Vikan


Vikan - 05.10.1989, Blaðsíða 20

Vikan - 05.10.1989, Blaðsíða 20
nemi annað tungumál, þá annaðhvort spænsku, þýsku eða ítölsku. Enska er ekki kennd við skólann þar sem öll kennsla fer fram á ensku. Önnur fög, sem kennd eru við skólann, eru svo tölvufræði og hag- fræði tengd ferðamálum, vélritun, telex- notkun, skipulagning sérhópferða, þá til dæmis ráðstefnuhópa, og svo að lokum bókfærsla. Skólagjöld við Hosta skólann voru um 21000 svissneskir frankar síðasta vetur en innifalið í þeirri upphæð er vist á stúdenta- garði, yfirleitt í tveggja manna herbergi, og tvær máltíðir á dag. í Leysin er nokkuð mikið um veitinga- og dansstaði og um- hverfis bæinn eru mörg skíðasvæði. Höllu fannst annars helsti ókosturinn við bæinn vera hve lítið var við að vera að öðru leyti. Hins vegar sagði hún bæjarstjórnina standa í stórræðum þar sem verið væri að reisa nýja íþróttahöll en sú gamla var lokuð. Þá stendur til að endurreisa kvik- myndahúsið þar sem það gamla brann. Höllu líkaði námið í skólanum almennt vel þó að sumu hefði verið ábótavant, til dæmis var tölvukostur skólans fátæklegur og því oft erfltt að fá aðgang að tölvu. Hins vegar er verið að endurnýja hann um þess- ar mundir og stendur til að auka kennslu í þeim fræðum. Samgöngur við Leysin eru ekki mjög góðar og þeir sem ekki höfðu aðgang að bíl lentu stundum í vandræðum þar sem strætisvagnar og önnur samgöngutæki til Leysin hætta að ganga klukkan tíu á kvöldin. Annars sagði Halla bæinn mjög fallegan sem og héraðið í kring. Skólinn er mjög alþjóðlegur og nemendur flestir að- komumenn og því kynnist fólk fljótt. Skól- inn rekur dansstað sem opinn er einu sinni í viku og þar hittast nemendur mjög mikið. Halla fór í þennan skóla með því hugar- fari að afla sér menntunar til að geta starf- að við ferðamál á íslandi, án þess þó að þurfa að leggja hárgreiðsluna á hilluna því að hún er henni alltaf mikið áhugamál. Halla Hauksdóttir, fædd 23. júní 1961. Ferðamálafræði, Hosta, Sviss. Útskrifaðist úr Iðnskólanum í Hafnar- firði sem hárgreiðslusveinn árið 1980. MYND OG TEXTI: ÞÓRDÍS E. ÁGÚSTSDÓTTIR Halla Hauksdóttir hefur starfað sem hárgreiðslumeistari á höfuðborgarsvæðinu undanfar- in ár, nú síðast á hárgreiðslu- stofunni Salon Veh í Húsi verslunarinnar. í fyrrahaust tók Halla sér frí frá störfum, lagði land undir fót og hélt til Sviss til að nema þar ferðamálafræði við Hosta Hotel and Tourisme skólann (hótel- og ferða- málaskólann Hosta). Skólinn er í þorpinu Leysin sem er í Ölpunum, í franska hlutanum á Sviss. Leys- in er nálægt borgunum Lausanne, Montre- ux og Genf. í þorpinu eru alls þrír skólar, auk hótel- og ferðamálaskólans eru þar tveir bandarískir skólar, American high school og American college. í Leysin búa aðeins tvö þúsund manns fýrir utan nem- endur þessara þriggja skóla. Leysin er gífurlegur ferðamannabær. Þar er skíða- íþróttin mikið stunduð á veturna enda að- stæður einstaklega hagstæðar til að stunda þá íþrótt á þessum slóðum. Bærinn er í 1460 metra hæð yflr sjávarmáli og skíða- lyftur um flmmtán talsins á um það bil sex- tíu kílómetra breiðu skíðasvæði. Hosta skólinn var stofiiaður árið 1959 og hefur alla tíð tekið á móti nemendum hvaðanæva úr heiminum. Undanfarin ár hafa numið að meðaltali tvö hundruð nemendur við skólann. íslendingar hafa sótt skólann talsvert undanfarin tvö ár og í fyrra voru þar um tuttugu íslendingar við nám. Inntökuskilyrði í skólann eru að hafa náð átján ára aldri og hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára ffamhaldsnámi. Einnig er nauðsynlegt að vera vel að sér í ensku þar sem öll kennsla fer fram á ensku. Nám í ferðamálafræði tekur eitt ár við skólann, hins vegar tekur nám í hótel- rekstrarfræði tvö ár. Námsskráin í ferða- málafræði var samin af flug- og ferðamála- fræðingum. Þetta er svokölluð IATAAJFT- AA (International Air Transport Associat- ion / Universal Federation of Travel Agents Associations) námsskrá og er ætl- uð til að búa nemendur skólans undir að starfa sem ferðamálafulltrúar eða sölu- menn en einnig ættu þeir er útskrifast frá skólanum að geta starfað við flest störf tengd ferðaþjónustu. í lok skólaárs taka nemendur tvö próf. Þeir taka próf sem gefur ferðamálaskírteini frá skólanum og eins reyna þeir við annað próf, svokallað alþjóðlegt ferðamálaráð- gjafapróf. Skólaárið stendur yfir frá lokum ágústmánaðar til loka maímánaðar með íjögurra vikna jólafríi og þriggja vikna páskafríi. Fögin, sem eru kennd í ferðamálafræð- um í Hosta skólanum, eru eftirfarandi: Ferðaskrifstofumál, það er að segja ferða- skrifstofuþjónusta — flug-, sjó- og lestar- flutningur ferðamanna, bílaleigukerfl, kynningarferðir, tryggingamál, hópferðir og hótelmál; ferðaskrifstofúaðferðir, það er að segja skipulag, bókhald og endur- skoðun, skráning og tryggingamál innan ferðaskrifstofú; ferðaskrifstofufagmál; sölu- tækni, bæði í gegnum síma og við sölu- borðið; almenn landafræði — helstu ferða- manna- og flugsvæði — tímasvæði og tíma- mismunur; kynning á ferðahandbókum; inngangur að flugmálafræði, það er að segja kynning á helstu gerðum flugvéla og einkennum þeirra, bókun og skráning far- miða, farangursskráning og tryggingar, auk kynningar á þeirri þjónustu sem boðið er upp á á flestum stærri flugvöllum; skipulag ferða, svo sem skipulagning og sala á ein- staklings- og hópferðum; ferðamál — saga og þróun, ferðamál og hagfræði, samfélag og umhverfi. Allir nemendur Hosta skólans læra frönsku og ef nemandi er vel á vegi stadd- ur í ffönskunámi er mælt með að hann 20 VIKAN 20. TBL 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.