Vikan - 25.04.1985, Page 24
Heimilið
Hlaupiðfrá vandanum
Þaö hefur hingað til ekki þótt
fallegt að hlaupa frá vandanum.
Nú mæla margir sálfræðingar
hins vegar með því — og í orðsins og öðrum óþægindum, sem vanda-
fyllstu merkingu. Þá er átt við aö málunum fylgja, sé að skreppa út
eitt besta ráðið við kvíða, stressi aðhlaupa.
Hlaup hafa betri áhrif en tauga-
töflur, segir danski sál-
fræðingurinn Per Gronlykke í
tímaritinu Dansk Psykolog Nyt.
Hann segir margar rannsóknir
hafa leitt það í ljós að venjulegt
skokk geti hjálpað fólki aö losna
við kvíðatiifinningar og þung-
lyndi. Áhrif af góðum spretti geta
varaö í 4—6 klukkustundir og því
er nauðsynlegt að stunda skokk
eöa hlaup reglulega ef það á að
koma að gagni við varanlegum
kvíða. Einnig þarf að taka
hressilega á, ekki dugir að
skreppa í stutta gönguferð.
Rannsóknir hafa sýnt að
sjúklingar sem taka góðan
hlaupasprett minnst fimm sinnum
í viku eiga auðveldara með að
sigrast á langvinnu þunglyndi en
aðrir. Að auki fundu hlaupa-
gikkirnir sjaldnar til þreytu, reiði
og angistar.
Sömuleiðis sýna kannanir að
menn sem eru í góðu líkamlegu á-
standi eiga auðveldara með að
yfirvinna stress og komast yfir á-
föll. Ýmsum hættir til að reiöast
oft af litlu tilefni og missa stjórn á
skapi sínu og hafa þeir ekki síður
gott af góðri hreyfingu.
Nuddið hársvörðinn
Háriö vex betur ef þið örvið blóðrásina í hársverðinum með nuddi.
Nuddið fingrunum í hringi í um 30 sekúndur á hverjum stað. Flytjið því
næst fingurna og hættið ekki fyrr en allur hársvörðurinn hefur fengið
sitt. Auk þess að gera hárinu gott eykur þetta vellíöan í kroppnum.
Skemmtileg hugmynd
fyrir safnara
Fólk safnar hinum ólíklegustu hlutum en þaö getur stundum veriö
erfitt að koma þessum hlutum fyrir þannig að þeir veröi til sýnis og
ánægju en ekki læstir niðri í skúffum og skápum. Hér á myndinni hefur
sófaboröið verið útbúiö sem eins konar sýningarkassi þar sem geyma
má ýmsa hluti, svo sem fallega safngripi.
24 Vikan 17. tbl.