Vikan - 23.02.1989, Blaðsíða 13
Gamalt vín
á glænýjum belgjum
Ömar svífur í salinn. Bjöm Bjömsson,
sem annaðist sviðssetningu Þjóðar-
spaucsins, fyloist n’.“ð afathycli.
Þó skemmtidagskrá Ómars Ragnarsson-
ar beri heitið Þjóðarspaug í 30 ár er hér
ekki alfarið um að ræða gamalt efni, tals-
vert er um glænýtt efni og það eldra er
fært í nýjan búning. Á dagskráin að spanna
feril Ómars í stórum dráttum. Kynninguna
annast Hemmi Gunn, en með Ómari er sú
ágæta söngkona Helga Möller. Það var svo
ekki til að spilla ánægjunni er Ragnar
Bjarnason tók þátt í einu atriðinu. Var þá
sungið hátt og snjallt um blessaðan
bjórinn. Ragnar var þarna á heimavelli,
bæði hefur hann skemmt manna lengst á
Sögusviðinu og eins hafa þeir Ómar marg-
oft látið saman gamminn geisa í Sumar-
gleðinni.
Má segja að Ómari hafi tekist að sýna
þarna á sér allar sínar bestu hliðar. Hann
hermdi eftir stjórnmálamönnum, söng
bráðskemmtilegar gamanvísur og brá sér í
hvert gervið á fætur öðru þar sem gripið
var til hárkolla, kvenfatnaðar, skíðafatnað-
ar, sérkennilegs flugbúnings, gervinefs og
hvaðeina. Talsvert bættist svo í nýyrðasafn
gesta er Ómar þuldi upp það nýjasta frá
vini sínum og vinnufélaga Sigmundi Erni á
Stöð 2 við sérlega góðar undirtektir.
Hljómsveit hússins annaðist undirleik,
en auk þess var svo Haukur Heiðar píanó-
leikari Ómari til aðstoðar eins og endra-
nær.
Matreiðsla matreiðslumeistaranna á
Sögu er í góðu lagi, en áhorfendum Þjóð-
arspaugsins gefet kostur á að velja á milli
tveggja forrétta, tveggja aðalrétta og
þriggja eftirrétta. Gengur framreiðslan
snarlega og snyrtilega fýrir sig — og svo má
ekki gleyma því að áhorfendur geta kórón-
að þessa ferð sina á Söguslóðir með því að
kaupa sér gistingu fýrir nokkur hundruð
krónur til viðbótar við aðgöngumiðaverð-
ið. Þetta tilboð gildir jafnt fyrir höfuð-
borgarbúa sem aðra. □
Bjómum sungin lof og dýrð af þeim Ómari og Ragnari. Helga Möller í gervi frúar-
innar tók ekki eins heilshugar undir lofgjörðina .. .
Gamlir og nýir karakterar skjótast inn á
krána í ýmsum erindagjörðum (gott ef það
eru ekki þeir Halli og Laddi, sem eru á
meðal þeirra skemmtikrafta, sem sækjast
eftir að fá að skemmta þar og sýnishornið
er Spike Jones lag...) Magnús mætir með
fötuna sína og gerð er tilraun til að fá
hann til að taka þátt í bæði söng og dansi.
Að sjálfsögðu mætir í bjórveisluna gamla
fyllibyttan hans Ladda, sem er með best
heppnuðu karakterunum hans, og svo má
ekki gleyma því bráðfyndna atriði þegar
Laddi gengur á hæla Egils Ólafssonar og
hermir eftir honum líkt og á skemmtun
hans á Sögu í fyrravetur.
Hér hefur Ómar brugðið sér í gervi
Alberts Guðmundssonar og Inga Bimi
Albertssyni var greinilega vel skemmt.
Þau höfðu ekki heyrt þennan áður. Böm
og tengdaböm Ómars skemmtu sér
konunglega eins og aðrir þetta kvöld.
4. TBL. 1989 VIKAN 13