Vikan


Vikan - 29.11.1990, Page 13

Vikan - 29.11.1990, Page 13
fjárfesta í jörðinni. Óhætt er að slá því föstu aö hann sjái aldrei eftir þeirri fjárfestingu sem bar upp á mjög góðan tíma. „Svo veiðir maður nú sjávarbleikju þarna í sjávarlóni sem heitir Rekavatn. Þar er bara malarrif á milli sem lokar stundum fyrir ósinn. Þegar hækkar í vatninu opnast það aftur og þetta gengur svona á víxl að það fer út og inn og þá geta komið bleikjugöngur í vatnið. Svo getur ósinn lokast á eftir þeim og þá verður bleikjan eftir í vatninu.“ Þannig hefur Jón nóg í soðið og miklu meira en það. Hann veiðir bleikjuna í net sem hann geymir á vatnsbakk- anum ásamt langri stöng. Öðrum enda netsins tyllir hann á stöngina og skýtur út á vatnið. Þegar stönginni er kippt snöggt til baka losnar netið af og verður eftir í vatninu en stöngin er dregin aftur upp á bakkann. ENGIR KVENMENN í ÞEIM SKÓLA Á yngri árum var Jón í íþróttaskólanum hjá Sigurði Greipssyni í Haúkadal. Það segir hann hafa verið góðan skóla bæði fyrir sál og líkama og þar hafi ekki dugað að vera með neitt væl. „Menn voru efldir bæði að anda og atgervi." Óhætt er að segja að hann búi að því enn sem hann kynntist hjá Sigurði Greipssyni því aö kominn fast að sjötugu er hann enn kvikur í hreyfingum og hikar ekki við að taka fangið fullt af reka og vippa upp á pallbílinn. Síðan var Jón tvo vetur og eitt sumar í bændaskólanum á Hvanneyri. „Þá voru engir kvenmenn í þeim skóla,“ segir hann og ég minnist á að nú séu þær orðnar fleiri en þeir. „Já, það hefði verið vel þegið þá,“ svarar Jón um hæl. Kominn á skrifstofu sína í dúnhreinsun Sambandsins í Reykjavík þar sem hann starfar 7 mánuði á ári. HROSSIN TYGGJA SÖL OG BRYÐJA ÞÖNGLA „Svo er ég með nokkuð af hestum sem eru í Höfnum allt árið. Bóndinn á næsta bæ hirðir um þá á vetrum en hefur i staðinn afnot af tún- inu og fjárhúsinu. Ég á tvo tamda hesta sem ég nota afar lítið en að sjálfsögðu ríð ég í rétt- irnar. Það er góð ganga fyrir hesta þarna. Þeir nota sér fjörubeit mikið, tyggja söl og bryðja þöngla. Hrossin ganga aðallega við sjóinn á veturna en svo setur maður þau í heiðina á vorin. Þarna er allt ógirt og hross og fé fara þarna frjáls um Skagaheiðina á sumrin. Það var töluvert af hrossum á Aðalbóli, þar sem ég ólst upp, og ég á af þeim stofni enn. Ég á minn stóðhest." Jón er tvöfaldur ekkjumaöur, missti fyrri konu sína, Elínborgu Björnsdóttur, árið 1971. Hún hafði komið til hans sem ráðskona en þau giftust 1946 og eignuðust tvö börn, Birnu og Benedikt. Benedikt tók við búi af föður sínum 1969 en þaö stóð stutt þar sem hann kunni betur við sig á sjónum. Því fór það svo að Jón gerðist bóndi á ný en aðeins á sumrin. Seinni konu sína, Kömmu Thordarson, missti hann 1986 og nú fer farfuglinn einsamall norður á bóginn og virðist taka því hlutskipti vel. ÖFUNDAR ENGAN - HEFUR ALDREI ÞURFT ÞESS Jón vinnur fimm daga vikunnar á Kirkjusandi og hefur umsjón með dúnhreinsuninni. Húsa- kynnin þar eru allhrörleg og ég spyr hvort hann líti ekki öfundaraugum yfir á hina nýju höll. „Nei, ég öfunda engan af neinu og hef aldrei þurft þess. Mér hefur alltaf þótt það fremur betra en verra ef mönnum gengur vel. Það hef- ur enga þýðingu að vera ósáttur við neitt því það eru til hlutir sem maður hefur ekki ráð á að breyta og þá er ekki annað en að taka því.“ Eflaust er þetta lífsspeki Jóns í hnotskurn og hann segir mér í framhaldi af þessu sögu af basli sínu við rafveiturnar. Það endaði með því að hann sætti sig bara við dísilvélina í kjallar- anum, eflaust vegna þess að við hana þarf ekki að deila um sjálfsagða hluti. ‘MINNSTA PÖNTUN 10 STK. JOLAKORT EFTIR ÞINUM EIGIN MYNDUM Sendu vinum og vandamönnum skemmtilega og persónulega jólakveðju með jólakorti, eftir þínum eigin myndum. Skipholti 31, sími 680450 !3ji| KR. 60 PR. STK.* 10 KR. AF HVERRI SELDRI FUJI FILMU RENNUR TIL LANDGRÆÐSLUSKÓGA ÁTAK 1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.