Vikan - 23.07.1987, Page 44
Vikan — böm
Hún hefur
taumhaldið
„Mikiö erum við búin að vera dugleg i dag.“
„Best að koma sér niður."
Þessi hressilega stelpa, sem við
sjáum hér á myndunum, heitir
Sylvía Sigurbjörnsdóttir. Sylvía
verður þriggja ára í sumar. En
þótt hún sé ekki gömul er hún
strax byrjuð að fara á hestbak.
Sylvía kynntist hestum í gegnum
pabba sinn sem er atvinnuhesta-
maður. Henni virðist líka
vinnan hans pabba síns vel því
hennar eina áhugamál eru hest-
ar. Hún leikur sér heima að
tréhestum og öðrum leikföng-
um sem minna á hesta. Svo fer
Sylvía oft með pabba sínum í
hesthúsið til að heimsækja hest-
ana-vini sína. Hesturinn, sem
Sylvía er að leika sér við á
myndunum, heitir Brjánn.
Brjánn er mikill gæðingur.
Hann er keppnishestur og hefur
verið valinn í landslið íslands
sem fer til Austurríkis í ágúst, á
heimsmeistaramót hestamanna.
En Sylvía á líka annan vin í
hesthúsinu og hann heitir Kalsi.
Kalsi er besti vinur Sylvíu og
hann er einnig gæðingur. Hann
fer samt sem áður ekki á heims-
meistaramótið. Sylvía er mjög
ánægð með að hann verði
hcima. Annars myndi hún
sakna hans.
Keppnishestar eins og Brjánn
og Kalsi eru ekki alltaf ánægðir
með að fólk sé að lcika sér við
þá. Stundum verða þeir óróleg-
ir. En þegar Sylvía kemur í
heimsókn verða allir hestarnir
ánægðir. Hún má klifra upp ár
þá, klappa þeim og kyssa þá. Á
meðan standa þeir rólegjr og
„Takk tyrir reiðturinn, Brjánn minn.“ bl'OSa að þeSSai'Í kátll StelpU.
Texti: Jóna Björk Guðnadóttir
Myndir: Eirikur Jónsson
44 VIKAN 30. TBL
CLASSICO Brúnhr - Svsetir — Hvfthr-Bcis
notalega stuna^
yfir kaffi og með þi
í Skíðaskálanum.
Munið okkar
vinsæla kalda borð.
sinu
672020
Opnunartilboð
15% afsláttur
rfatnað
Ný verslun á Laugavegi 97 Sími 624030
(S. i