Vikan - 29.11.1990, Síða 6
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
Elsku pabbi og mamma.
Mér þykir leiðinlegt að
þið skylduð ekki leyfa
mér að kaupa hvolpinn. Þess
vegna ætla ég að fara. Mér
þykir vænt um ykkur. Emil
Strákurinn Emil á enga ósk
heitari en að eignast hund.
Hann er meira að segja búinn
að ákveða að hann skuli heita
Skundi eins og hundurinn sem
afi hans átti. Foreldrar Emils
vinna mikið en síðan þau byrj-
uðu að byggja þetta hús í
Breiðholtinu eru þau alltaf að
rífast. Emil er því mikið einn.
Foreldrar hans gefa honum
leyfi til að kaupa hvolp ef hann
geti unnið fyrir honum sjálfur.
Eni...
[ ár verður verðlaunasaga
Guðmundar Ólafssonar, Emil
og Skundi, jólaleikrit Stöðvar
2. Guðmundur samdi leik-
Upptaka atriðis í Austurstræti undirbúið af kostgæfni. Leikstjóri og upptökustjóri ásamt „blaðsölu
drengjunum" Flóka Guðmundssyni, Stefáni Inga Stefánssyni og Sverri Páli Guðnasyni.
VERDLAUNASAGAN EMIL OG SKUNDI
ÍSLENSKT JÓLALEIKRIT STÖÐVAR 2
handrit eftir sögunni og er jafn-
framt leikstjóri. Verkið verður
sýnt í tveim hlutum á milli jóla
og nýárs. Svo skemmtilega vill
til að framhald bókarinnar
kemur einmitt út fyrir þessi jól.
Sú bók heitir Emil, Skundi og
Gústi.
„Ég er ekki vanur að vinna
við þennan rniðil," segir höf-
undurinn. „Til aö byrja með
vildi ég kannski fylgja söguþ-
Brugðið á leik við töku
sjónvarpsmyndarinnar. Sigurð-
ur Freyr ásamt höfundi sögunn-
ar, Guðmundi Ólafssyni, sem
jafnframt ieikstýrði verkinu.
Mættur á útihátíð — i tilheyrandi „hátíðarveðri". Emil, sem leikinn er af Sverri Páli Guðnasyni.
ræðinum einum of bókstaflega
og hafa allt með en formið er
þess eðlis að maður þurfti að
skera ansi mikið niður. Aðal-
atriöið er aö halda sögu-
þræðinum en sleppa útúrdúr-
um sem ekki beinlínis þjóna
sögunni. En þó þurfti tvo þætti
til að koma þessu öllu fyrir."
Það eru liðin um tvö og hálft
ár síðan þær Guðrún Þórðar-
dóttir og Maríanna Friðjóns-
dóttir impruðu á því við Guð-
mund að búa söguna fyrir
sjónvarp en ýmissa hluta
vegna var ekki hafist handa
fyrr en á þessu ári. Mynda-
tökurnar fóru fram í sumar
undir stjórn Gunnlaugs Jónas-
sonar og Bergsteinn Björgúlfs-
son kvikmyndaði. Tími fyrir
tökur var mjög naumur, aðeins
tvær vikur, en veðrið lék við
hópinn sem vann að myndinni.
Sólin byrjaði að skína sama
daginn og tökurnar hófust.
Það var alltaf sól og ákjósan-
leg birta nema að það rigndi í
einn eða tvo daga. Það kom
þó ekki að sök því að þá fóru
fram tökur innan dyra. Og það
var myndað víða um land á
góðviðrisdögum þegar hitinn
komst upp í ein 23 stig. Gunn-
ar Þórðarson tók upp tónlistina
við myndina en Olga Guðrún
Árnadóttir samdi hana. Eins
og margir vita eru þau Olga
Guðrún og Guðmundur Ólafs-
son hjón.
„Ég notaði reyndar alla fjöl-
skylduna," segir hann og glott-
ir svolítið. „Börnin min þrjú
leika smáhlutverk og sjálfur
labbaði ég einu sinni fyrir
myndavélina, svona til að
fóðra eigingirnina. En það var
mjög gaman að nota krakkana
og ekki síður að geta fengið
músíkina héðan að heiman.1'
Sverrir Páll Guðnason fer
með aðalhlutverkið, Emil, og
það mæðir mikið á honum þar
Frh. á næstu opnu
6 VIKAN 24. TBL. 1990