Vikan - 05.10.1989, Síða 51
BÆKUR
Tuppence er dæmi um djarfa konu sem
nær árangri með því að beita „kvenlegum"
aðferðum - viðhorfið er að konum leyfist
ýmislegt sem karlmenn láta sér ekki detta
í hug vegna þess að þær eru nú einu sinni
eins og þær eru. Einnig kemur svokallað
„kvenlegt innsæi" títt við sögu — þá er iðu-
lega um að ræða ólíka reynslu, kunnáttu
og skilning sem kemur að góðu gagni. Það
getur skipt sköpum að þekkja muninn á
silki og flaueli þegar slíkt er þýðingar-
mikið sönnunargagn og konurnar eiga
stundum greiðari aðgang að öðrum
konum, til dæmis í versiunum eða eldhús-
um óðalssetranna þar sem fá má gagnlegar
upplýsingar.
Drottningar
sakamálasagnanna
Konur hafa ffá upphafi verið ffemstar í
flokki spennusagnahöfúnda. Á árunum frá
aldamótum fram um 1925 voru þær helst-
ar Emmuska Orczy, barónessa af ungversk-
um ættum, Mary Beooloc Lowndes, sem
skrifaði hina frægu smásögu Leigjandann,
og Mary Roberts Rhinehardt og Carolyn
Wells í Bandaríkjunum. Sú síðarnefhda
skrifaði yfir 60 sögur um leynilögreglu-
manninn Flemming Stone og samdi
kennslubók í sakamálasagnagerð sem kom
út 1913-
Árin milli 1925 og 1940 eru kölluð gull-
öld sakamálasagnanna. Títtnefhd drottn-
ing glæpasagnanna, Agatha Christie, fædd-
ist árið 1890 og fyrsta bók hennar, The
Mysteríous Affair at Styles, kom út árið
1920 en þar fór Hercule Poirot með aðal-
hlutverkið. Á næstu 56 árum skrifaði Agat-
Ruth Rendell sem margir kalla arftaka
Agöthu Christie.
ha Christie 66 sakamálasögur sem margar
hverjar hafa verið þýddar á flest ritmál
heims, kvikmyndaðar, sviðsettar og
stældar.
Sem ung kona í fyrri heimsstyrjöldinni
vann Agatha Christie við birgðavörslu á
sjúkrahúsi og öðlaðist við það hagnýta
þekkingu á eiturefnum. Síðari eiginmaður
hennar var fornleifafræðingur og fór hún
oft með honum í leiðangra til Austurlanda,
nokkuð sem einnig sér iðulega stað í bók-
um hennar.
Aðalsmerki Agöthu Christie er snilldar-
leg söguflækja - ráðgáta - þar sem lesand-
inn er iðulega leiddur á villigötur í kitlandi
Roy Marsden í hlutverki Adams Dagliesh
I sjónvarpsgerð skáldsögunnar A Shroud
for a Nightingale eftir P. D. James.
spennu. Samtöl bókanna eru hárfín og
húmorinn er ríkulegur. Hins vegar hafa
persónur hennar sjaldan verið annað en
yfirborðslegar týpur, umhverfi og atburða-
rás er óraunveruleg og stöðluð samkvæmt
ákveðinni hefð. Sögurnar gerast í heimi
yfirstéttarinnar, meðal aðalsmanna og auð-
kýfinga. Skáldkonan vandar til efnisins en
þjóðfélagslegt raunsæi vakir ekki fýrir
henni. Bækur Christie eru ósviknar
skemmtisögur, lokaður heimur milli
spjalda bókarinnar, sem endurspeglar
engu að síður illskuna sem alls staðar er
undir sólinni, ekki síður í ljómanum af hin-
um auðugu.
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þessi vika er mjög hag-
stæð til hvers konar viðskipta. Þú
verður fyrir óvæntu happi í pen-
ingamálum, sem mun koma sér
vel fyrir þig. Bréf færir þér óvænt-
ar gleðifregnir.
dnoö Nautið
TjT 20. april-20. mai
^ Athafnir barna virðast
vera allsráðandi þessa dagana og
varða þig miklu. Eldra fólk, fætt í
þessu marki, má búast við ýms-
um erfiðleikum sem vaxa þeim
mjög í augum í fyrstu.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Einhvers konar endur-
skipulagning mun auðvelda þér
lífið og tilveruna og þú verður
mikillar hamingju aðnjótandi.
Kunningjar þínir og samstarfs-
félagar munu reynast óvenju
samvinnuþýðir.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Ailar athafnir þínar verða
undir eftirliti, er gömul ábyrgð
verður lögð á herðar þínar að
nýju. Ungt fólk, sem varðar þig
miklu, virðist í fremur þungu
skapi þessa dagana og leitar að-
stoðar.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Leiðinlegt ágreinings-
atriði gæti valdið deilu milli þín
og maka þíns og þú verður að
varast að láta skapið hlaupa með
þig í gönur. Vertu ekki of dóm-
harður við þá sem þér þykir
vænst um.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Eitthvað, sem þú segir
eða gerir, gæti móðað einhvern
stórlega og þvi ættirðu að hugsa
þig tvisvar um áður en þú segir
álit þitt á ákveðnu máli. Heillalitur
er rauður.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Tilfinningar þínar í garð
vissrar persónu fara kólnandi en
þú verður að varast að særa
hana. Vertu umfram allt hrein-
skilin(n) og heiðarleg(ur) - með
því geturðu haldið vináttunni.
Sporðdrekinn
24. okt. -21. nóv.
Pú verður að leggja sér-
staklega hart að þér þessa dag-
ana svo góður árangur hljótist af
störfum þínum. Pú skalt ekki
búast við viðurkenningu strax fyr-
ir vel unnin störf, en þau eru met-
in til fulls.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þú skalt freista gæfunnar
i þessari viku, þar sem stjörnurn-
ar eru þér sérlega hagstæðar.
Minni háttar vangaveltur yfir vin-
arsambandi gætu borgað sig.
Vertu heima á sunnudag.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Pú ert útkeyrður og
þarfnast góðrar hvíldar, þótt þú
teljir þig ekki hafa tíma til slíks.
Reyndu að gefa þér smátíma til
að breyta til í einhverri mynd.
Óvænt ferðalag er líklegt.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Pú ættir að gera allt sem
þú getur til að fá upplyftingu þar
sem þú hefur verið heldur daufur
í dálkinn upp á síðkastið. Breyt-
ing er yfirleitt til batnaðar og
mun hressa þig.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Líkur eru á að skoðanir
þínar í ákveðnu máli geti valdið
miklum deilum og jafnvel orðið
til þess að þú missir frá þér einn
besta vin þinn. Mundu að oft má
satt kyrrt liggja.
20. TBL. 1989 VIKAN 49
5TJORMU5PA