Vikan - 25.04.1985, Blaðsíða 31
Umsjón: Geir R. Andersen
Ævisaga Judy Garland
Mynd, byggð á samnefndri sögu, Rainbow.
Framleiðandi: Peter Dunne.
Leikstjóri: Jackie Cooper.
Aaðalleikarar: Andrea McArdle (Judy Garland),
Don Murray, Michael Parks,
Rue McClanhan, Donna Pescow
og sérstakur gestaleikari í
myndinni er Martin Balsam.
Sýningartími er99 min. isl. texti.
Einkaréttur á Íslandi: JS Video
Þetta er saga söngkonu sem hreif
milljónir manna á ferli sinum. Þessi
söngkona er Frances Gunn en fólk
man eftir henni sem hinni ódauðlegu
Judy Garland.
Regnboginn veitir innsýn í líf Judy
frá því að hún rís upp úr baráttunni
sem revíusöngkona, starfsferil hennar
hjá MGM — og myndin endar á aðal-
hlutverki hennar í Galdrakarlinum frá
Oz.
Sagan hefst þegar Judy Garland er
10 ára gömul og býr ásamt fjölskyldu
sinni í Kaliforníu. Móðir hennar, sem
vill skapa hinum þremur dætrum
sínum frægö og frama, tekur að fara
meö þær í mánaðarferðir til Los
Angeles en skilur fööur þeirra eftir.
Þannig byrjar frami Judy og einnig
— því miður — líf hennar sem var fullt
af vonbrigöum og óhamingju.
Myndin sýnir hin mörgu fjölskyldu-
vandamál hennar sem hún þurfti að
glíma við og einöngruðu hana loks frá
öllum sem umgengust hana.
En þrátt fyrir óhamingju sína fann
Judy tímabundna lausn frá henni með
söng sínum. Þaö var fyrir hana eini
tjáningarmátinn til aö túlka hinar
sönnu tilfinningar sínar.
Þetta er mynd sem andstæðurnar
túlka að verulegu leyti. Gaman og
alvara. Skemmtileg er „senan” þar
sem hún rabbar við strákinn sem lifir í
hugarheimi sínum — aðallega með því
að þykjast vera einhver fræg persóna
— þessa stundina til dæmis Mickey
Ronney.
En mæðgurnar eru ekki alltof sam-
mála þar sem þær eru á sífelldum
ferðalögum vítt og breitt um landið og
Judy saknar föður síns mjög. Hún
veröur uppveöruð þegar hann kemur
eitt sinn í heimsókn þar sem
mæögurnar eru saman í söngferðalagi.
En þar kemur aö Judy veröur fyrir
mikilli sorg þegar faðir hennar deyr.
Hún er hörö af sér og andstæða við
systur sínar. Og áfram líöur tíminn.
Við heyrum Judy syngja mörg þekkt
lög sem hún kynnti, t.d. Stormy
Weather og mörg, mörg fleiri. Flest
þeirra heyrast enn og eru í fullu gildi.
Leikarinn Martin Balsam leikur
frændann, hinn ráðgefandi og um-
hyggjusama frænda. Martin Balsam
er einn þeirra sem ekki kemur nálægt
öörum en góðum myndum.
Somewhere, over the Rainbow... er
þekktasta lagið sem Judy Garland
söng. — Einhvers staðar, handan regn-
bogans... hvers vegna ekki ég líka?
spyr Judy í lokalagi myndinnar. —
Hugljúf mynd fyrir alla f jölskylduna.
Einkaréttur: JS Video.
Framleiðandi: Linda Gottlieb.
Handrit: Jane-Howard Hammerstein.
Byggð á sögu Bette Greene.
Leikstjóri: Michael Tuchner.
ísl. texti.
Aðalleikarar: Kristy McNichol, Bruce Davison,
Esther Rolle, Michael Constantine
og Barbara Barrie.
í seinni heimsstyrjöldinni voru
margir þýskir hermenn handteknir í
Evrópu og fluttir í fangabúöir í Banda-
ríkjunum. Þetta er saga um einn þess-
ara hermanna, um sumar í Georgíu og
um stúlku sem hann hitti.
Sögusviðiö er lítið þorp í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna á stríðs-
árunum. Hópur þýskra stríðsfanga á
að dveljast í fangabúöum utan viö
þorpið við lítinn fögnuð þorpsbúa.
Patty er ung stúlka af gyðingaættum
og býr hjá foreldrum sínum. Faöir
hennar hefur alltaf lagt á hana mikla
fæð án þess að hún skilji hvers vegna.
Þegar myndin hefst standa þorps-
búar á brautarstöðinni þar sem lestin
með fangana þýsku á að stoppa. Fang-
arnir, bláklæddir, stíga úr lestinni.
Það er hrópaö á eftir þeim þar sem
þeir halda af stað í varðhaldið.
Einn fanganna, Anton, strýkur og
felur sig í mannlausu húsi meö hjálp
Patty. Herinn og FBI (bandaríska
leynilögreglan) leita stöðugt stroku-
fangans sem bíöur eftir tækifæri til
þess aö komast í burtu.
Þau Anton og Patty verða miklir
mátar, enda hefur enginn sinnt henni
áður sem skyldi. Strokufanginn,
Anton, er um margt kyndugur náungi,
en vel skyni gæddur. Hann talar góða
ensku því faðir hans hafði menntast í
Englandi og síðan kennt syninum. Og
nú var hann kominn til Ameríku — í
miðjustríðinu!
Patty veröur að halda stillingu sinni
þótt hún ein viti um felustaö Antons
sem allirleita.
Þetta er um margt óvenjuleg mynd,
bæði að efni og leik. Margar myndir
hafa verið gerðar um flótta og undan-
komu hermanna og fanga banda-
manna í heimsstyrjöldinni síðari í
Evrópu.
En hér er sögusviöið nýstárlegt. Fáir
vita að þýskir fangar voru fluttir til
Bandaríkjanna og þeir reyndu líka að
flýja. . .
„Ég vissi að við gætum oröið vinir,”
segir Patty við fangann, Anton, sem
ekki trúir aö hún hafi ekki þegar sagt
yfirvöldunum frá felustað hans.
Það er brugðið upp ýmsum myndum
úr gyöingasamfélagi því sem Patty
kemur úr og viöræður hennar við
þýska fangann eru heimspekilegar á
stundum.
En mun vinátta þeirra veröa yfir-
sterkari ímugust hennar á ódæöis-
verkum nasista? Þetta er vand-
meðfarið efni, en í höndum prýðilegra
leikara. — Mynd fyrir alla aldurshópa.
Sumar með þýska
hermanninum
17. tbl. Víkan 31