Vikan - 17.05.1990, Blaðsíða 57
NVJAR PLÖTUR
HEART - BRIGADE
Þessi kanadíska hljómsveit
hefur verið afskaplega lengi
að og framan af gekk hvorki
né rak. Fyrir um það bil fimm
árum fóru hjólin loks að snúast
og Heart hefur átt nokkur lög
sem náð hafa vinsældum.
Nýja platan, Brigade, inniheld-
ur eitt lag, All I Wanna Do Is
Make Love to You, sem nú
þegar hefur náð miklum vin-
sældum og er mjög gott. Pínu-
lítil þreytumerki heyrast hérog
þar en oft á tíðum nær hljóm-
sveitin sér á gott flug.
STJÖRNUGJÖF:
CHRISTIANS
- COLOUR
Þetta er önnur breiðskífa
Christians en sú fyrsta þótti
hreint frábær og því biðu
menn spenntir eftir þessari.
Biðin var svo sannarlega ekki
til einskis. Þessi plata er betri
ef eitthvað er. Hiö stórkostlega
lag Words hefur ómað vel og
lengi og á áreiðanlega eftir að
lifa í manna minnum, en lagið
er um þessar mundir elsta lag-
ið á íslenska listanum. I Found
Out er þegar farið að heyrast
og fleiri eiga eftir að fylgja í
kjölfarið. Kostagripur.
STJÖRNUGJÖF: ★★★★1/2
SAM BROWN
- APRIL MOON
Þetta er önnur breiðskífa
söngkonunnar Sam Brown en
fyrsta platan hennar, Stop,
vakti mikla og veröskuldaða
athygli. Margir voru í vafa um
hvort Sam gæti haldið svona
áfram, hvort hún hefði hrein-
lega hæfileikana sem til þarf.
Hún sannar hér að svo er og
tekst ágætlega upp. Platan
hefur hlotið mikið lof í Bret-
landi og fyrsta smáskífulagið,
With a Little Love, er vinsælt á
öldum Ijósvakans.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
DISTANCE UNDER
THE ONE SKY
Þetta er fyrsta breiðskífa
hljómsveitar sem margir hafa
líkt við Asia. Samansafn af
frábærum tónlistarmönnum
sem allir kunna sitt fag. Dist-
ance er skipuð gömlum refum
á borð við Tony Thompson og
Bernard Edwards sem stóðu í
fylkingarbrjósti Chic. Distance
minnir stundum óþægilega
mikið á Power Station en svo
áttar maður sig á því að það er
► W. Axl Rose ásamt
Charlie Watts,
trommara Rolling
Stones.
ekkert verra. Gott, vandað og
fagmannlega unnið rokk.
STJÖRNUGJÖF: ★★★1/2
THEY MIGHT BE
GIANTS - FLOOD
Undarlegur dúett sem á ætt-
ir sínar að rekja til New York-
borgar. John-arnirtveir, Flans-
burgh og Linnell, eru báðir
hámenntaðir tónlistarmenn.
Lagið þeirra, Birdhouse in
Your Soul, er á íslenska listan-
um og hefur verið mjög vin-
sælt um heim allan. Fleiri lög á
plötunni eru áheyrileg, nægir í
því sambandi að nefna stór-
skemmtilegt lag sem heitir
Particle Man. Tónlistin er full
af húmor og sver sig pínulítið i
ætt Housemartins og
Madness.
STJÖRNUGJÖF: ★★★
Guns’n’Roses hafa jafnan
verið mikið í fréttum og ekki er
langt síðan fréttist að þeir
væru á leið í hljóðver trl að
hljóðrita þriðju breiðskífuna.
Reyndar hafði fyrir þann tíma
verið sá orðrómur á kreiki að
samskiptaörðugleikar væru
það miklir að það væri aðeins
spurning hvenær yfirlýsing um
andlát hljómsveitarinnar yrði
gefin út og hljóðversferðin
frestaðist um ófyrirsjáanlega
framtíð. Nú fyrir skömmu var
svo greint frá því að Steven
Adler, trymbill Guns’n’Roses,
hefði verið rekinn. Söngvari og
forsprakki hljómsveitarinnar,
W.Axl Rose, átti aö hafa feng-
ið nóg af sukki trommarans og
sagt honum að hypja sig.
Þetta var svo dregið til baka og
allra nýjustu fregnir herma að
eftir hlé hafi liðsmenn
Guns’n’Roses komið saman,
komist að því að þeir gætu
þrátt fyrir allt starfað saman og
nú er aðeins eftir að gefa upp
hvenær farið verður í hljóðver.
Rokksveitin Great White
þurfti að aflýsa nokkrum tón-
leikum í Kanada fyrir skömmu
þar sem ráöist var á Jack
Russell, söngvara sveitarinn-
ar, og hann hreinlega barinn í
götuna. Hann nefbrotnaði og
raddböndin sködduðust.
Tvöfaldur
raki
ACO FUKTLOTION gefur
húð þinni tvö náttúruleg
rakabindiefni.
Finndu sjálf hve ACO Fukt-
lotion smýgur hratt inn í húð-
ina án þess að klægi eða svíði
undan og hve húðin verður
mjúk.
ACO FUKTLOTION ilmar
einnig þægilega.
Heldurðu að þú finnir betri
húðmjólk?
Hún er notaleg fyrir allan
líkamann.
ACO Fuktlotion!
Með og án ilmefna.
Fæst aðeins í apótekinu.
RIRTAK hf. sími 91-3 20 70
10. TBL.1990 VIKAN 57