Vikan


Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 43

Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 43
5MA5AGA eins og hann hefði ekki gert annað allt sitt líf. — Kærar þakkir, sagði Sally. - Þetta var afskaplega fallegt af yður. Það var fyrst þegar hann var kominn upp til sín, að honum varð ljóst, að hann hafði látið gullið tækifæri ónotað. Hann hefði þó getað sagt eitthvað... Antony var annars hugar á skrifstofunni daginn eftir. Það var svo áberandi, að vinnufélagar hans tóku eftir því, og einn þeirra, Tom Carrington spurði hann hrein- skilnislega: — Jæja, gamli vinur, hvað heitir hún? — Sally Prentice, svaraði Antony, án þess að hugsa sig um. Tom brosti gleitt. — Það held ég að heimurinn sé að farast! Ég hélt ekki, að þú hefðir áhuga á stúlkum. En allt kemur fyrir. Hvernig lítur hún annars út? Antony var að springa af löngun eftir að tala um ástina sína og lýsti henni ýtarlega fyrir Tom Carrington, sem hlustaði með meðaumkun. Á leiðinni að neðanjarðarbrautinni gerði Antony ótal ráðagerðir um hvernig hann ætti að fara að því, að bjóða Sally út með sér. Það, sem með þurfti voru pening- ar, dálítill þokki og að reyna að vera skemmtilegur. Peningana átti hann þó... Þegar nýr farþegahópur kom inn í lest- ina á næstu stöð, var lítilli grannri veru ýtt inn í hornið og þröngvað upp að honum. Breið karlmannsöxl þrýsti andliti hennar að brjósti hans og hann fann hvernig hún barðist um til að losna. Hann leit niður og hjarta hans tók kipp. Hún var með grænan hatt í þetta skipti en gullnu lokkarnir voru þeir sömu. Hún leit upp og tók andköf. — En — þetta er herra Blackstone, er það ekki? stamaði hún. — Kærar þakkir. Ég get ekki þolað að..., sjáið, hvað ég hef gert! Hún starði á ljósgrátt silkibindið hans og þegar hann leit niður sá hann að þar var greinilegt far eftir varir hennar! — Þetta er hræðilegt. Sally var eldrauð. — Þér náið því aldrei burt. Þessi varalitur er alveg kossekta. Antony brosti glaðlega. — Það er allt í lagi, kallaði hann yfir hávaðann í lestinni. Mér fmnst það fallegt. Það gerir bindið svo sérkennilegt. Augu Sally ljómuðu af kæti og hún skellihló. Auðvitað urðu þau samferða heim úr lestinni. Þegar hann skildi við Sally þaut hann í loftinu upp stigann. Meðan hann buslaði í baðinu söng hann hástöfum „Sól úti, sól inni,“ og trallaði inn á milli. Það var einkennilegt hve allt var einfalt, aðeins þegar byrjað var á því. Það var svo auðvelt að tala við hana og skemmtilegt að vera með henni, að þetta mundi allt verða mjög auðvelt. Byrjunin var góð og hitt kom fyrr eða seinna. Meðan hann var að binda á sig nýtt bindi, varð honum litið út um gluggan og þá sá hann hvar Sally hljóp niður tröpp- urnar og inn í lágan rauðan bíl. Hár ljós- hærður maður opnaði fyrir henni bílhurð- ina. V -Mér finnst leiðinlegt að hafa látið þig bíða svona lengi, Alistair, heyrði Antony hana segja - en ég gat ekki fundið rauðu skóna mína. Hefurðu á ævi þinni heyrt nokkuð eins asnalegt. Antony sneri sér frá glugganum og kast- ið sér niður í stól. Næstu daga flögraði Sally eins og fiðrildi um í tilveru Antonys. Á hverjum morgni Næsta laugardagskvöld sat Antony og lagði á ráðin um hvernig hann gæti hitt Sally og látið það líta út eins og tilviljun. sagði hún: Hailó, Blackstone, og á hverju kvöldi sagði hún að sama. Hún brosti töfr- andi til hans í hvert sinn, en hún var alltaf að fara eitthvað. Eftir hálfan mánuð hafði hann aðeins tal- að við hana fjórum sinnum. Antony var örvilnaður þegar Charlotta ffænka hans hringdi til hans síðdegis einn dag. Honum létti merkilega við að heyra ákveðna rödd hennar. Það voru leifar frá bernskunni, hugsaði hann daufúr. Charlotta frænka