Vikan


Vikan - 25.04.1985, Blaðsíða 29

Vikan - 25.04.1985, Blaðsíða 29
þeirra er sóttu um gítarleikara- stöðuna í bandinu. Hann segir að við prufurnar hafi hinir látið það koma skýrt fram að hljómsveitin ætti að líta vel út, menn ættu að vera smart og huggulegir. „Fínt,” sagöi ég, „mér finnst gaman að vera snyrtilegur og mála mig í framan.” Andy var ráðinn. En það vantaði ennþá söngvara. Barstúlka nokkur á Rum Runner sagði strákunum frá fyrrverandi kærasta sínum sem var ljóðskáld gott og stundaði um þær mundir leiklistarnám við Birminghamhá- skóla. Þeir buðu pilti í prufu og það var engin smágræja sem gaurinn sá mætti í, bleikar hlé- barðabuxur, brúnn stuttjakki, dökk sólgleraugu og támjóir skór. Nick segir um þennan atburð: „Hann sagðist heita Le Bon og ég hugsaði: Góður guð, hann getur ekki heitið Le Bon.” En þrátt fyrir nafnið var Simon Le Bon ráðinn og segir sagan að hann hafi tekið þetta ansi létt í byrjun en hætt því er hann sá aö hinum var full alvara með hljómsveitina. jran Það er komið fram á árið 1980, Duran Duran er fullskipuð og þeir æfa stíft og spila á Rum Runner. Þeim er boðið að vera upphitunar- grúppa fyrir Hazel O’Connor og til að fjármagna það selur Michael Berrow húsiö sitt. Hljómleika- ferðalagið er ekki fyrr hafið en Duran byrjar að vekja áhuga plötufyrirtækja, það er svo EMI fyrirtækið sem fær Duran á samn- ing. I febrúar 1981 kemur út fyrsta smáskífa Duran Duran, það er lagið Planet Earth. Því er fylgt eftir með hljómleikahaldi um Bretland og nú er Duran aðalnúm- erið. Tvö lög fylgja þar á eftir, Careless Memories og Girls on Film, vídeómyndir með lögunum koma í kjölfarið og vekja þegar nokkra athygli, sérstaklega Girls on Film. Fyrsta stóra platan, sem ber nafniö Duran Duran, kemur út í júní og enn á ný er farið í hljómleikaferð. Að henni lokinni fara strákarnir í stúdíóið að vinna að næstu plötu. Henni var gefið nafnið Rio og kom hún út í maí ’82. Á henni eru lögin Hungry Like a Wolf, Save a Prayer og Rio, stór- góðar og vandaðar vídeómyndir fylgdu að sjálfsögðu. Þær eru teknar á Sri Lanka og Antiqua í steikjandi sól, brakandi þurrki og flottu umhverfi með snekkjum og fögrum meyjum og fór þetta víst eitthvað fyrir brjóstið á fólki í því votviðrasama Englandi. Nú var kominn tími til að leggja heiminn að fótum sér, alheims- reisa hófst í aprQ og stóð fram í desember með litlum hléum. Þeir léku í Ástralíu, Japan, USA, Kanda, Svíþjóð, Noregi, Finn- landi, Danmörku, Þýskalandi, Hollandi, Belgíu, Frakklandi og auðvitað í Bretlandi. I mars 1983 kom út lagið Is There Something I Should Know? og fór það beinustu leið á toppinn í Bretlandi. I sama mánuöi kemur út vídeó með lögunum sem að framan eru talin og þremur að auki, Lonely in Your Nightmare, Sirrton Le Bon, 27. október 1958. Roger Taylor, 26. apríl 1960. John Taylor, 20. júní 1960. Andy Taylor, 16. febrúar 1961. Nick Rhodes, 8. júní 1962. uran Night Boat og The Chauffeur, en meðan á þessu stendur eru þeir félagar í Suður-Frakklandi og hafa það náðugt. I júní hefja þeir upptökur á þriðju stóru plötunni en snúa til Englands og halda tvenna góðgerðarhljómleika, aðra í Domino leikhúsinu í London, þar sem Karl og Díana kóngafólk voru heiðursgestir, og hina á heima- velli Aston Villa í Birmingham. Þá fóru drengimir til Ástralíu, luku við plötuna og æfðu fyrir nýja heimsreisu sem hófst í nóvember. Um líkt leyti kom þriðja platan út og ber hún nafnið Seven and the Ragged Tiger, í október hafði komið út lagið Union of the Snake ásamt stórgóðri vídeómynd. Myndin var mikið sýnd í sjónvarpsstöð í Bandaríkjunum sem heitir Music TV og sýnir eingöngu popptónlist allan sólar- hringinn og má Duran Duran þakka þessari stöð að miklu leyti þær gífurlegu vinsældir sem hún hlaut í Bandaríkjunum á þessu hljómleikaferöalagi. Þeir í Duran Duran voru nefnilega orðnir fræg andlit um allt land áður en þeir komu þangað í þetta sinn. Smáskífa með laginu New Moon on Monday kom út í janúar og ekki minnkuðu vinsældirnar við það, hvað þá þegar lagið The Reflex birtist svo í apríl en um það leyti lauk hljómleikaferðinni og þá hafði Duran bókstaflega slegið í gegn út um allan heim og ekki fórum við íslendingar varhluta af vinsældunum. Nú tóku strákarnir sér verð- skuldað frí og höfðu hljótt um sig það sem eftir var ársins eða þangað til hljómleikaplatan Arena kom út og henni fylgdi lagið Wild Boys sem var eina stúdíólagiö á plötunni. Hvort tveggja sló hressi- lega í gegn og styrkti hljómsveit- ina enn betur í sessi. Einnig kom út vídeóspóla, tekin upp á hljóm- leikum, og var hún sýnd hér í sjón- varpinu fyrr á þessu ári. Hún ber nafnið Sing Blue Silver. Þann 25. nóvember síðastliðinn komu þeir Durandrengir svo saman í London ásamt fleiri frægum poppurum og sungu inn á plötu lag til styrktar hungruðum í Eþíópíu sem frægt er orðiö og um var skrifað í 12. tbl. Vikunnar. Annars voru ekki miklar fréttir af þeim félögum fyrir utan að Nick og Roger giftu sig á síðasta ári, margri ungri stúlkunni til mikillar mæðu. Lesendur poppblaðsins Smash Hits töldu brúðkaup Rogers merkasta atburð síöasta árs. John og Andy dvöldu í New York og víöar og tóku upp plötu undir nafninu Power Plant og verður sú plata líklega komin út þegar þið lesið þetta. Með vorinu er svo væntanlegt nýtt lag frá Duran og mun þaö vera titillag nýju James Bond myndarinnar sem ber heitið A View to Kill. Stór plata er væntan- leg með haustinu, þeir munu enn reyna aö bæta sig, drengirnir, hæfileikamenn og til alls vísir enda hljómsveitin ákaflega sterk heild og samstæð en þangað til verða gömlu plöturnar að ylja ykkur, það er að segja ef þið hafið ekki þegar spilað þær í gegn. 17. tbl. Vikan 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.