Vikan


Vikan - 23.02.1989, Blaðsíða 14

Vikan - 23.02.1989, Blaðsíða 14
FYRSTU KYNNIN Sœmundur Pólsson og Ásgerður Ásgeirsdóttir Fyrsti kossinn í aftursæti í bíl hjá Gulla Bergmann Sæmundur Pálsson og Asgerður Ásgeirsdóttir eiga þrjátiu ára brúðkaupsafmæli 17. júní í sumar. Þau kynntust á KEA og hann bauð henni upp í dans. LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON „Gulli Bergmann þakkar sér samband okkar og ég vil nú ekki taka það af honum. Við höfum alla tíð verið miklir kunningjar og það var einmitt að frum- kvæði hans að við fórum nokkrir félagar í ferðalag norður á Akureyri um verslunarmannahelgina árið 1957. Mannskapurinn fór á ball á KEA. Og þar hitti ég Ásgerði. Ég bauð henni upp í dans og þar með vor- um við komin á sporið. Og eftir þetta sögufræga ball á KEA kom svo fyrsti kossinn okkar, hann var í aftursæt- inu í grænum bíl sem Gulli átti á þessum árum,“ segir Sæmundur Pálsson, öðru nafni Sæmi rokk, um fyrstu kynni þeirra Ásgerðar Ás- geirsdóttur. Þau eiga 30 ára brúðkaupsafrnæli 17. júní í sumar. Og vel að merkja, áðumefndur Gulli Berg- mann, sem Sæmundur tal- ar um, er auðvitað Guð- laugur Bergmann, verslun- armaður í Kamabæ. Sæmundur fæddist 31. júlí árið 1936. Hann er ljón. Ás- gerður fæddist 11. mars árið 1942 og er því fiskur. Hún var þess vegna aðeins 15 ára þegar hún hitti Sæmund, sem þá var 21 árs. En hvernig eiga þessi merki saman að þeirra mati? „Það er sagt að þessi merki eigi makalaust illa saman. Ætli samband okkar sé ekki undan- tekningin er sannar regluna." Færum okkur aftur norður í land, á Hótel KEA kvöldið sem þau kynntust, og gefúm Ás- gerði orðið: „Ég var þarna á KEA með nokkrum vinkonum mínum. Skyndilega kom Sæmundur að borðinu til okkar og bauð mér upp í dans. Ég hafði ekki hug- mynd um hvaða náungi þetta væri en sagði samt já. Eftir tvo dansa kom rólegt lag. Sæ- mundur fór þá að vanga við mig. Ekki leist mér betur á málin en það að við fórum að borðinu aftur. Ég sagði vinkon- um mínum að maðurinn hag- aði sér þannig úti á dansgólf- inu að ég hlyti að hafa stigið á stóra tána á honum. Þær sögðu þá strax: Veistu ekki við hvern þú varst að dansa? Þetta er Sæmi rokk.“ Dansarnir urðu fleiri hjá þeim í KEA þetta kvöld og síð- an kom fyrsti kossinn í kaggan- um hjá Gulla Bergmann eftir ballið. Það var kveðjukossinn þetta kvöld. En ballið var samt aðeins að byrja. Ásgerður hafði ákveðið að fara með vinkonum sínum í Vaglaskóg daginn eftir. Þangað fóru einnig Sæmundur og félagar. Á þessum árum var dansað í stórum bragga í skóginum. Eins og í öllum ævintýrum hittust þau á ball- inu og dönsuðu saman. Morg- uninn eftir bar fúndum þeirra saman á fremur óvenjulegan hátt. „Það var mjög gott veður þennan dag. Þetta var dæmi- gerður sólskinsdagur og við stelpurnar vorum við ána og sleiktum sólskinið. Skyndilega sjáum við hvar maður kemur buslandi á vindsæng niður ána og vinkar til okkar. Það þarf víst ekki að spyrja að því hver þarna var á ferð,“ segir Ásgerð- ur. Eftir verslunarmannahelgina héldu Sæmundur og félagar suður til Reykjavíkur. Mánuði síðar var hann á ferðinni aftur fyrir norðan, í það skiptið til að sýna dans. Þau Ásgerður hittust þá aftur. Loks tók málið á sig alvarlegri mynd þegar Ás- gerður fluttist til Reykjavíkur, vestur á Birkimel. Stóra stund- in nálgaðist óðum. Trúlofun var í aðsigi. „Ég bauð tengdamóður minni í bíó og bíltúr á eftir inn á Hálogalandshæðir. Þar stöðv- aði ég bílinn og sagðist eiga brýnt erindi við hana sem væri bónorð um hönd dóttur hennar. Hún benti mér á að stúlkan væri aðeins sextán ára og ansi ung. Síðan sagði hún já við mig en með því skilyrði að ég myndi ekki skila henni aftur. Við trúlofúðum okkur svo 17. júní þetta sumar, 1958,“ segir Sæmundur. 17. júní árið eftir bar aftur til tíðinda. Þau Ásgerður og Sæmundur gengu þá í það heilaga. Hún 18 ára en hann 24 ára. Þau eiga fjögur börn. Sigríði, 29 ára, Hildi, 27 ára, Ásgeir (Geiri Sæm. og Hunangstungl- ið), 24 ára, og Theódóru Svan- hildi, 19 ára. 14 VIKAN 4. TBL.1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.