
„Þú bjargaðir okkur.”
„Ekki ennþá,” svaraði hann.
„Bíddu þar til dagar. Bíddu þar til
þeir finna slóðina okkar og Svarta-
Kráka áttar sig á því hvernig við
lékum á hann. Það veröur engin
hvíld fyrir okkur í nótt, Emma,
enginn ástarleikur í svefnpok-
anum. Viö göngum í alla nótt. Og
viö göngum hratt eða ég verð fleg-
inn og steiktist yfir hægum eldi
annað kvöld og þú hjákona í tjaldi
einhvers írókahermanns.”
TVEIMUR STUNDUM síðar voru
þau á hraðri niðurleið á skógi
þakta sléttu sem lækurinn — sem
nú var orðinn svo breiöur að hann
var á, þó hann væri enn grunnur
og grýttur — streymdi um, beinn
sem ör. Þau héldu sig á bakkan-
um, gengu hratt. Að minnsta kosti
gekk veiðimaöurinn; Emma
skjögraði og hljóp við fót til
að hafa viö honum. Viö fyrstu
merki um grænbláa birtu á
austurhimni stansaði Yves. Hann
tók um hönd Emmu, leiddi hana út
á grynningarnar og sagöi henni að
sitja þar á flötum steini og hvíla
sig þar til hann kæmi aftur. Svo óð
hann áfram niöur eftir ánni, með
vatnið í hné, þar til hann var
horfinn sýnum. Hann kom ekki
aftur um hríð og Emma sá að
hann hafði baðað sig og klætt sig
aftur í hreinar brækur og stígvél.
„Ertu búin að hvíla þig og
tilbúin aö halda áfram, Emma?”
spuröi Yves.
„Já, Yves,” sagði hún.
„Irókarnir — eru þeir langt á eftir
okkur?”
„Þeir hafa kannski ekki enn
fundið slóð okkar því það er
naumast orðið bjart,” svaraði
hann. „Um leið og þeir eru búnir
að því — já, þá koma þeir á eftir
okkur svo hratt sem þeir geta
hlaupið og sumir ungu veiði-
mennirnir geta hlaupið hraðar en
hjörtur á langri vegalengd. Aftur á
móti,” hélt hann áfram og studdi
Emmu af steininum niður í vatnið,
„er ég búinn að gera falska slóð
framundan. Hún gæti tafiö fyrir
þeim klukkustund eða svo.
Komdu!”
Á HÁDEGI voru þau farin frá ánni
og stefndu í norður. Áin haföi tekiö
krappa beygju til hægri og birtist
aftur, útskýrði Yves, á leið þeirra
einhvern tíma síðar um daginn.
Þá yrði hún orðin breitt fljót,
þverá St. John-árinnar sem bæri
kanóinn í átt að hinni miklu St.
Lawrence, hliðinu að norðurhluta
Ameríku, þar sem Quebec-borg
reis hátt yfir víðáttumiklum
vötnunum. Kanóinn var falinn á
staðnum sem þau voru á leiðinni
til, sagði hann henni. Og hann
vonaði að enginn hefði fundiö
hann.
Hann leyfði henni að hvílast
skömmu eftir hádegi og gaf henni
bita af þurrkuðu kjöti að japla á.
Hann skeytti ekki um hvíld en
klifraði upp á lágan hól í grennd-
inni og horföi til baka, til
hæöarinnar yfir gilinu sem enn
mátti greina yfir trjátoppunum.
44 Vikan 46. tbl.