Vikan


Vikan - 02.11.1989, Qupperneq 31

Vikan - 02.11.1989, Qupperneq 31
NÝJUMGAR Nasa er einfoldlega stungið í kveikjarainnstunguna. Ilmur getur læknad höfuðverk, skerpt athyglina og komið þér í gott skap TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR Af skynferum okkar er þefskynið það sem við . notum flest minnst og sjaldnast til að bæta heilsuna. Undanfarin ár hafa farið fram rannsóknir á þætti þefskynjun- arinnar í velferð okkar og komið hefur í ljós að mismun- andi ilmur virkar á okkur á marga vegu — og það sem meira er, hann getur bætt heilsuna og skapið. Eftir að þetta varð Ijóst var farið að vinna að því að fá fólk til að nota ilm í ríkari mæli og þar sem sjaidnast er meiri þörf á góðu skapi en við akstur í stórborgum var farið að huga að því hvernig koma mætti heilsubætandi ilmkerfi í bílana. Tæki var hannað sem passar í kveikjarainnstunguna í bílum og þegar kveikt er á því fer í gang kerfi sem sér um að veita hæfilegum skammti af ilmi inn í bílinn. Ýmsar ilmtegundir Það sem gerist, þegar ilmur- inn berst um bílinn, er að ár- vekni bílstjórans eflist og um leið verður hann rólegri. Þess- ir ilmskammtarar heita Drive Alert (kallaðir Nasi á íslensku) og fast nú á íslandi. Þeir eru til í fjórum mismunandi tegund- um: Pipamiyntuilmur getur hjálpað þeim sem eru þung- lyndir. Hann er frískandi og virkar örvandi á heilann. Eini- berjailmur hefiir styrkjandi áhrif á taugakerfið um leið og hann skerpir hugsun. Rósmar- ínilmur á að styrkja minnið og taugakerfið þannig að andlegt atgervi eykst. Basil hefur stundum verið nefnt konung- ur plantnanna enda er basil- ilmur fáanlegur í Nasa. Basil vinnur á móti andlegri þreytu, styrkir hugann og eflir skýr- leikann. Vonandi fá sem flestir bíl- stjórar í Reykjavík sér Nasa sem allra fyrst þannig að búast megi við rólegum, vel vakandi og glaðlegum ökumönnum í borginni í vetur — því það veit- ir svo sannarlega ekki af að bæta umferðarmenninguna og bæta geð ökumanna. □ Fleygar setningar úr tjónaskýkrslum ákveðins tryggingafélags: — Ég rakst á kyrrstæðan vörubíl, sem var að koma úr hinni áttinni. — Ég hélt að bílglugginn væri opinn, þangað til ég hafði stungið höfðinu út um hann. — Ég sagði lögreglunni að ég væri ómeiddur, en þegar ég tók ofan hattinn komst ég að því að ég var höfuðkúpubrot- inn. — Það kom bara ósýnilegur bíll og rakst á mig og hvarf. — Ég sá að gamli maðurinn myndi aldrei hafa það yfir götuna og keyrði á hann. — Ég var búinn að keyra í 10 ár þegar ég sofhaði við stýr- ið og lenti í slysi. — Sá fótgangandi stóð og vissi ekkert í hvora áttina hann átti að hlaupa, svo ég keyrði yfir hann. — Ég var á leiðinni til læknisins, þegar púströrið datt aftur úr mér. — Ég var að reyna að drepa flugu og keyrði á símastaurinn þarna. — Það bakkaði trukkur í gegnum rúðuna á mér og beint í andlitið á konunni. — Maðurinn var alls staðar á veginum. Ég varð að taka heilmargar beygjur áður en ég rakst á hann. — Hinn bíllinn keyrði beint á mig, án þess að gefa neitt merki um hvað hann ætlaði að gera. ■pA ðlaðandi er konan ánœgð^ PALMA smrtistofa EINARSNESI 34 - SÍMI 12066 V 22. TBL 1989 VIKAN 31

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.