spurði hann hvernig honum liði og gaf honum stutta skýrslu um líðan Sophiu ffænku. Síðan tilkynnti hún honum, að þær systurnar ætluðu til London daginn eftir og hvaða kvikmynda- sýningu þær langaði til að sjá, hvert og hvenær hann ætti að sækja þær og kvaddi hann svo stuttlega. Antony hitti frænkurnar eftir sýninguna. Hann fór með þær heim í íbúðina til að gefa þeim tebolla áður en hann færi með þeim á stöðina og óskaði sjálfúm sér til hamingju með, hve snurðulaust þetta hafði gengið. En Charlotta frænka lét hann ekki standa lengi í þeirri trú. — Antony, sagði hún og settist í besta stólinn hans — þú hefur breyst. Hvað hefur komið fyrir? Hann starði orðlaus á hana. — Reyndu ekki að skrökva neinu að mér, hélt hún áfram. — Þér hefur hingað til ekki tekist að blekkja mig. í því var barið að dyrum og Antony fór ffam til að opna, þakklátur fyrir truflunina. Fyrir utan stóð Sally, í ljósgrænum kjól. — Það var indælt að þér skylduð vera heima, sagði hún. — Allir aðrir í húsinu eru einhvers staðar úti. Lítið á. Hún sneri bak- inu að honum. Rennilásinn hefúr fest og ég get hvorki náð honum upp né niður. Ég kemst ekki einu sinni úr kjólnum, þannig að ég geti lagað hann. Getið þér hjálpað mér? Antony stóð og starði á berar axlir hennar. — Æ, gerið það fyrir mig, sagði hún eyðilögð. Eins og í móðu heyrði hann gjallandi rödd Charlottu frænku innan úr stofunni. — Segðu henni að koma inn Antony. Kannski getum við hjálpað henni. Sally snarsneri sér við og þaut inn í stof- una. Frænkurnar heilsuðu henni án þess að sýna nokkra undrun og Sally brosti töfr- andi til þeirra, og kraup niður hjá þeirri ffænkunni, sem nær sat. - Ég heiti Sally Prentice, sagði hún glaðlega. — Ég bý hér á fyrstu hæð. Þið hljótið að vera ffökenar Blackestone, frænkur Anton- ys. Frú Mortimer hefúr sagt mér ffá ykkur. Það var reglulega heppilegt fyrir mig, að þið skylduð vera staddar hér núna. Charlotta frænka brosti vingjarnlega til hennar og Sophia ffænka leit með skilningi á frænda sinn. - Þetta er yndislegur kjóll, sem þér eruð í, góða mín, sagði hún blíðlega. Sally beygði sig, svo Charlotta kæmist að rennilásnum. - Þetta er eftirlætiskjóll- inn minn. Ég er aðeins í honum við sér- stök tækifæri, en eins og venjulega var ég að verða of sein og þá festist rennilásinn auðvitað. — Sitjið bara kyrr, sagði Charlotta frænka. — Ég verð enga stund að þessu. Andartaki síðar sagði hún ánægð. — Jæja, nú held ég að þetta sé í lagi. Sophia, vilt þú halda kjólnum saman að ofan, þá held ég lásnum saman að neðan, og þá getur Ant- ony rennt lásnum upp. Antony gerði eins og honum var sagt. Það var eins og hann hefði tíu þumalfing- ur, en lásinn rann auðveldlega upp. Sally stóð á fætur með yndisþokka og brosti þakklát. — Þakka ykkur öllum kær- lega fyrir, sagði hún. — En ég verð að þjóta. Alistair getur komið á hverri stundu og ég er ekki nærri tilbúin. Þegar Antony hafði lokað á eftir henni gekk hann þunglega inn í stofuna aftur. — Ó, Antony, sagði Sophia ffænka æst, hún er töfrandi. Og mikið hefúr hún fallegt hát. — Reglulega lagleg og vel uppalin stúlka, samsinnti Charlotta frænka allra náðarsamlegast. Antony starði orðlaus á þær. - Heyrðuð þið ekki hvað fröken Prentice sagði? Hún ætlaði út með Alistair. — Ekkert gerir það til, sagði Charlotta ffænka. — Hún er ekki trúlofuð. Ég gáði að því, en hún var ekki með hring. Hún reis upp. — Komdu Sophia, við verðum að fara. Næsta laugardagskvöld sat Antony og lagði á ráðin um hvemig hann gæti hitt Sally og látið það líta út eins og tilviljun. Hann hrökk upp við að bíll hemlaði fyrir utan og Frh. á bls. 44 9. TBL. 1989 VIKAN 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.