Vikan - 25.04.1985, Page 38
Einkaspá fyrir hvern dag vikunnar:
Hvað segja stjörnurnar
um afmælisbarnið?
Hvernig er persónuleiki þeirra sem afmœli eiga í þessari viku?
Hvar ættu þeir helst að hasla sér völl í atvinnulífinu?
Hvernig lítur út í ástamálum þeirra?
Hvernig er heilsufari þeirra háttað?
Við Irtum á það helsta sem stjörnurnar hafa að segja
um þá sem eiga afmæli vikuna 25. apríl — 1. maí.
* * + +
25. apríl:
Barn dagsins er ákaflynt og
hefur miklar sveiflur í tilfinninga-
lífi, er kappsfullt og metnaðar-
gjarnt og kemur framan að hlut-
unum með mikilli einurö og kapp-
semi. Jafnframt hefur það glögga
dómgreind og þrátt fyrir
kappsemina reisir þaö sér
ógjarnan hurðarás um öxl og
sýnir öðrum mikla sanngirni. Ef
til vill á þaö þó til að gera eitthvaö
án þess að hafa hugsað dæmið til
enda en hinir eðlislægu þættir þess
sjá venjulega til þess aö allt sleppi
þetta bærilega fyrir horn.
Fólk með þessa lyndiseinkunn
getur yfirleitt orðið farsælt í
flestum starfsgreinum en ætti þó
ekki aö ráða sig til mannaforráða
nema í fámennum, vel völdum
hópi.
Læknisstörf og önnur þvílík,
sem krefjast ýtrustu nákvæmni og
íhygli, ætti þaö helst ekki að
leggja fyrir sig. Ekki síst nýtur
þetta fólk sín til fullnustu þegar
það fær að starfa sjálfstætt að
einhverjum skapandi verkefnum,
smíðum eða þvíumlíku, en á sviði
lista kemst það helst í samband
við skapgerð sína ef það leggur
stund á ritlist.
Það er aldrei lognmolla í
kringum þetta fólk, ekki heldur á
sviði ástarlífsins. Ákafi þess og
kappsemi getur oft oröið til þess
að fæla félaga af hinu kyninu frá
eftir fyrstu ærslin og farsæld
hjónabandsins er verulega undir
því komin að makinn geri sér
grein fyrir eðlisþáttum afmælis-
barnsins og sætti sig viö þá. En
engu að síður er hjónaband með
þessu fólki oft grýtt braut til gæfu
því það elskar jafnákaflega og það
gerir allt annað og er fljótt til af-
brýðisemi af ótrúlegustu tilefnum.
Hjónaböndin geta því verið býsna
tvísýn.
Heilsufar má yfirleitt telja gott
en þó eru nokkrar líkur á lítil-
fjörlegum en þrálátum kvillum í
öndunarfærum, einkum nefi og
hálsi. Engum þarf heldur að koma
á óvart þótt þetta fólk lendi af og
til í óhöppum en þau eru sjaldnast
stórfelld.
Happatölur eru 7 og 6.
¥ * * * * 26. apríl: * * * * *
Fólk fætt í dag er almennt
geðgott og glaðsinna. Jafnframt
hefur þaö hagnýtar gáfur og sér-
stakt lag á að laga sig að kringum-
stæöunum. Þaö sér á augabragöi
hvað best hentar hverju sinni og
kann að fara eftir því án þess að
hægt sé aö segja að það sé reikult í
ráöi. Það er einmitt þvert á móti
fast viö sínar skoðanir og trú en
kann einfaldlega að haga svo til að
það sigli alltaf farsælustu leiðina í
hverju máli. Það er oft listhneigt
og hefur góða listahæfileika
sjálft, einkum á sviði myndlistar
og tónlistar.
Þetta fólk nýtur sín best í
skapandi störfum, tengdum því
sviði listar sem helst er því að
'skapi, svo sem við hvers konar út-
litslagfæringar og útlitshönnun.
Þó er það svo með afmælisbörn
dagsins að hugur þeirra er fremur
við andleg verðmæti en veraldleg
og starf er þeim almennt ekki
annaö en aðferö til aö afla sér lífs-
viðurværis. Engu að síður er það
vel fallið til mannaforráða,
einkum fyrir fámennum hópum,
þar sem útsjónarsemi þess og
diplómatískt hugarfar fær að
njóta sín.
Ástarlífiö hefur alla möguleika
til að verða farsælt hjá þessu fólki
og umgengnishæfileiki og kímni-
gáfa þess gerir það eftirsótt af
hinu kyninu. Þetta getur leitt til
nokkurrar fjölbreytni meðan
afmælisbörnin eru enn óbundin en
eftir aö þau hafa gert upp hug sinn
og valið sér lífsförunaut skal
mikið til að annar aðili komist þar
upp á milli því trygglyndi fólks
dagsins er við brugðið.
Heilsufar þessa fólks er yfirleitt
gott en sumir hafa farið flatt á
vímugjöfum og hættir nokkuð til
þess að halla sér að þeim til lífs-
nautnar. Hins vegar á það tiltölu-
lega auðvelt með að taka sig á og
snúa frá villu síns vegar — beri
það gæfu til að sjá í tæka tíð að þaö
stefnir í óefni.
Happatölur eru 8 og 6.
* * * * * 27. aprll: * * * ¥ *
Sá sem afmæli á í dag er dulur í
skapi og sýnist hægferðugur og
geðlaus en er í rauninni tilfinn-
ingaríkur og fylginn sér. Hann er
einaröur og djarfur og hefur nóga
þolinmæöi til að standa af sér and-
streymi og það sem annars yrði
honum fótakefli. Listagáfur hefur
afmælisbarnið góðar, ekki síst á
sviði myndlistar og listmuna-
gerðar.
Þessi manngerð getur unnið
flest störf meö sóma. Hana er oft
að finna í ýmiss konar verslunar-
störfum, kennarastörfum og við
prestskap. Einnig hefur hún haga
hönd og getur náö langt á sviði
listsköpunar og listiönaðar. Að
öðru jöfnu ætti fólk dagsins helst
að velja sér störf sem það getur
unniö án teljandi afskipta ann-
arra.
Hvað ástarlífið snertir vilja þar
skiptast á skin og skúrir. Ekki
verður sagt að hitt kynið hrannist í
flokkum um afmælisbarnið en því
hættir til að taka hvert minnsta
daður alvarlega og getur því oröið
fyrir miklu áfalli þegar botninn
dettur úr ævintýrinu. Afmælis-
barnið reynir oft mikið á þolrifin í
maka sínum með því að það getur
verið mjög erfitt að búa við mjög
dulan aðila sem lítt lætur uppi
hvort honum líkar betur eða verr,
og þetta getur orðið til þess
að hamingja hjónabandsins veröi
nokkuð skrykkjótt.
Heilsufarið er yfirleitt harla
gott en þó er rétt að gæta varúðar
með höfuðiö, sérstaklega fyrir
slysum. Einnig ætti fólk dagsins
að gera sér snemma grein fyrir
því aö ekki er öllum greitt að losa
sig úr viðjum vímugjafa sem þeir
byrja aðneyta.
Happatölur eru 9 og 6.
38 Vikan 17. tbl.