Vikan


Vikan - 29.11.1990, Síða 11

Vikan - 29.11.1990, Síða 11
Hann er á tveimur stööum í síma- skránni. Annars vegar undir svæö- isnúmerinu níutíu og einum og þá „bara“ sem Jón Benediktsson en hins vegar undir níutíu og fimm og þá sem Jón Benediktsson bóndi Höfnum. Á báöum stööum svarar sami maðurinn en að vísu aðeins á öðrum í einu. Hann er nefnilega svokallaður „sumarbóndi", rekur bú sitt aðeins að sumri en vinnur síðan sem verkstjóri hjá dúnhreinsunardeild Sambandsins að vetri. Eða eins og Jón sagði sjálfur: „Ég er ekta farfugl." Sú samlíking er víst alls ekki ný af nál- inni enda hefur Jón „flogið" norður á bóginn á sumrin allt frá því hann hætti heilsársbúskap árið 1969 og flutti á mölina. Um býlið Hafnir, sem er svo til yst á Skaga, nokkru norðar en Skagaströnd, segir að þar hafi lengi verið hlunnindajörð. Nokkuð kemur þar af rekaviði, þar liggja æðarkollur á eggjum sínum meðtilheyrandi dúneinangrun og í sjón- um sveimar selurinn. Þetta er það sem skapar Jóni bónda atvinnu á sumrin. Jörðin, sem hann keypti árið 1942 - þá aðeins 21 árs - og bjó á í tuttugu og sjö ár, er það sem líf hans snýst nú um fimm mánuöi hvers árs og hver dagur er með þétt skipaðri dagskrá erfiðra starfa. Þótt hlunnindin séu fyrir hendi eru þau sýnd veiði en ekki gefin og mikið þarf fyrir þeim að hafa til að þau gefi eitthvað af sér. Það vita fáir betur en Jón Ben. ...OG SELKJÖT MEÐ SMJÖRI! Á nýliðnu sumri lágu leiðir okkar Jóns saman þegar ég heimsótti hann að Höfnum og tók þátt í daglegu amstri hans með öllu tilheyrandi. Þar klauf ég í fyrsta skipti niður rekavið í girð- ingastaura með heljarstórri sleggju og fleygum, fylgdist með verkun selskinna og smakkaði selkjöt með smjöri. Ritstjórn Vikunnar fylgdist af miklum áhuga með heimsóknum mínum, sem reyndar urðu tvær, og úr varð að ég rabb- aði við Jón Ben. sumarbónda, formann félags selveiðabænda og verkstjóra hjá SÍS, þegar hann hafði lokið sumarstarfinu og var kominn í bæinn. Og ekki lét Jón tímann fara til spillis frekar en annað því að hann fór úr Höfnum á sunnudegi og hóf störf að nýju í dúnhreinsun- inni á mánudagsmorgni. Slíkt er annríki „far- fuglsins". Eftir að hafa gengið upp fjórar hæðir í lyftu- lausu fjölbýlishúsi við Háaleitisbraut [ Reykja- vík knúði ég dyra hjá Jóni. Hann opnaði fyrir mér rétt eins og ég væri þarna heimilisfastur og ég fann strax aö ég var velkominn. Jón bauð mér sæti fyrir framan sjónvarpið og þar sátum við og fylgdumst með fréttum og Kast- Ijósi. Jón lætur greinilega enga blaðasnápa trufla sig við að fylgjast með umheiminum og því sem er að gerast í kringum hann. Hann tekur hlutina fyrir í þeirri röð sem hentugast þykir og vill gjarnan hafa eitthvað með það að gera sem hann snertir. Það hentar honum ör- ugglega vel, hugsa ég meðan fréttaþættirnir renna sitt skeið, að vera verkstjóri yfir sjálfum sér á býli sínu á Skaga. En þar kemur að Jón slekkur á tækinu, greinilega albúinn að mæta spurningum mínum og ekki eftir neinu að bíða. Ég spyr hann fyrst um jörðina Hafnir. EKKERT BRUÐL „Þessi jörð var lengi í eigu Þingeyraklausturs en enginn veit hvenær fyrst var byggt þarna. Gamli bærinn var byggður 1868 og það var Árni nokkur Sigurðsson sem byggði hann,“ segir Jón. Gamli bærinn, sem hann talar