Vikan


Vikan - 29.11.1990, Page 14

Vikan - 29.11.1990, Page 14
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON Fyrir nokkrum árum slógu nokkrir breskir krakkar, sem kölluöust Mini- Pops, rækilega í gegn. Vel- gengni fyrstu plötunnar var fylgt eftir meö annarri sem seldist jafnvel ennþá betur en sú fyrsta - en síðan ekki sög- una meir. Bresku börnin uxu úr grasi án þess að hafa skilið eftir sig afgerandi spor í rokk- sögunni. FIMM HLJÓMPLÖTUR Á ÞREM ÁRUM Þótt Mini-Pops hafi gleymst sá Birgir Gunnlaugsson hljóm- sveitarstjóri að hugmyndin var sniðug og fékk vel valinn hóp barna, flest úr Seljaskóla, til að syngja nokkur valin lög inn á plötu árið 1987. Börnin stóðu sig vel og nú hafa þau nýlega lokið við að syngja inn á fimmtu plötuna sína. Fyrsta platan var Jólaballið, þá komu Barnaleikir I út sumarið 1989, Rokklingarnir fyrir siðustu jól og Barnaleikir II í sumar. Síö- asta jólaplata þeirra seldist f ellefu þúsund eintökum sem jafngildir ellefu milljónum f Bandaríkjunum ef höfðatalan er notuð. Á nýju plötunni, sem heitir Rokklingarnir „Af lífi og sál“ eru sjö syrpur vel þekktra laga auk tveggja nýrra og þar að auki kemur hljómsveitin Josephine Baker, skipuð fjór- um þrettán ára unglingum, við sögu. Um sex hundruð tfmarfóru í upptökur, þar af hundrað og tuttugu í söng. Blaðamaöur Vikunnar hitti nokkra krakka úr hóþnum - þegar Dóra Einars- dóttir hafði til föt á þá og verið var að farða þá fyrir mynd- bandsupptöku um daginn - og lagði fyrir þá örfáar sþurning- ar. Fyrst vildi hann fá að vita hvernig þeim fyndist að vera orðin svona fræg. Sigurborg Anna Hjálmars- dóttir: Mér brá svolítið fyrst. Þetta var svolítið skrýtið. AÐDÁENDAKLÚBBUR AF EINSKÆRRI NAUÐSYN „Svolítið skrýtið" er kannski vægt til orða tekið. [ fyrra voru Rokklingarnir svo vinsælir meðal krakka á aldrinum fimm til tíu ára að engu var líkara en nýtt Bítlaæði væri komið af stað. Stelþur um allt land vildu syngja eins og Ástrós og hvaðeina. Þau kynntu og árit- uðu plötu sína á Akureyri, í Garðabæ og víða í stór- mörkuðum. Afleiðingarnar voru ótrúlegar. Það þurfti að taka símann úr sambandi hjá foreldrum að minnsta kosti tveggja barnanna. Söngvar- arnir Þorsteinn og Júlíus urðu aðallega fyrir barðinu á þess- ari aðdáun og kvað svo rammt að þessu, þegar Þorsteinn var farinn að fá tíu til fimmtán hring- ingar á dag frá ókunnugum krökkum, að hann hætti hrein- lega að svara í símann. En nú hefur verið ráðin bót á þessu. Sérstakur aðdáendaklúþbur hefur verið stofnaður til að fyrirbyggja mikið álag á heimili ungu stjarnanna. Utanáskrift hans er: Rokklingarnir, Skeifunni 19, 108 Reykjavík. Krakkar geta skrifað þangað hvaða meðlim Rokklinganna sem þeir vilja og fengið í stað- inn bréf og áritaða Ijósmynd. Næst lá beint við að spyrja hvað hefði komið þeim mest á óvart. Sólveig Guðmundsdóttir: Bara - að hafa komist í þetta. FÁIR ÚTVALDIR Það eru sannarlega orð í tlma töluð. Áður en Rokkling- arnir voru stofnaðir í fyrra aug- lýsti Birgir eftir krökkum til prufu. Milli hundrað og þrjátíu og hundrað og fjörutíu komu til leiks og af þeim voru sex valin. í ár heltust átta úr lestinni og aftur var auglýst. I þetta sinn komu hundrað og áttatíu börn til prufu en aðeins fimm voru tekin inn. Af upprunanlega kjarnanum, sem söng inn á \ 14 VIKAN 24.TBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.