Vikan - 20.09.1990, Blaðsíða 18
Albert og Brynhildur. „Hún hefur fórnað sér míklu meira fyrir mig en ég fyrir hana,“ segir hann.
um eld og brennistein fyrir
mann. Við Brynhildur búum í
hjarta Parísar en þar hafa ver-
ið miklir hitar að undanförnu
og þar af leiðandi mikill vatns-
skortur. Skógareldar hafa
gert mikinn usla í Frakk-
landi að undanförnu; Marseil-
les brann að hluta og í borg-
inni Cassis komst fólk ekki
landleiðina í burtu heldur varð
það að flýja út á sjó. Þegar ég
var að fara heim til íslands fyrir
nokkrum dögum var skógar-
eldur að nálgast Nizza, mína
gömlu borg. Þetta er óbaetan-
legt tjón og gengur jafnt yfir
háa sem lága; það er ekki
hægt að kaupa sig út úr
náttúruhamförum. En ég held
að góður árangur hafi orðið af
okkar starfi í París og starfs-
fólk sendiráösins er mjög
hæft. Þar á enginn öörum
fremur hrós skilið; samstarfið
er gott og árangurinn þar af
leiðandi góður. Það hvílir
margt á þessu sendiráði því
það er sendiráð fyrir sjö mis-
munandi sendiherrapósta,
semsagt sendiráð fyrir
Frakkland, Spán og Portúgal
og Grænhöfðaeyjar, Evrópu-
ráðið í Strassburg, UNESCO
og Efnahags- og framfara-
stofnunina."
„HEF FENGIÐ STÆRRI
HLUTA AF KÖKUNNI"
Brynhildur er jákvæð, hlý og
einlæg í grunneðli sínu (Ljón)
og hefur ákveðnar skoðanir á
lífinu og tilverunni. Albert þarf
að búa við félagslega og hug-
myndalega lifandi umhverfi til
að viðhalda lifsorku sinni og
gleði. Hann hefur ríka þörf fyrir
umræðu. Það sem helst skilur
á milli er að Ljónið er eldmerki
og lætur stjórnast af hjartanu
en Vogin er loftmerki og lætur
hugsun og skynsemi ráða -
eða reynir að gera það.
Brynhildur þarf að varast að
vaða yfir umhverfið og taka
stærri sneið af kökunni en
henni ber. Slíkt gæti farið fyrir
brjóstið á Albert sem hefur
sterka réttlætiskennd:
„Það er miklu frekar hægt
að snúa þessu við og segja að
ég taki stærri hluta af kökunni
en hún. Hún hefur fórnað sér
miklu meira fyrir mig en ég fyrir
hana. Þegar ég er íþróttamað-
ur þarf hún að falla inn í mjög
strangt og erfitt prógramm.
Svo fer ég út í viðskipti og síð-
an stjórnmál og það er alveg
Ijóst að eiginkonur stjórnmála-
manna falla mikið í skuggann
og eru jafnvel að fórna sínu lífi
fyrir feril stjórnmálamannsins.
Ég hef fengið heiðursveitingar
frá mörgum þjóðum og verið
sýndur mikill sómi sem kom til
mikið vegna hennar starfa og
verka. Svo ég verð að segja
að mér finnst ég hafa fengið
miklu stærri hluta af kökunni
en hún.“
„ÖÐRUVÍSI ÞÝÐIR EKKI
AÐ UMGANGAST MIG“
Þau hjón eru með sól-tungl
123 gráður afstöðu í kortum
sínum. Þetta er jákvæð orka
sem veit á gott í sambandinu.
Þessi afstaða er algeng í
hjónaböndum og vináttusam-
böndum og táknar að um
gagnkvæma hjálpsemi og
stuðning er að ræða á milli
hjónanna, meðfædda vináttu
og tilfinningalegan skilning.
Sól og Merkúr eru 60 gráður
sem einnig veit á gott hvað
varðar vitsmunalega vináttu, til
dæmis sameiginleg áhuga-
mál. Albert getur hvatt Bryn-
hildi hvað varðar nám eða í
annarri vitsmunalegri vinnu. Á
móti hvetur Brynhildur með
hugmyndum sínum Albert til
að verða sjálfstæðari og meira
skapandi og drífandi persónu-
leiki og hjálpar honum að skilja
innri mann sinn og langanir.
