Vikan


Vikan - 23.02.1989, Side 68

Vikan - 23.02.1989, Side 68
FYRRI HLUTI: Þannig eru fískarnir Fiskarnir eru, þegar öllu er á botninn hvolft, vingjarnleg- ustu og tilfinningarík- ustu mannverur á þessari jörð. Pað þarf ekki nema rétt að líta í augu fisksins til þess að kom- ast að raun um að tár — hvort heldur er gleði- eða sorgartár — er ekki langt undan. Þetta er svo einkennandi fyrir fiskinn, að það eitt nægir til þess að sjá að um fisk er að ræða. Fiskarn- ir bera utan á sér tilfinninga- næmið enda er það engin uppgerð. Sé tilfinninganæmi fiskanna beislað og því beint inn á svið lista og sköpunargáfu koma í ljós ótrúlega miklir listrænir hæfileikar, hvort heldur sem er hjá dönsurum, málurum eða skáldum. Listrænir hæfileikar fiskanna birtast því miður ekki alltaf með því að þeir skapi eitthvað, en eðli þeirra er gegnsýrt af listrænum anda. Stundum kemur hann aðeins fram í flótta inn í heim óraunveru- leikans eða hann fær alls ekki að njóta sín vegna minnimátt- arkenndar, en það er mikill skaði. Ef fiskarnir eru svo heppnir að eiga sér sterkari vini, sem skilja hæfileika þeirra getur það orðið til þess að þeir ýti þeim fram á rétta braut. Fiskarnir verða þá ekki aðeins starfssamir og skapandi lista- menn heldur fer svo að þeir verða að leiðtogum annarra fiska. Aðrir eiginleikar, auð- mýkt og samúð geta þá tekið á sig jákvætt og uppbyggilegt snið - í stað þess að leiða til formleysis og óreiðu, sem einnig er dæmigerð fýrir fisk- ana. Sé fiskunum ekki stjórnað á þennan hátt af öðrum getur það orðið til þess að þeir vinni allan sólarhringinn án þess að ná nokkrum árangri vegna skorts á skipulagshæfileikum. Stærsta vandamál fiskanna er að þeim hættir til að mis- túlka aðstæður. t>að getur vald- ið miklum vandræðum geri þeir ekki eitthvað til þess að koma í veg fýrir þetta. Sjálfs- blekking er þeim í blóð borin og fiskarnir eiga allt of auðvelt með að sannfæra sjálfa sig um að þeir séu ekki eins og þeir hafi verið og að ástandið sé ekki eins og það sýnist vera. Tilgangur fiskanna getur verið fullkomlega heiðarlegur og þeir geta blekkt sjálfa sig hvort heldur sem þeir eru í bjart- sýniskasti eða fullir vantrausts á sjálfa sig og umhverfið. Fisk- arnir ættu að leita ráða hjá öðrum, og það sem meira er, þeir ættu að fara að ráðum annarra. Lífið og tilveran Fiskarnir eiga ekki auðvelt með að skilja lífið og tilveruna og þyrftu að reyna að þroska með sér meiri skilning. Þeir eru yfirleitt ekki sérlega skipu- lagðir og oft er nánasta um- hverfi þeirra, ástarlífið og hvað eina í algjörri ringulreið og þeir eiga sér ekkert markmið. Fiskarnir finna tilgang í því að lina þjáningar annarra. Þetta gera þeir á margvíslegan hátt, hjálpa sjúkum granna eða þeir ganga svo langt að gerast félagar í kristilegum samtök- um, ganga jafnvel í klaustur, til þess að helga sig bæn og hug- leiðslu til þess eins að senda ffá sér jákvæðar hugsanir sem gætu orðið til að létta öðrum lífið. Draumóraheimurinn Fiskarnir vilja hjálpa öllum, ekkert verk er svo lítilsvert, engin vinna svo sóðalega eða óþægileg að þeir vilji ekki vinna hana ef hún gæti linað þjáningar annarra. Þeir geta líka gert mönnum lífið létt með því að vera skemmtilegir og eiga auðvelt með að fá fólk til að opna sig. Listrænir hæfi- leikar þeirra verða einnig til þess að þeir geta lyft öðrum inn í sinn eigin draumóraheim, þar sem gjarnan gætu búið álfar, tröll og forynjur. Þeir veikgeðja meðal fiskanna vilja leita auðveldustu leiðanna á flóttanum frá raunveruleikan- um og þeir þurfa að gera sér grein fyrir þessum