Vikan - 02.11.1989, Síða 53
VARIR |
Varaliturinn er kynæsandi og fallegur. Hann skiptir jafiimiklu máli og fötin, skómir
Frh. af bls. 48
þessari flauelsmýkt og satíngljáa, þessum
þrýstnu aldinum, vandlega þöktum fagurri
gljákvoðu.
Varaliturinn er kynæsandi og íallegur.
Hann skiptir jaínmiklu máli og fötin, skómir
eða hárgreiðslan. Angan varalitarins hefur
einnig mikið að segja. Hver varalitur hefur
sinn ilm, jarðarberja-, rósa- eða apríkósuang-
an. Stundum ilma þeir jafitvel af hunangi,
piparmyntu eða jafnvel blágresi. Angan
varalitarins þarf að vera það mild að hún
blandist aðeins andardrætti notandans en
yfirgnæfi hann ekki.
Varalimrinn er eins og ilmvatnið, munað-
arvara og verður að notast á persónulegan
hátt. Það er kjánalegt að leggja áherslu á að
nota varalit „í stíl“. Varaliturinn á að tengjast
fegurðarþrá okkar og útlista hana á listræn-
an hátt. Litasamsetning hverrar konu á að
vera hennar leyndarmál en ekki ákveðin á
rökffæðilegan eða kerflsbundinn hátt. Verst
af öllu er ef konan velur sér liti eftir ein-
hverri fyrirmynd. Þegar best læmr er vara-
liturinn í samræmi við kjól, tennur og sálar-
lífi notandans. í þessu tilefiii er kannski rétt
að nefiia að það er alveg ófyrirgefanlegt að
hafa varalit á tönnunum, jafiivel þó að það
sé fýrir slysni, því sumir falla víst í ómegin
við þá sjón.
Varalimrinn hefur verið og verður meðal
annars fegurðarsmyrsl kossins. Hann gerir
eða hárgreiðslan.
húðina silkimjúka og slétta, líka krónublöð-
um kamelíublóms. Hann ver einnig varimar
fyrir heitum sólargeislum, mengun og roki.
Varalimrinn er samsettur á þann hátt að
hann jafhar yfirborð, línur og hold varanna.
Hver varalitur ber sitt ástúðlega eða losta-
fulla nafii, en ef svo reynist ekki vera er
mjög svo leyndardómsfullt númer yfirleitt
prentað einhvers staðar á hylkið.
Það er enginn glæpur að hressa upp á
litaðar varir í fjölmenni, eftir ábætinn til
dæmis. Það er óhætt að halda því fram að
það sé viðfelldið háttemi, alúðlegt og kyn-
þokkafullt að lita á sér varimar ef það er fag-
mannlega gert, með hjálp töfrandi hand-
spegils og ef varalitahylkið er ekki allt út-
atað. Glóandi varir, líkar eplagarði í blóma,
lyfta sér ósjaldan til flugs á vængjum ástar-
þrár. Þær fá jafnvel mælt orð til að titra af
fegurð. Þessum spennandi samleik var-
anna og varalitarins lýkur þegar liturinn er
horfinn af vömnum.
JILSANDER COLOUR PURE