Vikan - 02.11.1989, Síða 36
Steikt lúða með reyktum
laxi og dillsmjöri
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 20 mín.
Höfundur: Guðmundur Halldórsson
Fiskur
INNKAUP:
800 gr lúða
2 dl hveiti
50 gr smjörlíki
salt, pipar
250 gr reyktur lax
Dillsmjör:
200 gr smjðr, mjúkt
11/2 - 2 msk. dill, saxað
salt, pipar
Helstu áhöld: Panna
Ódýr □ Erfiður □ Heitur Ixl
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
AÐFERÐ:
■ Lúöan er skorin í 180 gramma stykki, þeim velt upp úr hveiti og síðan
steikt á pönnu í smjörlíkinu. Kryddaö með salti og pipar.
■ Reykti laxinn er skorinn í þunnar sneiðar, þeim raðað ofan á lúðubitana
ásamt dillsmjöri. Grillað augnablik í ofni. Soðnar kartöflur og ferskt græn-
meti borið með.
■ Dillsmjör: Öllu hrært saman og sprautað í litla toppa ofan á fiskstykkin
áður en þau eru sett í ofninn.
Opið alla daga vikunnar Stakkahlíd 17, sími 38121
drunrlnrkinr ((G^i) Furusrund 3<sími 46955
U' M'ÍUM' nJur Reykjavíkurvegi 72, sími 53100
Gufusoðin ýsa
með kotasælu
Fyrir 4
Áætlaður vinnutími 15 mín.
Höfundur: Guðmundur Halldórsson
Fiskur
INNKAUP:
AÐFERD:
800 gr ýsuflök
1/2 laukur, saxaður
1 teningur fiskkraftur
1/2 lítil dós kotasæla
2 hvítlauksrif
1 1/2 tsk dijonsinnep
V2 tsk karrý
Ví2-1 dl appelsínusafi
1 1/2 msk. steinselja, söxuð
1 lítil dós majónes
2 súrsaðar smágúrkur
salt, pipar.
Helstu áhöld: Pottur.
Ódýr H Erfiður □ Heitur ixl
Kaldur □ Má frysta □ Annað:
■ Örlítið smjör er sett í pott og það látið bráðna. Smátt saxaður laukurinn
settur út í og hann kraumaður.
■ Ýsuflökin skorin í stykki og sett ofan á, ásamt það miklu af fiskkrafti og
vatni að Vz hluti fiskstykkjanna standi upp úr. Lok sett yfir og fiskurinn soð-
inn við hægan hita í 4-5 mínútur og síðan látinn vera í lokuðum pottinum
skamma stund í viðbót.
■ Kotasælusósa: Öllu er blandað saman og gert að mauki í blandara eða
Moulinex vél. Þessi sósa hentar einnig mjög vel með fondue-réttum.
■ Sósan er sett á disk og fiskurinn ofan á. Skreytt með sítrónu og
§ appelsínum. Soðnar kartöflur og ferskt salat er borið með.
cn
w
u.
LU
_l
DC
o
—>
X
cn
o
z
o
<
Opið alla daga vikunnar
Grundarkjör
Stakkahlíð 17, sími 38121
Furugrund 3, sími 46955
Reykjavíkurvegi 72, sími 53100