Vikan


Vikan - 23.02.1989, Blaðsíða 9

Vikan - 23.02.1989, Blaðsíða 9
BARÁTTUNNIVESTAN HAFS þótti gaman að fljúga með okkur því við reyndum að láta þeim líða sem best. Sömuleiðis ef það var fólk sem var flughrætt. Stundum voru farþegarnir fólk sem aldrei hafði flogið og þá var maður að reyna að tala við fólkið og dreifa huganum, því fólk var oít veikt í flugvélunum. Oft flugu með okkur sjúklingar sem voru að koma ffá uppskurði eða meðferð á sjúkrahúsi. San Antonio var nefhilega einn helsti spítalabærinn fyrir herinn. Þessir farþegar áttu í erfiðleikum með að komast um borð en þurftu að fljúga ffá einu fylki til annars. Þeir áttu oft erfltt með að ganga upp stigann, þeir voru brattir þá, sérstak- lega fyrir þá sem höfðu verið skornir upp á baki. Oft var afgreiðslufólkið í vandræð- um með hvernig ætti að koma þessu fólki um borð. Þegar ég sá hvað var að ske þá labbaði ég bara niður stigann og leit á farþegann og spurði: Ertu tilbúinn? Og þegar hann sagði já, þá sneri ég baki að sjúklingnum og sagði honum að taka um axlirnar og ganga hægt upp stigann í takt við mig. Þetta gekk alltaf vel því þyngdin af farþeganum var á bakinu á mér. Þetta var off fólk sem hafði lent í slysum og þetta var eina leiðin til að koma því um borð. Stundum vildu þessir farþegar helst standa á leiðinni því þeir áttu svo erfltt með að sitja. Ein kona vildi endilega kynn- ast mér og þakka mér fyrir að koma manninum sínum um borð. Þessi kappi býr enn í Tucson í Arizona. Einu sinni flugu með okkur ung hjón og sátu þau aftast í vélinni. Þegar þau komu um borð voru þau með kápurnar yfir handleggjunum og vildi konan ekki að ég tæki kápurnar því að þau færu úr vélinni eff ir rúma tvo tíma. Ekki datt mér í hug að undir þessum fötum væri 6 daga gamalt barn. Þegar við vorum búin að fljúga í rúman klukkutíma hringdi konan og kall- aði og sagði að barnið væri orðið dökkblátt. Ég greip í ökklana á barninu og rassskellti það og þá fór það að gráta og fékk auðvitað loft í lungun. Þetta var í flug- vél sem var ekki með jafnþrýstibúnaði eins og flugvélar eru flestar núna. Hjónin voru á heimleið en hefðu auðvitað átt að leita álits læknis á að fljúga með svona flugvél. Ég bað flugmanninn í guðanna bænum að lækka flugið svo ekkert kæmi fyrir barnið. Flogið með opið að aftan — Eitt enn skeði í einni flugferðinni. Flugmennirnir hringdu og báðu mig að koma ffarn í flugstjórnarklefann og ég gerði það. Þeir spurðu hvort það væri allt í lagi með hurðina þar sem gengið var inn í flugvélina. Ég sagði sem var að hún væri alveg lokuð. En þeir sögðu að það væri rautt ljós sem sýndi að einhver hurðin væri opin. Ég sagði: — Nei, nei, hurðin er alveg lokuð. í New-Mexíkó nota frambjóðendur oft hesta. Þingmaðurinn Manuel Lujanjr. sést hér heilsa upp á Rannveigu, en henni á hann mikið að þakka. Hurðin, þar sem gengið er inn í vélina, var alveg lokuð. Ég fór samt aftur í og opn- aði dyrnar sem lágu aftur í farangursrýmið sem var aftan við eldhúsið. Ég sá að dyrnar þar sem farangurinn er settur inn voru opnar og hurðin dinglaði bara og var ekki læst. Ég tók vírherðatré, sem ég tók í sundur, skreið inn í farangursgeymsluna og reyndi að krækja vírnum í lásinn á hurðinni til að loka svo ekkert dytti út úr vélinni. Ungur flugmaður sá að ég var að skríða þarna inn í farangursklefann og tók um ökklana á mér svo að ég dytti ekki út úr vélinni. Þetta tókst og ég náði að loka hurðinni svo ekkert tapaðist af töskum eða pósti. Öðru sinni vorum við að fljúga til Abel- in, sem mér finnst ein leiðinlegasta borgin í Texas. Við vorum að nálgast áfangastað- inn og ég bað farþegana að spenna beltin. Þeir spurðu til hvers því það var ekki búið að kveikja á Ijósaskiltunum sem gefa til kynna að það eigi að spenna beltin. Ég þekkti nefhilegá þetta svæði og þar er oft ókyrrt. En ég bað fólkið um að gera mér þann greiða að spenna beltin, sem það gerði. Þegar ég var rétt komin fram að flugstjórnarklefanum hrapaði flugvélin allt í einu og ég hentist upp í loft. Þetta var einkennileg tilflnning. Ég sá töskur, teppi, púða og annað lauslegt svífa í loftinu áður en ég skall harkalega niður á gólf. Ég lenti undir einu sætinu og braut 7 rifbein. Skórnir brotnuðu og jakkinn rifnaði. En mér fannst þetta allt í lagi, það var betra að það var ég heldur en farþegarnir. Það urðu allir steinhissa, en þetta var auðvitað af því að mér var svo illa við þennan bæ, Abelin í Texas. Þegar við vorum Ient fóru flug- mennirnir með mig til trúnaðarlæknis flugfélagsins sem setti mig í gegnumlýs- „Ég held ég hafi verið ein sú fyrsta af ís- lenskum flugfreyjum til að hefja störf fyrir erlent flugfélag," segir Rannveig. Þessi mynd var tekin á kynningu sem Continental Airlines gekkst fyrir árið 1958. Sú til hægri á myndinni heitir Dorothy Hanson. Rannveig varð að hætta störfúm þegar hún gifiti sig. ■ Ungur flugmaður sá að ég var að skríða þarna í farangurs- klefann og tók um ökklana á mér svo ég dytti ekki út úr vélinni...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.