Vikan


Vikan - 02.11.1989, Qupperneq 46

Vikan - 02.11.1989, Qupperneq 46
NYTT AF NALINNI Námskeið klúbbsins eru afar vinsæl og verða í haust haldin á tólf stöðum á landinu. Lifandi tengsl klúbbfélaganna við bókaútgúf una TEXTI: BRVNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON Hér áður fyrr þótti sú kona heldur ómyndarleg sem ekki kunni að prjóna og sauma en nú á dögum eru þessar dyggðir sjaldnast taldar með þegar kostir konu eru taldir. Það er þó ekki þar með sagt að konur séu hættar að stunda þessa iðju — langt í frá - en nú sauma þær og prjóna sér til gamans og gagns auðvitað líka, ekki síst nú þegar fatn- aður er orðinn svo óheyrilega dýr um leið og þess er nánast krafist að konur jafht sem karlar, að ekki sé talað um börn, séu sérlega vel og smekklega klædd. Konur — og nokkrir karlar líka - hafa hingað til saumað eftir erlendum sniðum og saumaleiðbeiningum, en fyrir þrem árum vænkaðist hagur þessa hagleiksfólks því þá hóf tísku- og handavinnuklúbbur- inn Nýtt af nálinni starfsemi sína. Þetta er áskrifendaklúbbur fyrir þá sem hafa áhuga á tísku, handavinnu og hönnun, og bókaforlagið Vaka-Helgafell stendur að, en aðalumsjónarmenn klúbbsins eru þær Ragna Þórhallsdóttir ritstjóri og Ásdís Jóelsdóttir. Hver mappa frá handavinnuklúbbnum Nýtt af nálinni er nánast hugmynda- banki út af fyrir sig. Handavinnu- upplýsingabanki Þegar klúbburinn fór af stað var auðvit- að vonast til að honum yrði vel tekið en reyndin varð sú að hann sló öll aðsóknar- met og klúbbfélagar urðu fljótt fimmtán þúsund. Nýtt af nálinni starfar þannig að klúbbfélagar fá mánaðarlega sent hefti með myndum, leiðbeiningum og sníðaörk en þetta hefti er einstætt að því leyti að ætlast er til að það sé rifið í sundur og efh- ið flokkað! í fyrstu sendingunni fá klúbbfélagar þykka og fallega skreytta möppu og í henni eru flokkunarspjöld. Mappan dugar fyrir tólf sendingar eða í eitt ár og í upp- hafi hvers árs fá félagar nýja möppu. Tvö kennsluhefti fá þeir líka; annað fyrir saumaskap, hitt prjóna. Þetta eru uppfletti- rit og þar er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að sauma eða prjóna skammlaust eftir þeim uppskriftum sem á eftir fýlgja. í hverju mánaðarhefti af Nýju af nálinni eru sextán uppskriftir, prentaðar á þykkan, gataðan pappír og eins og fýrr segir er heftið rifið í sundur en síðan er uppskriftunum raðað eftir flokk- unum í möppunni: handa henni, handa honum, handa börnunum, til heimilisins og kennsla. í mánaðarsendingunni er snið- örk með 10-12 sniðum og plastumslag til að geyma hana í. Kápan utan um sniðin er einnig sett í möppuna því á henni koma fram ýmsar upplýsingar en aftan á henni eru sýnishorn af því sem kemur í næstu sendingu. Auk alls þessa fá klúbbfélagar fréttablað, Klúbbfréttir, þar sem ýmiss konar fróðleikur kemur ffam varðandi klúbbinn, klúbbfélaga og aðra sem honum tengjast, beint eða óbeint. Lifandi tengsl milli klúbbfélaga og útgáfunnar „En við sendum ekki bara pakkann til klúbbfélaga og skiljum þá síðan eftir í lausu lofti!“ segir Ragna. „Við viljum að klúbbfélagi finni traust í því að vera í klúbbnum og erum því með ráðgjafarstarf- semi í tengslum við hann. Klúbbfélagar geta hringt til okkar, skrifað eða komið hingað ef þeir eru í vandræðum með verk- efhin - og þeir hafa verið óhræddir við að gera það, sumir hafa meira að segja sam- band reglulega." „Við reynum þó að byggja uppskriftirn- ar þannig upp að hvert spjald sé eins og bein kennsla þannig að jafnvel þó að við- komandi væri að reyna við verkefnið í fyrsta sinn þá gæti hann farið eftir leið- beiningunum," bætir Ásdís við. „Svo höf- um við líka verið með námskeið í tengsl- um við klúbbinn tvisvar á ári, vor og haust. Námskeiðin standa yfir í sex vikur og eru alls tuttugu og fjórar kennslustundir, en mætt er einu sinni í viku.“ íslenskar uppskriftir og hönnun Þess má geta að Ragna er handavinnu- kennari og Ásdís textílkennari og þeir sem standa að námskeiðahaldi úti á landi eru einnig sérmenntaðir. Kennsluefnið er í raun allt tilbúið í möppunum og það spar- ar mikinn tíma og því hafa þeir sem á nám- skeiðin fara fengið mjög mikið út úr þeim. Ragna og Ásdís velja efnið í mánaðarheft- in, auk þess sem margir aðrir leggja þar hönd á plóg áður en hver sending er til- búin. Uppskriftirnar koma erlendis ffá að miklu leyti og þurfa þær Ragna og Ásdís að vera vel að sér í tískunni og litum sem eru í gangi hverju sinni, en auk tískuefhis velja Frh. á bls. 46 44 VIKAN 22. TBL1989

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.