veikleika sínum. STJÖRNUSPÁIN Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Næstu dagar verða með nokkru öðru móti en þú hafðir gert ráð fyrir. Innan skamms kemur til þín tortryggileg per- sóna, sem þú skalt þó ekki vísa frá þér í bili. Þú skalt ekki skemmta þér á almennum skemmtistöðum. \ Nautið 20. apríl - 20. maí Vikan verður einkar hag- stæð þeim sem fæddir eru milli 2. og 14. maí. Þú færð auðvelt tækifæri til að afla þér fjár. Einn vina þinna biður þig um ráðlegg- ingar, sem þú átt auðvelt með að veita honum ef vilji er fyrir hendi. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Kunningjar þínir hafa orðið fyrir miklu happi, sem hefur einhver áhrif á þig. Þú verður að umgangast eldri kynslóðina meira en þú hefur löngun til, en sýndu ekki óþolinmæði, það gæti valdið töluverðum leiðind- um. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Dagarnir verða að ýmsu leyti eins og þú hafðir áformað. Þó skeður nokkuð sem kemur þér mjög á óvart. Þú eyðir ein- hverju af frítíma þínum við úti- skemmtanir. Gömul kona biður þig um hjálp. Heillatölur eru 2, 19 og 33. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Þér sinnast við einn kunningja þinn og veldur það því að þú missir af einhverju sem ráðgert hafði verið. Einhver kem- ur og truflar þig við verkefni þín. Eitthvað sem þú gerðir um dag- inn veldur smá óþægindum. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Þér býðst tækifæri sem þú átt mjög hægt með að hag- nýta þér. Þú eignast tvo nýja fé- laga sem eiga eftir að stytta þér margar stundir. Þú skalt fara að ráðum þeirra sem eldri eru. Dveldu sem mest heima við. Vogin 23. sept. - 23. okt. Það er hætt við einhverri misklíð innan fjölskyldunnar, svo þú skalt varast að hafa þig mikið í frammi á þeim vettvangi. Þú mátt eiga von á einhverjum trufl- unum og töfum á framvindu viss málefnis. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Þessi vika verður ekki nærri því eins daufleg og þú áttir von á. Líkur benda til að þú farir í ferðalag sem geturtekið nokkra daga. Ungur meðlimur fjölskyld- unnar veitir þér skemmtilegan félagsskap. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Þú hefur nóg fyrir stafni í þessari viku. Reyndu að finna þér einhverja tilbreytingu í gráum hversdagsleikanum og gefðu þér tíma til lestrar. Þú ættir að kynna þér betur ýmiss konar félagsstörf. Heillatölur eru 5, 8 og 22. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Vikan verður viðburðarík en þó þarftu ekki að hafast mikið að. Þú veitir einhverjum félaga þínum aðstoð, sem tekur dags- stund eða svo. Þú færð verkefni í hendurnar nú um helgina, sem þú hefur mikinn áhuga á. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Þú færð hrós fyrir störf þín hjá yfirboðurum þínum. Þú kemst snilldarlega framhjá gildru, sem lögð var fyrir þig. Þú verður fyrir nokkrum freistingum um helgina, en skalt þó ekki láta undan þeim. Heillatölur eru 8, 13 og 15. Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars Kunningjar þínir koma þér nokkuð á óvart með ráða- gerðum sínum, sem eru mjög óvenjulegar. Þú færð ómetan- lega hjálp ákveðinnar persónu, sem hefur yfirráð yfir einhverju í starfi þínu. Taktu skemmtiboði sem þér býðst bráðlega. 66 VIKAN 4. TBL.1989 mmm NJÓTTU LÍFSINS MEÐ STJÖRNUNNI, ALLAN DAGINN Líflegir laugardagar og sunnudagar Rocta tnnliotín a til sælu með Gulla Helga og Jóni Axel JvðlQ lUiIlldllli ^ Lögin við vinnuna Stjörnufréttir \) Líflegir laugardagar r Sunnudagar til sælu //% ALLA DAGA

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.