Vikan - 23.07.1987, Blaðsíða 30
í miðri Viku
Pro-Algen
Er það eitthvað fyrir þig?
Á undanförnum mánuðum hafa
norsku vikublöðin ver'ið uppfull af
greinum um Pro-Algen. í þessum
greinum hefur verið sagt frá fólki
sem hlotið hefur bata af ýmsum
kvillum og sjúkdómum, allt frá erfið-
um psoriasistilfellum til meltingar-
kvilla. En hvað er þetta Pro-Algen?
I stuttu máli sagt er það hrein nátt-
úruafurð sem er framleidd úr
þörungum sem vaxa í fjörðum Nor-
fegs. Mikil áhersla er lögð á að
þörungarnir séu settir beint úr sjó í
vinnslu til að tryggja gæði vörunn-
ar. Engin litar-, bindi- eða bragðefni
eru notuð við framleiðsluna. Þör-
ungar eru ríkir af steinefnum og
vítamínum enda inniheldur Pro-
Algen þrettán tegundir vítamína auk
um áttatíu ólíkra járn- og steinefna.
Pro-Algen á ekki einungis aö
hjálpa þeim sem þjásl af melt-
ingartruflunum, magasári,
lágum blóöþrýstingi eða psor-
iasis, það á líka að verka fyrir-
byggjandi á þessa sjúkdóma.
Vantar þig
ílát á baðið?
Margs konar varningur frá Lauru
Ashley er til í Kistunni, Laugavegi 99.
Þetta eru fínlegar og rómantískar vör-
ur. Þetta er baðsett; sápuskál, ilmkúla
og ílát undir baðsalt.
Glæsileg gæðaveski
Á öðrum áratug aldarinnar hannaði Coco Chanel gyllt og perlusaumuð veski
sem náðu feikilegum vinsældum. Veskin reyndust lífseig og fimmtíu árum síðar
seljast þau enn grimmt. Við rákumst á þessi þrjú í versluninni París, Laugavegi 61.
30 VIKAN 30. TBL