um, Gamli bærinn á Höfnum sem, var byggður 1868 stendur enn, alla vega að mestu. I baksýn sést íbúðarhúsið sem Jón byggði árið 1954. er nú notaður sem geymsla og er núorðið lítt fyrir augað. Árið 1954 byggði Jón nýtt íbúðar- hús sem hann notar enn. Það er fullbúið hús- gögnum og nauðsynlegum heimilistækjum en laust við allt óhóf og íburð enda Jón þekktur fyrir allt annað en bruðl. Svo aftur sé vikið að búskapnum: Hvenær skyldi Jón halda norður? „Ég fer nú svona fyrir miðjan maí, það er engin viss dagsetning á því. Þá fer maður að undirbúa varpið og byrjunin á því er að fjar- lægja allan mink og annan varg. Á minkinn eru vanalega notaðir hundar til að finna hann og yfirleitt þarf að grafa eftir honum af því að hundarnir komast ekki að honum. Svo er hann oftast skotinn þegar hann skýst út.“ Hundana fær Jón á næstu bæjum og ákveðnir menn sjá um að eyða minknum. „Ágætir rnenn," segir hann, „sem hafa náð góðum árangri í að fækka honurn." Jón leynir því ekki að honum er ekki vel við minkinn og telur hann hið mesta óargadýr enda segir hann að minkurinn dreþi fuglinn og dragi saman í hauga. ALDREI ÆTLAÐ „Á HAUSINN“ Jón undirbýr varpið með því að setja hey í hreiður. „Annars er fuglinn vel fær um að búa sín hreiður sjálfur. Ég hjálpa honum með hey þar sem hann nær ekki í það sjálfur. Sami fugl- inn er ábyggilega í sama hreiðrinu ár eftir ár og svo endurnýjar stofninn sig. Ég held að það sé þannig með flest dýr að þau leita aftur þangað sem þau urðu til. Svo vil ég nú meina að sé með laxinn, að minnsta kosti koma laxarnir í árnar sem þeir klekjast út í.“ Skyldi Jón ekki hafa ætlað sér í laxeldið. „Nei,“ svarar hann staðfastlega, „það eru nógu margir í því. Ég hef aldrei haft það að sérstöku leiðarljósi að fara á hausinn!" segir Jón og kímir enda svarið mjög í anda nýtni hans á alla hluti. Hvaö þarf að gera eftir að búiö er að setja heyið í varpið? „Svo fer nú fuglinn að setjast upp. Þeir koma ekki allir í einu, það er fullorpið á svona hálfum mánuði. Síðan fer fuglinn að sitja á og þá þarf fljótlega að fara að taka dún, tvisvar meðan hann liggur á og síðan fer mað- ur í eftirleit þegar fuglinn er farinn því það er alltaf ein og ein kolla sem verpir seinna en hinar. Fuglinn er þarna allt árið en á vetrum er hann við grynningarnartil að þurfa ekki að kafa djúpt eftir æti. Á vorin fer hann að draga sig að.“ SEGIR ENGUM NEMA HREPPSTJÓRANUM Um fjölda hreiðra í eynni segist Jón ekki vita. „Ég hef aldrei talið þau og maður veit aldrei fyrr en búið er að hreinsa dúninn hvað mikið er af hreinum dún.“ En veistu það ekki svona um það bil, tugir, hundruð eða þúsund? sþyr ég. Jón fer um sþurningar mínar um þetta efni eins og köttur í kringum heitan graut. Að lokum segir hann: „Maður segir það engum nema hreppstjóranum." Þá rennur upp fyrir mér að auðvitað er slíkt leyndarmál og ég hætti að þjarma að æðarbóndanum, vitandi ég yrði engu nær. Þá er eins gott að venda sínu kvæði í kross og tala um selinn. BARDOT OG SELVEIÐIN „Selveiðin byrjar í lok varptimans. Ég veiði sel- inn í net, hef aldrei skotið sel.“ Jón er formaður félags selveiðibænda. „Já, það féll alveg nið- ur verðið á skinnunum út af áróðri bæði frá 24. TBL. 1990 VIKAN 1 1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.