Vikan - 05.02.1987, Side 35
og flutt grin og gamanvísur með honurn. En ég
mátti ekki fara með Saklausum svöllumm þegar
ég var kornin í Þjóðleikhússkólann. Mér fannst
alveg hræðilegt að mega ekki koma fram með
þeirn fjórða sumarið. Ég vissi þvi ekkert hvað ég
átti að gera svo ég réð mig á síld norður á Þórs-
höfn á Langanesi með stelpum sem þangað voru
að fara og var þar sumarlangt, saltaði í ægilega
margar tunnur. Þetta er það eina sem ég hef
komið nálægt fiski og ég er ægilega stolt af því.
Þessa tvo vetur vorum við með í mörgum
stykkjum í Þjóðleikhúsinu en þegar ég var útskrif-
uð úr skólanum fékk ég tilboð um að fara til
Englands. Það freistaði mín ægilega mikið og ég
fór en það rak líklega endahnútinn á það að ég
lék aldrei framar í Þjóðleikhúsinu."
fólkinu heldur var ég tekin eins og ein úr fjöl-
skyldunni. Ég var ráðin sem selskapsdama
frúarinnar og átti að sjá urn að fotin hennar væru
i lagi, hárið óaðfmnanlegt og lakka á henni negl-
umar og fleira í þeim dúr. Cook hjónin áttu fjögur
böm, þijú þau elstu stunduðu nám í London en
yngsta bamið, sex ára drengur, var heima og átti
ég að gefa honunt morgunmat á morgnana og
koma honum af stað i skólann. Mér var og ætlað
að sjá um að skómir hans væm burstaðir, það var
í verkahring garðyrkjumannsins. Til þess að ná
sambandi við hann átti ég að hringja gamaldags
bjöllu en mér gekk það ekkert alltof vel því ég
hef aldrei lært að hringja bjöllu á fólk. Svo var
það eitt sinn að ég fann ekki garðyrkjumanninn.
Ég ákvað því að bursta skóna sjálf, fannst það
eitt sinn tækifæri til að skoða BBC sjónvarpsstöð-
ina.
Þegar ég hafði verið úti í tvo mánuði var mér
farið að leiðast dálítið, fannst svolítið einhliða að
fara alltaf með Elínu það sem hún fór eða sitja
á kvöldin og horfa á sjónvarpið með henni. Þá
var ég svo heppin að kynnast stelpu úr þorpinu
sem var þama í grenndinni og hún bauð mér á
ungmennafélagsball. Ég sagði Elínu frá þessu
boði og það varð úr að hún leyfði mér að fara. En
Mr. Cook mátti ekki vita af þessu. Eg fékk lykil
að kjallaranum og átti síðan að læðast beint i
rúmið þegar ég kæmi heim.
Þetta gekk svona í nokkur skipti og ég var
orðin djarfari að vera lengur úti á kvöldin. Heyrðu,
svo var það einu sinni að ég var að koma heim
Þeir sem útskrífuðust úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins með Sigríði. Standandi frá vinstri: Guðrún Stephensen, Þóra Friðriksdóttir, Kristín Anna Þóraríns-
dóttir, sem nú er látin, og Sigríður. Sitjandi frá vinstrí: Jón Laxdal, Helgi Skúlason og Guðmundur Pálsson.
Elín Cook, kona af íslenskum ættum, kom
að ntáli við ættingja Sigriðar og falaðist
eftir henni sem selskapsdömu. Og það varð
úr að Sigríður réðst utan til ársdvalar.
„Mig hafði ekki órað fyrir þessum breytingum
á högum mínum meðan ég var í skólanum - ég,
þessi fátæka stelpa sem átti varla fötin utan á
mig. En Elín byijaði á því að dressa mig heldur
betur upp þegar ég kom út. Þau hjónin bjuggu
á stórum, stórum búgarði úti í sveit. Þetta var tvö
hundruð og fimmtíu ára gamall kastali. Þau höföu
þjóna á hverjum fingri. Ég tilheyrði ekki þjónustu-
ekki mikið mál. Eg vissi hvar skómir voru burst-
aðir og fór þangað og fór að búrsta. Mr. Cook
kom einu sinni að mér þar sem ég var að bursta
skóna og var hinn versti, sagði að þetta væri ekki
í mínum verkahring.
Við Elin urðum fljótlega mjög góðar vinkonur
en ég var alltaf hálfhrædd við Mr. Cook.
Mig langaði alltaf hálfpartinn að fara á leiklist-
amámskeið í London en við bjuggum það langt
frá London að Elín þorði ekki að láta mig fara
eina á milli. Hins vegar var hún óþreytandi að
fara með mig í leikhús og ég sá margar leiksýning-
ar sem verða mér ógleymanlegar. Svo fékk ég
og var komin upp á fyrstu hæðina og átd bara
eftir að komast upp á lofdð þar sem ég svaf og
hjónin líka. Þá er allt í einu kveikt uppi og ég
heyri að Mr. Cook er að koma niður sdgann.
Ég stífnaði alveg og skaust inn í borðstofuna og
þar bak við hurð. Þar stóð ég með svo mikinn
hjartslátt að ég hélt að ég myndi springa - og
hugsaði: Ætlar karlinn að koma hingað inn og
ef hann kemur hingað inn og sér mig bak við
hurð þá deyr hann. En hann fór inn í eldhús og
var þar góða stund eitthvað að bardúsa, svo kom
hann aftur og þá var ég alveg viss um að hann
kæmi inn í borðstofuna en hann hélt áfram og
6. TBL VIKAN 35