Þau eiga auðvelt með að tala
saman og geta náð til innri
manns hvors annars:
„Þetta getur verið rétt á viss-
an hátt. Hjónabandið hefur
gengið mjög vel í bráðum
hálfa öld svo það er óhætt að
segja að við höfum átt afskap-
lega vel saman. Brynhildur
hefur haft mjög sterk og góð
áhrif á mig og það oftast á
mjög hljóðlátan hátt en öðru-
vísi þýðir ekkert að umgang-
ast mig.“
HJÓNIN TILFINNINGA-
LEGAR ANDSTÆÐUR
Samkvæmt kortinu eru þau
hjónin tilfinningalegar and-
stæður og eiga ekki sérlega
vel saman á því sviði nema til
komi málamiölanir. Albert er
með tungl í Ljóni en Brynhildur
með tungl í Vatnsbera. Albert
er stöðugur i lund og fastur
fyrir tilfinningalega. Hann er
frekar sjálfsupptekinn, vill
glæsileika í lífsstíl sinn, er
stoltur og hefur ómeðvitaða
þörf fyrir að vera miðja í um-
hverfi sínu, hljóta athygli, að-
dáun og virðingu. Brynhildur
er tilfinningalega stöðug, róleg
og yfirveguð en frekar ó-
persónuleg. Hún vill vera til-
finningalega frjáls og er því illa
við tilfinningaleg bönd. Þarna
getur Albert fundist Brynhildur
vera köld og afskiptalaus en
henni fundist Albert sjálfsupp-
tekinn og miða of margt út frá
sinni persónu:
„Ég held að þetta sé því
miður allt of rétt. Ég vildi gjarn-
an gera athugasemd við þetta
en ég væri bara ekki sjálfum
mér samkvæmur ef ég gerði
það.“
MÓTTÆKILEG FYRIR
VINÁTTUTILFINNINGUM
HVORS ANNARS
Tvöföld afstaða tungls og
Venusar gerir að verkum að
daglega eru þau hjónin mót-
tækileg fyrir vináttutilfinningum
hvors annars og þau kunna
jafnframt að meta daglegan
lífsstíl hvors annars. Þetta er
orka sem getur yfirunnið tölu-
verða spennu sem birtist ann-
ars staðar í korti þeirra hjóna:
„Þetta er rétt því allan þann
tíma sem við höfum verið gift
hefur tæplega liðið dagur sem
við ekki vorum saman og
séum við ekki saman veit ég
að okkur líður báðum illa. Við
erum sem sé afskaplega mikið
saman og unum okkur mjög
vel ein saman. Við erum nefni-
lega ágætir vinir og höfum allt-
af verið. Okkar æviskeið hefur
verið afskaplega fjölbreytt og
ég efast um að margir íslend-
ingar hafi komið víðar við á
starfsævinni. Það er mín stóra
gæfa að hafa eignast Brynhildi
sem lífsförunaut."
SKEMMTILEGT
HUGMYNDAFLUG
Tungl og Júpíter afstaðan er
85 gráður og hið jákvæða við
hana er að hún skapar gagn-
kvæma hlýju og velvilja. Albert
hefur þau áhrif á Brynhildi að
henni veitist auðveldara að tjá
tilfinningar sínar. Brynhildur á
hinn bóginn kallar fram á-
kveðna jákvæðni í fari Alberts
og hvetur hann til að víkka
sjóndeildarhring sinn. Hætta
þessarar orku er að þau hjónin
geti átt til að verða of bjartsýn,
stórtæk og kærulaus og eyða
of miklum peningum í heimili
og daglegan lífsstíl:
„Við höfum mjög góð og
sterk áhrif hvort á annað en
hvað eyðslusemina varðar
finnst mér þetta ekki rétt. Bryn-
hildur er afskaplega frjó; hún
ervel hagmælt og er í rauninni
skáld svo hún hefur að mínu
mati hugmyndaflug sem er
bæði skemmtilegra og ríkara
en almennt gerist. Það gerir
hana að afar skemmtilegum
lífsförunaut. Þessi lífsstíll,
sem getið er um þarna, á þó
Frh. á bls. 39
18 VIKAN 19.TBL 1990