Vikan - 20.09.1990, Page 26
atriði sem kariar
viðuikenna aldrei
fyrir konum um
kynlíf
9 Okkur langar ekki til að vera áleitni aðilinn
9 ... ein nótt með gullfallegri, ókunnugri stúlku
• Okkur finnst þið of aðgerðarlausar í rúminu
9 Finnst kvenlíkaminn það fallegasta sem til er
Grein sem birtist í bandarísku kvennablaði
I Að fá fullnægingu skapar
vissa togstreitu hjá okkur karl-
mönnum. Við viljum fá hana
en á hinn bóginn viljum við
það ekki. Ástæða þess að við
viljum það ekki er sú að þegar
við fáum fullnægingu er
mökunum lokið. Fyrir ykkur
gæti fyrsta fullnæging kvölds-
ins verið upphafið á einhverju
góðu. Fyrir okkur er hún yfir-
leitt endalokin á einhverju
góðu.
A Við fyllumst afbrýði og
gremju yfir því að þið ákveðiö
hvort, hvenær og hvernig við
njófum kynlífs. Við höldum að
hvaða kona sem er, sem lítur
sæmilega út, geti fengið mann
til við sig bara með því að
biðja hann. Við öfundum ykkur
af því. Ef við reyndum það
sama fengjum við annaðhvort
löðrung eða drykk framan í
okkur. Okkur finnst þið vera
við stjórnvölinn í ykkar kynlífi
en við ekki í okkar. Það er
óþolandi.
O Við skiljum ekki hvers
vegna þið eruð svo ákafar í að
hoppa upp í rúmið með verstu
skíthælum og kvartið svo yfir
því að þeir komi illa fram við
ykkur. Við hverju bjuggust
þið? Við gerum okkur grein
fyrir að helmingur okkar er lúð-
ar og að þið verðið að vera
gætnar þegar þið veljið ykkur
förunaut. En hvers vegna kjós-
ið þið svo oft menn úr slæma
helmingnum?
Almennt finnst okkur þið
vera að leita að ástinni á kol-
vitlausum stöðum. Þegar við
vorum unglingar sáum við að
þið hrifust af íþróttamannslega
vöxnum hálfvitum en ekki af
okkur. Nú erum við orðin full-
orðin og við sjáum að þið hríf-
ist af giftum mönnum, viðbjóð-
um og drykkjusjúklingum en
ekki af okkur. Viö getum ekki
að því gert að þegar þið segist
vera að leita aö einlægum,
Ijúfum og frjálslyndum mönn-
um finnst okkur þið bara vera
að bulla.
Eins og segir í skrýtlunni
hans Jules Feiffer: „Ég mun
aldrei gleyma síðustu fimm
dögunum með þér, Jói. Þú ert
samúöarfullur. Þú ert við-
kvæmur. Þú ert einlægur. Þú
ert hugulsamur. Þú ert indæll.
Ég þurfti á þessu fríi að halda.
Takk. Nú ætla ég að snúa mér
að karlmönnum aftur.“
4 Eftir öll þessi ár höfum
við enn ekki grun um hvar G-
bletturinn er - eða hvort hann
er yfirleitt til.
9 Þegar við segjum ykkur
að útlit skipti okkur ekki máli
þá er það haugalygi. Okkur
finnst útlit skipta öllu máli.
Karlmenn ganga ekki með
grasið I skónum á eftir auðug-
um eöa voldugum konum (eig-
inleikar sem konur virðast
jafna viö kynþokka).
Okkur finnst kvenlíkaminn
það fallegasta sem til er. Okk-
ur dreymir um æðisgengnar
21 árs gamlar háfættar Ijóskur
með risavaxin brjóst. Hver
sem ekki segist gera það er að
Ijúga.
Samt finnst okkur ósann-
gjarnt að karlmenn eru sagðir
yfirborðslegir þegar að því
kemur að velja sér maka en
sagt er að konur líti á heildina.
Okkar skoðun er þessi: Fyrst
svona margar konur laðast að
mönnum vegna þess hve stórt
veskið þeirra er ætti að vera í
lagi fyrir karlmenn að laðast að
konum vegna brjóstahaldara-
stærðar.
O Ólíkt ykkur getum við vel
notið kynlífs með svo aö segja
hvaða aðila sem er af gagn-
stæðu kyni og fengið fullt út úr
því - jafnvel þó við vitum ekki
hvað hún heitir og munum
aldrei sjá hana framar. Stund-
um er það jafnvel ákjósan-
legra.
/ Kærastinn þinn mun
aldrei viðurkenna það en af-
mælisgjöfin, sem hann langar
I frá þér, er ein nótt með gull-
fallegri ókunnugri stúlku. Best
væri ef hún væri tekin upp á
myndsegulband.
o Hjá okkur tengist kynlífið
sjálfsvirðingu meira en nokkuð
annað. Hvers vegna eru karl-
menn svona veikir fyrir fögrum
konum? Kona, sem er ósköp
venjuleg útlits, er eins við-
komu. Það er eins lykt og
bragð af henni og hún er í
raun ósköp svipuð og sú
geggjaða, sérstaklega í daufri
lýsingu. Munurinn er sá að
það að sofa hjá þeirri æðis-
gengnu getur aukið sjálfsálit
okkar. Hún getur náð í hvern
sem er, hugsum við. Og hún
valdi mig. Fagrar konur koma
því til leiðar að óöruggir menn
fyllast sjálfstrausti.
“ Ef kona er mikið förðuð
og í fötum sem opinbera allt
finnst okkur hún ekki hafa
neinn rétt til að kvarta þegar
við komum með tilboð eða
segjum eitthvað. Þetta þýðir
ekki endilega að okkur finnist
26 VIKAN 19. TBL 1990