Vikan - 05.02.1987, Blaðsíða 22
Þekktastur er Gabriel Byrne fyrir að leika rannsóknarblaöamann i Defence of Realm.
Umsjón:
Hilmar Karlsson
Gahriel
Bvme
Gabriel Byrne sem Kristófer Kólumbus.
Þegar Gabriel Byrne hætti
í skóla var hann ákveðinn í
að gerast blaðamaður. Hafði
hann undirbúið sig í skóla
fyrir það lífsstarf, lærði vélrit-
un og fleira sem tilheyrir
blaðamennsku. Bróðirhans
er blaðamaður og því þóttist
hann viss um að hann hefði
hæfileika í þá átt. Það urðu
honum því mikil vonbrigði
þegar honum gekk erfiðlega
að fá vinnu. Hann var þá
aðeins átján ára og í öll störf,
sem hann sótti um, voru
ráðnireldri menn. Þetta varð
til þess að hann sneri sér að
leiklistarnámi og það er
nokkuð skondið að í Defence
of Realm, sem er sú kvik-
mynd er Gabriel Byrne er í
dag þekktastur fyrir, skuli
hann leika blaðamann.
Sjálfur segir hann að það
sé alltaf erfitt að leika blaða-
mann því það séu þeir sem
eigi eftir að skrifa um kvik-
myndina. Ekki þurfti hann
að hafa áhuggjur að þeim
skrifum því Defence of Realm
hefur alls staðar fengið lof-
samlega dóma.
Byrne, sem er írskrar ættar,
ólst að mestu upp i Birming-
ham. Hann þótti vel liðtækur
í fótbolta og var sem ungling-
ur talinn það efnilegur að hið
þekkta lið Coventry hafði
augastað á honum. Ekki varð
hann atvinnumaður í knatt-
spyrnu frekaren blaðamaður.
Eftir að hafa verið í leik-
námi var hann ráðinn til
Abbey leikflokksins. Eftir
stutta veru þar lék hann í
nokkrum írskum sjónvarps-
myndum.
Fyrsta kvikmyndahlutverk
hans var í ævintýramynd
Johns Boorman, Excalibur.
Þaðan lá leiðin upp á leiksvið
í sjálfri höfuðborg leiklistar-
innar, London. Meðfram
leikhússtarfinu lék hann í
sjónvarpsmyndum og kvik-
myndum. Má nefna að hann
lék son Mussolinis, Vittorio,
í þáttaröð sem gerð var um
ævi einræðisherrans. Einnig
lék hann í Wagner og The
Rocking Horse Winner.
Það er samt í hlutverki
Kristófers Kólumbusar í
samnefndri sjónvarpsseríu
22 VIKAN 6. TBL