Vikan - 05.10.1989, Page 14
BRUÐKAUP
Fegurdardrotfning
giftir sig
Fegurðardrottning íslands 1984,
Berglind Johansen, gifti sig þann
12. ágúst síðastliðinn og sá
heppni, sem hana fékk, heitir Pét-
ur Albert Haraldsson. Brúðkaupið var
haldið með pompi og prakt; Berglind og
Pétur vildu eiga eftirminnilegan dag og
pabbi Berglindar, Rolf Johansen, sagði að
það væri eins gott að gera þetta vel því
það væri ekki víst að hann ætti eftir að
halda aðra brúðkaupsveislu. Hann átti þar
við að þó að börnin séu sex er Berglind sú
eina sem hefur gifst — hin eru annaðhvort
enn svo ung eða ánægð með að vera bara
í sambúð.
„Ég held nú samt að pabba finnist þetta
gott í bili,“ segir Berglind, „og að hann sé
feginn að það er ekki annað brúðkaup á
döfinni á næstunni. Hann var svo stressað-
ur yfir þessu, aðallega þó að ganga með
mér inn kirkjugólfið og að ræðan, sem
hann héldi í veislunni, væri góð.“
Sá hana fyrst þegar
hún var tólf ára
Þar sem það er til siðs að spyrja hvernig
brúðhjónin kynntust þá byrjum við á því.
„Pétur sá mig fyrst þegar ég var tólf ára
og var í badminton. Honum leist víst strax
vel á þessa stelpu þó hann væri orðinn
fimmtán ára. Þ$ð var svo fyrir níu árum
sem við kynntumst. Sameiginlegur vinur
okkar vann að því að koma okkur saman
og honum tókst það. Fyrst í stað vorum
við bara góðir vinir. Pétur fór svo í burtu,
var skiptinemi í eitt ár og þegar hann kom
til baka fórum við að vera saman af alvöru,
en þá var ég sextán ára. Þetta fór sem sagt
hægt og vel af stað en þegar ég tók þátt í
keppninni um titilinn ungfrú ísland og
vann hana þá buðust mér módelstörf er-
lendis út frá því, sem ég ákvað að taka. Við
ákváðum þá — alveg í góðu — að hætta að
vera saman og ég fór svo út. Ég var úti í
þrjá mánuði, kom svo heim um jólin og þá
byrjuðum við aftur saman því við ftmdum
að samband okkar var eitthvað sem við
vildum ekki slíta. Eftir á erum við mjög
ánægð yfir því að við skyldum hætta þama
því það gaf okkur tíma til að hugsa í sitt
hvoru lagi um hvað við vildum og það er
ekki víst að við værum saman nú ef þetta
hefði ekki gerst.“
Eigum við ekki að trúlofa
okkur fyrst?
Berglind og Pétur hafa síðan oft verið
aðskilin um lengri eða skemmri tíma en
TEXTI: BRVNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Brúðhjónin Berglínd Johansen og Pétur
Albert Haraldsson.
Brúðarkjóllinn er ekki síður fallegur aft-
an frá að sjá. Móðir Berglindar, Kristín,
lagar slörið og Bjami hárið.
það virðist ekki hafa gert annað en styrkja
sambandið. Hann lauk stúdentsprófúnum
á undan henni og fór í nám í alþjóðlegum
viðskiptum í Connecticut. Berglind fór
síðan út á eftir honum og tók kúrsa í ýms-
um fögum en einbeitti sér þó einna mest
að sálarffæði, sem hún hefúr áhuga á að
ljúka prófi í, en inn á milli fór hún heim til
Islands til að vinna. En hvenær ákváðu þau
síðan að gifta sig?
„Það var mjög falleg og rómantísk
stund,“ segir Berglind. „Þetta var fyrir
tveim árum, nánar tiltekið 4. ágúst, og við
vorum á kvöldgöngu niðri við Tjörn og
veðrið var sérlega fallegt. Ég segi svona
upp úr eins manns hljóði: Eigum við
kannski að gifta okkur í þessari kirkju? Og
bendi á Dómkirkjuna. Pétur varð dálítið
hissa en segir svo: Eigum við ekki að trú-
lofa okkur fýrst? Og dregur svo hringa upp
úr vasanum sem hann var þá búinn að
kaupa og láta grafa nöfnin okkar í. Hann
var þá búinn að vera að hugsa um það
hvernig og hvenær hann ætti að hefja máls
á þessu, en svo var það ég sem gerði það.
Þetta var yndisleg stund og ætli megi ekki
segja að það hafi verið þá sem við ákváð-
um að gifta okkur.“
Kjóllinn keyptur í New York
Næst lá leið þeirra til Norður-Karólínu-
fýlkis í Bandaríkjunum þar sem Pétur var
að vinna við markaðsmál í eitt ár en Berg-
lind var með honum þar í hálft ár og tók
nokkra fleiri kúrsa í skólanum í sálarfræði
og tungumálum. Giftingin var ákveðin og
Berglind var farin að hugsa um brúðarkjól-
inn en hún átti erfitt með að ákveða sig.
Þegar mamma hennar, Kristín Ásgeirsdótt-
ir Johansen, hringdi svo til hennar og
sagðist ætla að slást í förina með Báru Sig-
urjónsdóttur, kaupmanni í versluninni Hjá
Báru, til New York og að þær gætu þá allar
þrjár valið kjólinn í sameiningu, þá var
hún ekki lengi að slá til. Berglind sagði að
hún væri búin að heyra margar sögur um
kjólinn sinn en svona væri nú sagan um
hann. Sig hefði langað til að gifta sig í
ævintýralega fallegum kjól og hann er svo
sannarlega fallegur, eins og myndirnar
sýna.
Eitthvað gamalt,
eitthvað nýtt...
Brúðkaupið fór síðan fram í Hallgríms-
kirkju 12. ágúst og gaf séra Pétur Sigur-
geirsson brúðhjónin saman. Á eftir var
Frh. á næstu opnu.
14 VIKAN 20.TBL 1989