Vikan - 20.09.1990, Síða 34
Það þjónar engum tilgangi að vera með langar
vangaveltur í upphafi sögu eða eyða tíma (
staðar- og mannlýsingar. Lausnin verður að
koma á nákvæmlega réttum tíma. Sérstaklega
í leikriti eins og Músagildrunni þar sem vanga-
veltur geta algerlega eyðilagt stígandann í at-
burðarásinni."
MÚSAGILDRAN UPPHAFLEGA
AFMÆLISGJÖF TIL
BRETADROTTNINGAR
Músagildran var fyrst sýnd 5. nóvember 1952
og hafði upphaflega verið samin sem útvarps-
leikrit á áttræðisafmæli Bretadrottningar sem
hafði verið spurð hvers konar dagskrá hún
óskaði eftir í BBC. „Leynilögreglusögu eftir
Agöthu Christie," svaraði hún.
Leiknum var vel tekið. Agatha Christie skrif-
aði hann sem sviðsleik og hann var sýndur til
reynslu í London áður en hin leikhúsin tóku
hann til fíutnings. Leikritið gengur ennþá og
ekkert lát er á eftirspurn eftir aðgöngumiðum.
Agatha Christie sagði sjálf að hún skildi ekki
þessar geysilegu vinsældir leikritsins sem
henni finnst alls ekki jafnast á við Vitni sak-
sóknarans eða mörg önnur af leikritum
hennar.
Einu sinni reyndi hún að skilgreina þetta:
„Ég held það sé vegna þess að þetta leikrit er
þannig að allir geta horft á það. Það er í raun-
inni ekkert hrollvekjandi og ekki skrípaleikur
heldur sambland sem mörgum finnst skemmti-
legt.“ Fáir hafa getað giskað á það fyrirfram
hver morðinginn er. Winston Churchill sagðist
hafa getið upp á þeim rétta en orðið mjög undr-
andi þegar á daginn kom að hann hafði rétt
fyrir sér.
Agatha Christie fékk aðeins óverulegar fast-
ar tekjur af Músagildrunni. Þegar stykkið var
fyrst sett á svið gaf hún dóttursyni sínum,
Matthew Prichard, sem þá var tólf ára, höfund-
arréttinn. Það gerði hann svo auðugan að
Agatha Christie hafði áhyggjur af því að hann
myndi aldrei gera tilraun til að fá sér atvinnu
eða lífsstarf. Það voru óþarfa áhyggjur því
hann sneri sér síðar að útgáfustarfsemi með
góðum árangri.
Eins og flestar ömmur hafði Agatha Christie
mikinn áhuga á yngstu kynslóðinni. I bókinni
Bertrams Hotel bryddar nokkuð á ofbeldi síð-
ast í bókinni og í bókinni Endless Night fjallar
hún um uppreisnargjarnt atferli unglinga, eins
og pínupilsin og LSD-neyslu æskufólks í
London, með glettni og meðaumkun um leið.
Agatha Christie var á móti öllum hávaða,
fjölmennum samkomum og „sífelldum sam-
ræðum“. Hún horfði eiginlega aldrei á
sjónvarp. „Þegar ég horfi á sjónvarp," sagði
hún, „finnst mér ég hafa eytt tímanum til
einskis. Ég hefði betur varið honum til að lesa
góða bók.“
ÞOLDI ILLA HVERNIG BÆKUR
HENNAR VORU AUGLÝSTAR
Það sem líklega einna helst gerði henni gramt
í geði var hvernig bækur hennar voru auglýst-
ar. „Ég býst við að bráðum fari þær að fást í
kjötbúðum!"
Agatha Christie átti þrjú hús. Það sem hún
hafði mestar mætur á er Greenway House.
Landareignin er upp á þrjátíu og fjórar ekrur í
Devonshire. Þar bjó hún með síðari manni
sínum, Max Mallowan fornleifafræðingi, sem
var sérfræðingur í menningarsögu Assiríu-
manna, og Rosalind dóttur sinni, sem las yfir
allar bækur hennar. „Hún er einlægasti gagn-
rýnandi minn og sú eina sem giskar rétt á hver
morðinginn er.“
Einnig átti hún hús í Chelsea og Winter-
brook House, sumarhús nálægt Oxford, í þorpi
sem minnir á St. Mary Mead, heimkynni Miss
Marple, þeirrar af sögupersónum Agöthu
Christie sem hún hafði mest dálæti á.
