Vikan


Vikan - 23.02.1989, Side 4

Vikan - 23.02.1989, Side 4
VIKAN 23. FEB. 1989 4. TBL. 51.ÁRG. VERÐ KR. 198 VIKAN kostar kr. 149 eintakið í áskrift. Áskriftargjaldið er innheimt sex sinnum á ári, fjögur blöð í senn. Athygli skal vakin á því að greiða má áskriftina með EURO eða VISA og er það raunar æskilegasti greiðslumátinn. Aðrir fá senda gíróseðla. VIKAN kemur um sinn út aðra hverja viku. Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í síma 83122. Utgefandi: Sam-útgáfan Framkvæmdastjóri: Sigurður Fossan Þorleifsson Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson Ritstjórar og ábm.: Þórarinn Jón Magnússon Bryndís Kristjánsdóttir Höfundar efnis í þessu tölublaði: Þórarinn Jón Magnússon Hróbjartur Lúðvíksson Hrafnhildur Wilde Örn Garðarsson Bryndís Kristjánsdóttir Fríða Björnsdóttir Pétur Steinn Guðmundsson Ásgeir Tómasson Carlo Draeger Jón Kr. Gunnarsson Ævar R. Kvaran Þorsteinn Eggertsson Súsanna Þ. Jónsdóttir Ragnar Lár Þórdís E. Ágústsdóttir Guðjón Baldvinsson Gísli Ólafsson Björn Hróarsson Ljósmyndir í þessu tölublaði: Páll Kjartansson Gunnlaugur Rögnvaldsson Magnús Hjörleifsson Þórarinn Jón Magnússon Björn Hróarsson Þórdís E. Ágústsdóttir Valdimar Leifsson o. m. fl. Útlitsteiking: Þórarinn Jón Magnússon Setning og umbrot: Sam-setning Filmuvinna, prentun, bókband: Oddi hf. Forsíðumynd: Ljósm.: Magnús Hjörleifsson Módel: Þorbjörg Bjarnadóttir Hárgreiðsla: Guðrún Hrönn Förðun: Sophie Jeanpierre Snyrtivörur: Stendahl Sjá nánar bls. 28 4 VIKAN 3. TBL. 1989 6 Rannveig Sveinsdóttir fluttist tvítug til Bandaríkjanna og hefur búið þar í 36 ár. I viðtali við Vikuna segir hún frá því gífurlega starfi sem hún hefur lagt í kosningabaráttuna fyrir þrjá Bandaríkjaforseta og fleiri repúblikana. Sérstaklega var hún svo líka spurð um skoðanir sínar á eiginkonum forsetanna þriggja, Nixons, Reagans og Bush. 12 Grínistarnir sívinsælu, Ómar Ragnarsson og Laddi, fylla nú sali Þórskaffis og Sögu hvor í kapp við annan. Vikan hefur séð sýningar þeirra og lýsir þeim í máli og myndum. 14 Fyrsti kossinn átti sér stað og stund í aftursætinu i bíl Gulla Bergmanns, segja þau Sæmi rokk og kona hans, Ásgerður Ásgeirs- dóttir, er þau rifja upp fyrstu kynni í viðtali við Vikuna. 16 Hróbjartur Lúðviksson hefur sögu að segja í þessu blaði. Hún er um einu afskipti hans af rósarækt, sem voru með afar sérstökum hætti svo ekki sé meira sagt... SYF 18 Veisluhöld eru tíð um þessar mundir. Vikan ræðir um fermingar- veislur og fleiri veislur við eiganda Skíðaskálans í Hveradölum og birt- ar eru mataruppskriftir Arnar Garð- arssonar, sem nýlega hóf störf í eld- húsi Flughótelsins í Keflavík - sem við segjum frá á bls. 19. 20 Paradís er fundin, segir Bryn- dís Kristjánsdóttir ritstjóri í grein sinni um kynni sín af Jamaica. 30 Tungumálanámið hlýtur að verða skemmtilegra þegar það er stundað þar sem viðkomandi tungu- mál er talað. Vikan segir frá EF, sem getur komið þér til tungumálanáms allt til Ástralíu hvað þá annað. 33 Atvinnuleysisvofan skelfir nú landsmenn. Vikan kannar málið frá mörgum hliðum. M.a. eru skoðuð lögin um atvinnuleysisbætur, hvern- ig staðið er að atvinnuauglýsingum og mannaráðningum, og rætt er við atvinnulaust fólk sem og þá er vinna að þvi að leysa vanda þess. 38 Poppinu gerð skil af þeim fræði- mönnum Pétri Steini á Bylgjunni og Ásgeiri Tómassyni á Stjörnunni. 40 Frægar mæður ásamt börnum sínum. 42 Gamansagan heitir Tvifararnir og segir frá ósköp venjulegum eigin- manni sem líkist svo óskaplega mik- ið vinsælum kvikmyndaleikara. 43 Léttari krossgátan. 46 Ævar R. Kvaran segir frá þeim einstaka manni Swedenborg sem uppi var 1688-1772. Hann sá í gegnum holt og hæðir, ferðaöist inn í hinn andlega heim og teiknaði kaf- báta og „fljúgandi skip“ sem flutt gæti farþega gegnum loftið ... 50 Snorri Sturluson á að öllum lík- indum stóran hlut í sögunni um Vil- hjálm Tell... 52 Peysuuppskrift að drengja- peysu fyrir 2ja til 3ja ára. 54 Ragnar Lár raupar og rissar aö venju og fjallar m.a. um ambögur í fjölmiðlum. 55 Myndasögurnar um Gissur Gullrass, Stinu og Stjána og prakk- arana Binna og Pinna. 56 Hárgreiðslan getur breytt útliti þínu meira en nokkuð annað. Vikan auðveldar þér val á réttu hárgreiðsl- una. Þú getur auðveldlega séð hvernig fimmtíu mismunandi greiðsl- ur færu þér. Dragðu fram skærin og litla Ijósmynd af þér. . . 59 Ástarleikurinn getur orðið vandræðalegur ef upphafið, það að afklæðast, fer í handaskolum. Vikan lítur á spaugilegu hliðina á þeirri athöfn. 60 Nám erlendis. Að þessu sinni er rætt við íslenska stúlku, sem stund- ar nám í byggingararkitektúr I Dan- mörku. 62 Krossgátan. 63 Unglingarnir spyrja. 64 Náttúran. Björn Hróarsson jarð- fræðingur ræðir að þessu sinni stutt- lega um Eyjafjallajökul. 66 Stjörnuspáin og fyrri hluti um- fjöllunar um þá sem eru í fiskamerk- inu.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.