Vikan - 05.02.1987, Qupperneq 18
The Housemartins er hljóimveit sem hefur slegið
allrœkilega ígegn undanfamar vikur en þráttfyrir það
hafa strákamir ekkert breyst,þeir halda áfram að líta
út eins og „strákamir í rnesta húsi“.
Þessi hljómsveit kemur frá bæ sem er
mörgum Islendingum að góðu kunnur,
fiskimannabænum Hull. Hún varð til
eftir að Paul setti auglýsingu í eitt blað-
anna. Þeim tókst að fá plötusamning
við lítið fyrirtæki, GolDiscs, sem meðal
annars hefur Billy Bragg á sínum snær-
um. í viðtölum slá þeir gjaman á létta
strengi (sumum finnst þeir jafnvel fifla-
legir) en í lögum þeirra er alvarlegur
tónn. Þeir slógu fyrst í gegn á síðari hluta
síðasta sumars með laginu Happy Hour
en ekki var laust við að mörgum fynd-
ist þeir líkjast Lloyd Cole and the
Commotions í því lagi. Heyrst hefur af
veðmálum um hvort þetta væm þeir
eður ei.
Eftir Happy Hour kom smáhlé en nú
hafa þeir slegið í gegn með fallegu lagi,
Caravan of Love, sem er allsérstakt að
því leyti að engin hljóðfæri em notuð
önnur en raddir hljómsveitarmeðlima.
Lagið hefur farið sigurför um Evrópu
og er ísland engin undantekning. Lagið
komst ofarlega á lista Bylgjunnar og
rásar 2. Þeir hafa gefið út eina breið-
skífu sem kallast London 0 Hull 4.
Nafnið á plötunni má rekja til þess að
allir em þeir miklir fótboltaáhugamenn
og eitt af því skemmtilegasta sem þeir
gera er að spila fótbolta með vinum sín-
um. Tónlistin, sem þeir spila, þykir mjög
bresk og tala sumir um Tlie Housemart-
ins sem besta innleggið í poppbransann
í áraraðir, en hún sigraði í velfiestum
vinsældakönnunum um bestu nýliða síð-
asta árs. Hljómsveitin er skipuð fjómm
ungum mönnum sem heita Stan, Paul,
18 VIKAN 6. TBL