Vikan


Vikan - 25.04.1985, Blaðsíða 32

Vikan - 25.04.1985, Blaðsíða 32
Cyndi Lauper fæddist í Queens-hverfinu í New York 20. júní 1953. Hún á eldri systur og yngri bróður. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og hún ólst upp hjá móður sinni sem vann hörðum höndum til að sjá fyrir börnunum. Eins og hjá mörgum af hennar kynslóð kviknaði tónlistaráhuginn þeg- ar Bítlarnir komu fram á sjónarsviðið. Cyndi fékk kassagítar að gjöf frá systur sinni og fór að spila á götum úti og í skennmtigörðum og námið fór fyrir ofan garð og neðan. Sautján ára að aldri fór Cyndi að heiman. ,,Það var kominn tími til, ég var búin að vera að pakka niður síðan ég var fjórtán ára," segir Cyndi. Cyndi hafði þá þegar ákveðið að verða tónlistarmaður því húsmóðir gat hún ekki hugsað sér að verða. 1974 fór hún að syngja bakraddir með ýmsum hljómsveitum og hún söng og söng. Svo fór nú samt að Cyndi missti röddina og kom ekki upp einu orði en hún var ekki á því að gefast upp heldur fór til talkennara sem á einu ári kom röddinni í lag. 1978 kynntist Cyndi saxófónleikaranum John Turi. Þau stofnuðu hljómsveitina Blue Angel sem starfaði í tvö ár og gaf út eina plötu en náði litlum vinsældum. Umboðsmaður hljómsveitarinnar fór í mál við þau og Cyndi fékk sig dæmda gjaldþrota. Nú var komið að því að Cyndi færi út í sóló og með hjálp góðra manna komst hún á samning hjá CBS. Fyrsta sólóplatan, She's so unusual, sló hressilega í gegn og vídeómyndin, sem fylgdi laginu Girls just wanna have fun, var geysilega mikið sýnd hjá amerískum sjónvarps- stöðvum og Cyndi var orðin fræg. Á eftir fylgdu lögin Time after time, She Bop o.fl. Cyndi er án efa ein allitríkasta persóna poppsins og það verður gam- an að fylgjast með henni í framtíðinni. Hún er komin til að vera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.