Vikan


Vikan - 02.11.1989, Síða 13

Vikan - 02.11.1989, Síða 13
RAÐ TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON "^T TT iðskiptavinur stórverslunar / kemst svo að orði: „Það eina sem m/ mig raunverulega vantaði voru ó- T dýrir tennisskór til að snúast í en þegar ég var kominn á staðinn og sá sér- staklega nýtískulega skó, sem kostuðu 400 krónum meira en þeir sem ég hafði ætlað að kaupa, hugsaði ég með mér: Hvaða máli skiptir þó að ég kaupi dýrari skóna? Mig munar ekkert um 400 krónur þegar ég fær útborgað.“ Platpeningar, plastpeningar eða hvað við köllum krítarkortin okkar — staðreynd- in er sú að þau fá okkur til að halda að við séum ekki í raun og veru að eyða bein- hörðum peningum. Þetta kalla rannsókn- armenn „krítarkortaáhrif'. „Fólk eyðir meira og hraðar þegar það sér skilti á borð við Við tökum öll helstu krítarkortin,“ segja vísindamenn á sviði sálarfræði. Aðeins það að minna þig á að þú hefur krítarkort í vasanum fær þig til að eyða meira. Æpandi myndir af krítarkortum á dyr- um verslana og afgreiðslukössum þeirra hvetja okkur til skuldbindinga sem við í raun og veru höfúm ekki efni á. Þetta þýð- ir að jafhvel þau okkar sem erum íhalds- söm á peninga erum jafnvel fáanleg til að eyða mun meira en góðu hófi gegnir. Stundum lítur jaíhvel út fýrir að engrar undankomu sé auðið í krítarkortasam- félagi nútimans. Hættusvæði Áhrif þessa vinalega og höfðinglega and- rúmslofts greiðslukortaviðskiptanna sjást einna gleggst í stórmörkuðum. „Yfir- leitt er meirihluti allra vara borgaður með krítarkortum,“ segir verslunareigandi nokkur sem gert hefur könnun á sölu vasa- myndavéla í verslun sinni. Hann segir að þeir sem hafi krítarkort undir höndum séu tilbúnir að eyða um 3200 krónum að meðaltali í kaup á slíkum myndavélum en þeir sem greiða í reiðufé séu aðeins til- búnir að greiða um 1800 krónur. Hann segir einnig að með viðtölum við við- skiptavinina hafi komið í ljós að þeir sem borga með greiðslukortum séu tilbúnir að borga um 1500 krónum meira fyrir fatnað en þeir myndu gera ef þessi greiðslufrest- ur stæði ekki til boða. Veitingastaðir eru einnig hættusvæði. Þar teygist ekki aðeins á fjárhagsáætluninni heldur einnig á buxnastrengnum. Það er staðreynd að fólk borðar meira þegar það þarf ekki að sjá peningana sem það eyðir. Greiðslukort eru sérstaklega hættuleg þeim sem hættir mjög til að versla mikið. Komið hefur fram að viðskiptavinir eru tvöfalt fljótari að gera upp hug sinn í við- skiptum ef þeir sjá skilti með krítarkorti. í viðtölum við rannsóknarmenn á þessu sviði segja nokkrir viðskiptavinir svo frá. Kona á miðjum aldri: „Ég vinn í gesta- móttöku hótels og hef um 800 þúsund krónur í árstekjur. Það er ekki óalgengt að ég kaupi mér fatnað fyrir um 30 þúsund Breyttu krítarkortavenjum þínum! Borgaðu strax og þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur seinna. Ekki hœtta samt að nota kritarkortin heldur hœttu að nota þau hömlulaust krónur í einni búðarferð og ég greiði alltaf með krítarkorti." Þrítug kona segir: „Þegar ég ætla að kaupa eitthvað kemst ég alltaf í uppnám. Ég hraða mér alltaf að afgreiðsluborðinu og flýti mér að borga áður en mér snýst hugur." Þegar viðskiptavinur veit að sölumaður- inn þekkir hann ýtir það undir viðskipta- vininn að gera honum til hæfis og jafnvel að fá aðdáun hans í leiðinni. Þetta eru meðal annars þættir sem ýta undir við- skiptin. Hugsunin að lifa aðeins fýrir dag- inn í dag er alltof algeng. Einn viðskiptavinur kemst svo að orði: „Þegar ég borga með reiðufé hugsa ég mig vel og vandlega um áður en ég geng ffá kaupunum, rannsaka vöruna vel og vand- lega og ber jafhvel saman verð í þremur eða fjórum mismunandi verslunum. Þegar ég versla með greiðslukorti fer hugsunin og samanburðurinn út í veður og vind. Fólki finnst eins og það sé ekki að eyða raunverulegum peningum. Fólk gabbar sjálft sig með því að hugsa sem svo að það þurfi ekki að greiða vörurnar fyrr en eftir á annan mánuð og notar því krítarkortið til að eyða óinnkomnum tekjum, sem svo er ekkert víst að dugi fyrir öllum þeim út- gjöldum sem þá standa fyrir dyrum.“ Þýða þessar staðreyndir að við ættum að leggja krítarkortin alfarið á hilluna? Nei, segja vísindamenn og þeir vara við því. Þegar þau eru notuð af skynsemi eru þau mjög nytsamleg. Hvernig er þá ffamtíð þeirra sem nota þau í óhófi? Góðu tíðindin fyrir þá eru að þeir geta tekið sig á og lært af mistökum sínum. Flestar af þeim fjölskyldum sem voru í fjárhagsvanda vegna krítarkorta 1983 höfðu komist út úr honum 1986, segja bandarískir vísindamenn. Aðeins á bilinu 1-3 prósent þeirra lentu aftur í vandræðum. Það þarf ekki mikið til að ýta við fólki — til að það sýni þann aga að kaupa aðeins það sem það þarfnast en ekki allt sem hugurinn girnist. Komið í veg fyrir vandann — Ákveðið hvað þið ætlið að kaupa áður en þið farið inn í verslunina og hafið krít- arkortið ekki með nema þið ætlið að nota það til að greiða fýrir fyrirfram ákveðinn hlut. — Greiðið upp alla skuld ykkar um hver mánaðamót og dragið þann kostnað frá á ávísanaheftinu. — Komið í veg fyrir að krítarkortaáhrif- in nái tökum á ykkur. Það borgar sig að hafa hugfast að greiðslukortaskilti geta haft áhrif á viðskiptin, jafnvel þótt greitt sé í reiðufé. Aðeins með því að vera meðvit- aður um þessi áhrif er algerlega hægt að koma í veg fyrir þau. — Þið getið gert ykkar eigin fjárhags- áætlun. — Hugsið um reikningana, sem þurfti að greiða um síðustu mánaðamót, í hvert sinn sem krítarkrotið er tekið fram. - Hafið hugfast að sumt fólk fitnar af því einu að horfa á mat og aðrir eyða með því einu að horfa á krítarkort. Ekkert er betra en að vera í góðu líkamlegu og and- iegu ásigkomulagi og engin kaup geta veitt meiri ánægju en fæst með því að vita að maður er borgunarmaður fýrir reikning- um sínum. □ 22. TBL 1989 VIKAN 1 3

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.