Vikan


Vikan - 25.04.1985, Síða 60

Vikan - 25.04.1985, Síða 60
grilluðum mat berst fyrir vitin svo ekki er hægt annað en að renna á lyktina og prófa eins og eina und- arlega samsetningu af grænmeti, ávöxtum og kjöti, þrætt upp á tein. Við rekumst á lítinn hóp fólks sem hefur orðið sér úti um sérkennileg hljóðfæri sem gætu allt eins veriö nokkur hundruð ára gömul. Kannski hefur þaö komist yfir góss úr einhverju leikhúsinu? Tónlistin er í stíl viö hljóðfærin en eigi að síður og kannski þess vegna mjög forvitnileg. Þaö þykir við hæfi aö dubba sig upp í búninga sé fólk götulistamenn og því sérkennilegri sem þeir eru þeimmun betra. Viö höldum sem leið liggur frá Vondelpark niöur á Leidseplein og það tekur okkur óratíma aö mjakast áfram þessa stuttu leið því mannfjöldinn er alveg gífur- legur. Við göngum fram á 10—12 ára gutta, sem ekki kann aö spila á hljóðfæri né hefur neitt til þess að selja, en hann deyr ekki ráðalaus við að ná sér í smávasa- pening því hann stendur á haus þar til áhorfendum, aö okkur meðtöldum, stendur ekki lengur á sama og dæla smápeningum í skálina hans til þess að reyna aö fá hann til þess að hætta þessu og standa aftur í fæturna. „Café Smalle” eöa Fagribar, eins og við hér köllum hann af því hann er svo fallegur, dregur til sín mikinn fjölda manna úr Jordan- hverfinu og víðar og þar á meðal íslendingahópinn hér í Amster- dam sem skálar fyrir drottningunni, núverandi eöa fyrr- verandi skiptir ekki svo miklu máli, og minnist liðinna þjóðhá- tíðardaga heima á Fróni. Töluvert slangur af smá- bátum meö syngjandi og trallandi bátsverjum er á siglingu um síkin í Jordanhverfinu og þannig er siglt frá einni kránni til þeirrar næstu. Þaö er mikið fjör hjá hópi fólks sem við mætum siglandi á stærðar pramma á Prins- engracht, syngjandi við undirleik eigin lúðrasveitar og það eru ekki lengur margir sem mega vera að því að spá í notuð föt eða gömul leikföng á nokkrar krónur. Um sexleytið fer sölufólkið aö pakka saman dóti sínu, þeir sem kæra sig um það, hinir skilja Hér festum við á filmu frá vinstri: Jón Sigurpálsson, Guðmund Thor, sendiráðsritarann í Paris, Gunnar Snorra og Guðmund Óia píanóleikara. 60 Vikan 17. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.