Vikan - 05.10.1989, Síða 22
5TJORHUMERKI
Leyndarmál vogarinnar
er falið í árstíðunum
hittin þeim finnst stjörnuspek-
in.
En stjörnuspekin var merki-
lega hittin hvað Guðlaug Þor-
valdsson, sáttasemjara ríkisins,
varðar! Hann er vog og sagt er
um merkið: „Fólk í vogarmerk-
inu bregður sér í hlutverk
friðardúfunnar og sættir fólk
sem er ósammála. Þegar aðrir
eru ósáttir verður þetta fólk
ákafiega friðarsinnað og reynir
að sætta hina stríðandi aðila.“
Vogin er sjöunda merkið í
dýrahringnum, stöðugt loft.
Takið eftir því að vogin er eina
merkið sem ekki á sér lífrænt
tákn.
Fólk í þessu merki hefúr
jafhmikla ímugust á fordóm-
um, óréttlátum ásökununt og
trúgirni. Vogin leitar hins eina
og rétta sannleika, hins hár-
nákvæma jafnvægis sem verð-
ur til þess að komist er að
réttri niðurstöðu eftir að öll
smáatriði hafa verið vegin og
metin.
Sanngirnin er dýrkuð eins
og skurðgoð en hin cndalausa
íhugun getur valdið því að
vogin kemst sjálf aldrei að
niðurstöðu.
Vogir eru fjölmennar á Al-
þingi, þær eru níu og það er at-
hyglivert að fúlltrúar merkis-
ins sem er andspænis voginni,
hrútsins, eru líkaníu. Afstaða á
milli merkjanna er 180 gráður.
Um 180 gráða afstöðuna er
sagt að hún birtist oft í félags-
legu samstarfi. í þessari af-
stöðu er um andstæð merki að
ræða en í svona afstöðu felst
togstreita sem skipar orku,
kraft, athafúasemi og breyting-
ar. Annað merkið vill athafnir
sem henta hinu illa. Þau þurfa
því að fá sitt til skiptis. Tæpan
þriðjung þingmanna er að
finna í þessum tveimur
merkjum.
Venus er pláneta vogarinnar
og það er Venus sem gefur
jafnvægi og hefúr sterk áhrif á
samskipti manna á meðal.
Venus er líka ástarplánetan
og vogin er sögð hafa fúndið
rómantíkina upp og fágað hana
þar til hún var orðin að eins
konar list.
Það á vel við vogina að svífa
um í sendiráðum því þetta fólk
hrífst af mildum litum, ljúfri
tónlist, athyglisverðum sam-
ræðum, góðum mat og eðal-
vínum.
Það er auðvelt að lynda við
vogarfólk, sem er diplómat-
ískt, blítt og þolinmótt. Margir
munu verða til að segja að fólk
í voginni sé ástúðin, fegurðin,
sætleikinn og birtan uppmál-
uð.
Hið rétta er að vogirnar búa
að hálfú yfir þessum eiginleik-
um. Hinn helmingurinn ein-
kennist af skapillsku, þrætu-
girni, þrjósku, eirðarleysi,
þunglyndi og ringulreið. Það
gengur mikið á áður en hinu
dásamlega vogarjafnvægi er
náð.
Vogin er við-merki og getur
hæglega fallið í þá gryfju að
dansa um of eftir óskum ann-
arra.
Víðsýni vogarinnar og það
að vilja skoða mál frá öllum
hliðum getur líka leitt til þess
að hún á erfitt með að taka á-
kvarðanir.
Vogin vill vera yfirveguð en
því fylgir að hún á oft erfitt
með að takast á við flókin til-
finningavandamál. Því er hætt
við að öðrum geti fundist hún
ópersónuleg og köld þrátt fýr-
ir ljúfa framkomu.
Vogarmenn eiga til að vera
léttlyndir, sérstaklega á yngri
áruni og eiga erfitt með að
greina á milli vináttu og ástar
en þeir hljóta aldrei varanleg
meiðsl vegna ástarsorgar.
Þó hann sé rómantískur get-
ur þér þótt sem hann sýni ekki
nægan skilning á þínum innstu
þrám. Þessi maður er nefhilega
dómari — hann hefúr engan
áhuga á tilfinningahnútum
heldur aðeins bláköldum
staðreyndum.
Þó hann sé sérfræðingur í
ástamálum sýnir hann litla inn-
sýn í skapsmuni þína og á erfitt
með að koma auga á til-
finningahlið málsins.
Hann er yfirleitt fyrirtaks
foreldri þó makinn sé ofar öllu
hjá honum en börnin númer
tvö.
Vogarkonan er einstaklega
glæsileg og munaðarleg í
hreyfingum. Hún nýtur þess
valds sem fegurð hennar, mun-
Samskipti, ást,
vinátta, listir,
gildismat,
fjármál, fágun
og samvinna
<£ Neikvæðar
hliðar: Aðgerð-
arleysi,
óákveðni, leti,
nautnasýki og
veiklyndi
Stytta af hinni fomu ástar-
gyðju Ishtar, sem Babyloníu-
menn kenndu við plánetuna,
sem við í dag þekkjum sem
Venus.
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN
"'■r TT ikan hleypir nú af
/ stokkunum stjörnu-
merkjaumfjöllun í
T gamni og alvöru með
nokkuð öðrum hætti en áður
hefúr tíðkast í blaðinu. Við
segjum frá helstu sérkennum
hvers merkis og spyrjum maka
eða sambýlisfólk einhvers úr
merkinu hvort þessar lyndis-
einkunnir eigi við. Stuðst er
við bók Lindu Goodman,
Stjörnumerkin og áhrif þeirra,
og Stjörnumerkin og kynlífið
eftir Judith Bennett. Það er af
handahófi hvort eiginkonur
eða eiginmenn eru spurð um
maka sinn. Einnig birtum við
nöfn þekktra íslendinga sem
fæddir eru í viðkomandi
stjörnumerki og geta þá les-
endur gert upp við sig hve
Franska leikkonan Brigitte
Bardot, sem var talin ástar-
gyðja kvikmyndanna. Bardot
er fiedd í vogarmerkinu,
merki sem stjómað er af
plánetunni Venus.
VENUS
22 VIKAN 20 TBL 1989