Vikan


Vikan - 23.02.1989, Page 41

Vikan - 23.02.1989, Page 41
s LÍTIÐ AF HVERJU TEXTI: ÁSGEIR TÚMASSON Nýr Nik Kershaw kroppur! Loksins, loksins. Nikki karl- inn er skriðinn úr hýði sínu og er á leiðinni á markaðinn :iltur eftir nokkurt hlé. Hann hefur eytt undanförnum árum í hvíld og lagagerð, og fyrr á þessu ári tók hann upp stóra plötu (LP). Eftir allt upptöku- puðið fékk hann ógeð á öllu saman, fannst öll lögin léleg og hefur ákveðið að byrja upp á nýtt og reyna að semja betri lög. Þau eiga að vera komin á plast nú í október ef allt geng- ur upp að þessu sinni. Þegar platan er komin út ætlar hann í tónleikaferðalag til að fylgja henni eftir. Aðdáendur Nikka ættu að geta dáðst að útliti hans þegar hann loks birtist þeim aftur á sviðinu, því kapp- inn æfir líkamsrækt af lífi og sál þessa dagana. Og þá er bara að bíða eftir nýja Kershaw kropp- inum. Fyrst BROS-skór nú giftingarhringar Nýlega gengu þær sögusagn- ir fjöllunum hærra í Bretlandi að Luke, sem er aðaltöffarinn í BROS-tríóinu væri búinn að gifta sig. „Hvernig getur það verið, bann sem sést aldrei með sömu stelpuskjátunni tvö kvöld í röð?“ „Hver hefur nælt í hann?“ Þessar spurningar brunnu á vörum allra stelpnanna sem eru tilbúnar að gefa aleiguna til þess eins að fá einn lítinn mömmukoss hjá honum. Þeir sem velta sér hvað mest upp úr svona slúðri hölluðust að lokum að þeirri kenningu að Luke væri að skapa nýja tísku eina ferðina enn. Fyrst var það broddaklippingin, svo buxurn- ar og skórnir (eigiði ekki BROS-skó?) og nú eru það sem sagt skartgripir margs konar, þar með taldir giftingarhring- ar. Platgiftingarhringar. (Hvar endar þetta? Nægir ekki lengur að kíkja á puttana á þessum gæjum áður en ráðist er til atlögti? Passið ykkur á þessu stelpur, en þó ekki um of. Ef þið eruð OF varkárar gætuð þið endað sem pipar- meyjar, en ef þið takið alltaf sjénsinn gætuð þið lent á harð- giftum 17 barna föður!!!) Lúxusvagnar 5 STAR systkinanna gleyma sparivagninum sem er 6 dyra Benz með hvítum leð- urinnréttingum. Já það ætti ekki að vera vandkvæðum bundið að skella sér á rúntinn á þeint bænum, nema ef vera skyldu erfiðleikar við að á- kveða hverja af öllum þessum lúxuskerrum á að velja í hvert skipti. Haldiði að það sé!!! Pearson systkinin í 5 STAR þurfa ekki að hafa áliyggjur af að rnissa af strætó þegar þau þurfa að bregða sér í bæinn. Ástæðan er einfaldlega sú að þau þekkja varla þetta fyrir- bæri „strætó". Það er nefnilega löng röð af girnileguni kcigg- um fyrir utan villuna þeirra, og það eru ekki bílar af verri endanunt. Má þar nefna Range Rover, Bentley Turbo, tvo Benza, tvo Lamborghini og eitt stykki Ferrari. Ekki má svo (Hvort ætli þau noti úllen dúll- en doff aðferðina eða ugla sat á kvisti?)!!! Hver eda hvað er þetta YAZZ? YAZZ, YAZZ, YAZZ. Þetta nafn er nú orðið ansi þekkt. En hvað er Yazz? Sumar útvarps- stöðvarnar segja að Yazz sé hljómsveit, en það er aldeilis ekki svo. Yazz er söngkona og fyrrverandi fýrirsæta, ísaf- greiðslustúlka og fl. Hún hefur prófað ýmislegt um dagana og hefur m.a. unnið hjá WHAM!, PEPSI & SHIRLIE og NIK KERSHAW. Þegar hún fékk leið á að snúast í kringum stjörnurnar ákvað hún að ger- ast sjálf poppstjarna. Það geng- ur prýðilega því aðalsmellur- inn hennar „The only way is up“ ómar nú um allar trissur. Hið rétt nafit Yazz er Yazntin Evans en gælunafnið fékk hún þegar hún var í skóla. Hljóm- sveitin hennar Yazz heitir The Plastic Population. Og að lokum, hvað skyldi hún ætla að gera við alla peningana sem nú streyma inn? Jú, ætli hún fái sér ekki bara eldabusku og bíl- stjóra því hún kann hvorki að elda né keyra!!! 4. TBL. 1989 VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.