Vikan - 25.04.1985, Qupperneq 61
bara allt draslið eftir og slást í
hópinn sem röltir á milli kránna
langt fram eftir nóttu. Er síðustu
bargestirnir tínast heim á leið er
hreinsunardeildin íkomin á fullt
við aö hreinsa göturnar, enda ekki
vanþörf á, ástandiðer eins og eftir
mánaðarverkfall sorphreinsunar-
manna. Fyrsta maí er fátt eftir
sem minnir á fjör gærdagsins
nema þá helst andstæðan í tómum
götum og óvenjulega fámennum
kaffihúsum.
Drottningardagurinn er
haldinn hátíðlegur á mismunandi
hátt í mismunandi borgum
Hollands og er kaupmennskan það
sem setur svip sinn á Amsterdam-
borg. í Haag er mikill sirkus í
gangi og er hápunktur hátíðahald-
anna ganga aðalsfólks og
mæögnanna, núverandi og fyrr-
verandi drottningar, út að
sirkusnum þar sem borgar-
stjórinn heldur ræðu og óskar
þeim mæðgum til hamingju með
daginn. í minni borgunum eru há-
tíðahöldin líkari því sem viö
þekkjum á íslandi, meö blandaöri
skemmtidagskrá og íþróttahátíð.
Drottningardagurinn, eins og
hann er haldinn hátíðlegur í
Amsterdam, á sér ekki hliöstæðu
á íslandi en ef 17. júní, verslunar-
mannahelgin, grímuball og basar
kvenfélagsins væru hrist saman
væri útkoman kannski eitthvað
svipuö. Litlu börnin fá blöörurnar
sínar og fánana eins og 17. júní
heima, minnst annar hver maður
þambar bjór eins og hann getur í
sig látið og er þá rápað á milli
kránna. Nokkrir skynsamir
náungar hafa séð við bjórþorsta
þeirra sem um Vondelpark fara
og hafa komið sér upp nokkrum
bjórkössum sem þeir selja vegfar-
endum úr og er líöa tekur á daginn
er farið aö sjá á mönnum sem end-
ar með einu allsherjar fylliríi um
kvöldiö og þá er þaö rétt eins og
aö vera staddur í Atlavík eða
Þjórsárdal um verslunarmanna-
helgina. Annars þykir mikil
skömm að láta sjá á sér áfengi hér
í Hollandi og er þetta eini dagur
ársins, aö vísu fyrir utan karnival-
hátíðir í einstaka borgum, sem
menn fara á fyllirí án þess að
skammast sín fyrir — og
sennilega sjá timburmennirnir
fyrir rólegum 1. maí.
Hér skála þeir Guðmundur Thor
myndlistarmaður og Hjálmar
Ragnarsson tónskáld með meiru
fyrir drottningunni. í baksýn má sjá
Lárus Grímsson tónskáld.
17. tbl. VIKan 61