Vikan - 25.04.1985, Side 7
lanna Litið inn til listamanna Litið inn til listamanna Litið inn
inn verk Sigríðar — damask-
vefnaður. Leifur Breíðfjörð teikn-
aði kapelluna, gerði steindan
glugga og hannaði alla kirkjumuni
— kirkjuvefnaðurinn er sameigin-
legt verk Sigríðar og Leifs. Þessi
látlausi vefnaður þykir falla
einstaklega vel inn í heildarmynd
kapellunnar.
„Ég var svo heppin kvöldið áður
en ég lenti í slysinu að þá hafði ég
klippt niður hökulinn, annars hefði
ég þurft að bíða meö vefnaöinn í
eitt ár, en þetta rétt slapp.”
Draslið hleypur ekki frá þér
Vinnustaður Sigríðar í vefnaðin-
um er heima á heimilinu þar sem
einnig bíða heimilisstörf og tveir
synir í grunnskóla. Og eins og svo
margar konur eru spurðar þegar
komið er að þessu með að sameina
vinnuna og heimilisstörfin þá lauk
heimsókninni með þessari spurn-
ingu: Gengur þetta og það með
vinnustaðinn heima í svefnher-
bergi?
„Já, þaö hafa margir spurt
hvort það sé ekki erfitt að vera
með vefnaðinn heima og sumir
hafa spurt mig hvort mér leiðist
ekki að vinna þetta hér heima.
Þetta gengur mjög vel hjá mér.
Ég reyni að ná inn ákveðnum
klukkustundafjölda á dag og er
um leið dálítið stíf við sjálfa mig,
en með því að gera þetta svona er
þetta líka virt sem vinnan mín hér
heima. Það er heilmikil kven-
réttindapólitík rekin hér, ég bý
með þremur körlum og ætlast til
að þeir leggi sitt af mörkum.
Strákarnir eru aldir þannig upp að
það á að vera sjálfsagt að þeir taki
þátt í heimilisstörfunum.
Það þarf auðvitað að temja sér
aga til að hlutirnir gangi upp en ég
held að hafi maður ekki þennan
aga heima þá hafi maður hann
ekkert frekar á vinnustað úti í bæ.
Mér finnst líka gott að þurfa ekki
að missa af þeim mannlegu
tengslum sem heimilið býður upp
á. Sumir segjast eiga erfitt með að
vinna heima vegna þess að þá fari
of mikill tími í að taka til. Ég verð
líka að viðurkenna að ég skil þessa
afstöðu því ég hugsaði eins á
meðan ég var aö kenna en ég geri
það ekki lengur. Drasliö hleypur
ekki frá þér. Ég nýt þess sem ég er
að gera viö vefstólinn og svo er
bara að setja góða plötu á fóninn
og drífa tiltektirnar af í einum
grænum á eftir. En mikið er þetta
annars merkilegt. Það eru alltaf
við konurnar sem erum spurðar
að þessu hvernig þetta gangi en
aldrei karlmennirnir. Hins vegar
höfum við Leifur oft verið spurð
annarrar spumingar og hún er sú
hvort við séum ekki orðin leið
hvort á ööru að vinna svona mikið
saman. Satt best að segja þá hefur
okkur komið mjög vel saman og
svona samvinna hún gefur mjög
mikið. ’ ’ Heimsókninni var lokið og
Sigríður þotin til Þýskalands til að
aðstoða Leif sem þar var að vinna
að glugga í St. Giles dómkirkjuna
í Edinborg í Skotlandi.
Texti: Guðrún Ljósmyndir: RagnarTh. o.fl.
1 , V.
P\ \ V Ji
y ii
■ * ..*»
Íí/L' "
JKV
ik. xj|
■ V* '
17. tbl. Vikan 7