Agatha Christie hafði miklar mætur á rithöf-
undunum Elizabeth Bowen, Graham Green,
Muriel Sparks og George Simenon. Hún þoldi
ekki njósnasögur þar sem ofbeldi er rikjandi.
Um þær sagði hún: „Ég þoli ekki að fólk sé lát-
ið ganga um með barefli og skotvopn og mis-
þyrma fólki. Ég verð svo vond að mig langar til
að gera slíkt hið sama.“
SEINNI EIGINMAÐURINN
FORNLEIFAFRÆÐINGUR
Fyrir utan ritstörfin hafði Agatha Christie mik-
inn áhuga á fornleifafræði. Maður hennar,
hljóðlátur, þéttvaxinn og stórgáfaður prófessor
í Oxford, var þekktur fyrir störf sín í Mið-Aust-
urlöndum. Þau hjónin voru vön að taka saman
föggur sínar á hverju ári og búa í nokkra mán-
uði í leirkofa í Nimrud sem hefur verið höfuð-
borg Assiríu síðan á níundu öld fyrir Krist en er
kölluð Calah í Gamla testamentinu.
„Þið getið ekki ímyndað ykkur þann létti,“
segir Agatha Christie Mallowan í skemmtilegri
bók sinni um uppgröftinn, „að komast til staðar
þar sem engin dyrabjalla er, enginn sími og
maður þarf ekki að hafa fyrir því að svara
prestinum sem fann fjörutíu og þrjár málfræði-
villur í síðustu bókinni minni."
í Nimrud, þar sem þau borðuðu feitar kinda-
rófur, súkkulaðibúðinga, sem innfæddi kokkur-
inn bjó til á olíuvél, og drukku te úr vatninu í
Tígris, hjálpaði Agatha Christie til við uppgröft-
inn sem varpar Ijósi á hina fornu menningu.
„Það er ákaflega spennandi. Það erfleira hulið
undir jarðskorpunni en okkur grunar.“
TÓK MYNDIR AF FORNMUNUNUM
Það var hennar starf að taka myndir af munun-
um, hreinsa þá og skjalfesta. „Mér var fyrst
trúað fyrir leirkerum en svo vann ég mig upp,“
Hún var óþolinmóð við að hreinsa munina á
gamla mátann og fann þá upp auðvelda aðferð
við að ná mold og leir af þeim. Hún sprautaði
uppleysandi efnum á þá með venjulegri
sprautu.
Hún skrifaði aldrei meðan hún var í þessum
leiðöngrum. „Ég hef aldrei tíma til þess, ég hef
alltaf nóg að gera við að hjálpa manninum
mínum. Ég fæ auðvitað hugmyndir en þær
gæti ég fengið hvar sem er. Þess utan er ég
ákaflega eftirtektarlaus. Ég tek aldrei eftir því
hvort fólk hefur fengið sér nýja flík eða skipt
um húsgögn. Það er oft óþægilegt."
Baráttan milli húsmóðurstarfanna og ritstarf-
anna var aldrei vandamál fyrir Agöthu Christie
og hún hafði meiri ánægju af rithöfundarstarf-
inu sjálfu en heiðursyfirlýsingum og virðingar-
votti.
Oft er þó margt málum blandið. Þótt Agatha
Christie hafi verið hrifin af manni sínum og
starfi hans var hún ekki hrifin af ýmsum sögum
sem gengu um þau, eins og þeirri að „forn-
leifafræðingur sé besti eiginmaður sem hægt
sé að fá vegna þess að því eldri sem konan er
því skemmtilegri sé hún og því meiri áhuga
hafi hann fyrir henni". Hún sór og sárt við lagði
að hún hefði aldrei sagt þetta og hún sagðist
geta myrt þann slúðurdálkahöfund sem kom
þessari sögu á kreik.
Það er nú eiginlega synd að enginn fótur
skuli vera fyrir þessu. Þetta hefðu verið
skemmtileg og eðlileg tilsvör frá þeirri konu
sem skapaði Hercule Poirot...
Hefur þú nokkra hugmynd um hvers vegna konan þín framdi sjálfsmorð?
34 VIKAN 19. TBL.1990