Vikan - 29.11.1990, Qupperneq 15
plötuna Jólaballið, eru því að-
eins sjö eftir. í fyrra fékk hver
einasti meðlimur hópsins plat-
ínuplötu en það eru sérstök
verðlaun sem eru veitt fyrir
7500 eða fleiri eintök seld af
sömu hljómplötunni. Ég spurði
eina af aðalsöngkonunum úr
hópnum hvernig henni hefði
orðið við þegar hún sá sjálfa
sig fyrst í sjónvarpi.
Ástrós Elísdóttir: Það var
bara skemmtilegt þvf að ég
fékk köku.
Sama hæverskan aftur og
þegar ég spurði annan af aðal-
söngvurunum, Torberg,
hvernig krakkarnir í skólanum
hans í Grindavík hefðu tekið
þessu svaraði hann af sama
æðruleysinu.
Torberg Einarsson: Ég veit
það nú ekki. Það voru allir að
spyrja mig út í þetta.
Næst vildi ég fá að vita af
munni einhvers Rokklinganna
hvernig þau hefðu verið valin í
hóþinn.
Diljá Ámundadóttir: Þetta
byrjaði á því að nokkrir krakk-
ar voru valdir til að syngja inn
á Barnaleiki, síðan var valinn
minni hópur úr þeim og svo
valdi hann (Birgir) einhverja
einsöngvara sem komu í
prufu. Ef hann velur í rokklag
þá velur hann einhvern sem
syngur rokk vel og einhvern
annan í róleg lög og svoleiðis.
Flest laganna á síðustu
plötunni voru þekkt fyrir eða
að minnsta kosti kunnugleg
svo að næst vildi ég fá að vita
ÚR ÝMSUM ÁTTUM
Þau eru ekkert taugaóstyrk
og vita ekki almennilega um
hvað myndbandið snýst þótt
þau hafi óljósa hugmynd um
það. Þau segjast eiga að leika
fullorðið fólk en Birgir hefur
gefið þeim frjálsar hendur með
hvernig þau sungu inn á plöt-
g una. Hann stjórnar hópnum og
* hefur gefið út allar plöturnar
§ með honum. Reyndar hefur
3 hann valið söngfólkið svolftið
g-eftir lögunum, en krakkarnir
| eru vel heima í því sem þau
| eru að gera og syngja þetta af
~ innlifun. Þau hafa valið sum
laganna sjálf enda hefur það
áður gefið góða raun. Þau
hafa víða komið fram, svo
sem á ÍSf-hátíðinni í sumar,
Pepsi-Cola mótinu í fyrra og
víðar þar sem börn eru
samankomin.
Aðalsöngvarar hópsins eru
Ástrós Elísdóttir, 8 ára, Sigur-
borg Anna Hjálmarsdóttir, 12
ára, og Arna Björg Jónsdóttir,
6 ára. Hún er yngst í hópnum
og kemur frá Keflavík eins og
reyndar svo margir dægur-
lagasöngvarar. Af strákunum
eru það Þorsteinn Mar Gunn-
laugsson, 12 ára, og Grindvík-
ingarnir Júlíus Daníelsson, 13
ára, og Torberg Einarsson, 9
ára. Flestir eru söngvararnir úr
Reykjavík, Kópavogi og Garða-
bæ en næsta ár er meiningin
að leita norður í land til að fá
nokkra nýja söngvara í
hópinn, til dæmis frá Akureyri.
Auk söngsins hafa þau æft
dans af kappi undir stjórn Báru
Magnúsdóttur því að þau
þurfa víða að koma fram og
sýna sig.
Svo er bara að sjá hvort
þessi nýja plata Rokklinganna
gefur hinum fjórum nokkuð
eftir. Hvernig sem allt fer hafa
krakkarnir nóg að gera við að
koma fram hingað og þangað,
auk þess sem þau eiga hvert
sitt áhugamál og þurfa svo að
sinna náminu líka.
hvaða lög eru á nýju plötunni.
Sigurborg Anna: Þau eru svo
mörg; Eitt lag enn, Ofboðslega
frægur, Leyndarmál, Bláu
augun þín, Álfheiður Björk,
Sumarið er komið, Hann var
að vestan, Riddari götunnar,
Hljómsveitin hans Júlla og alls
konar lög.
Og hvernig skyldi þeim svo
vera innanbrjósts þegar þau
eru aftur farin að gera mynd-
bönd og ný plata er á leiðinni á
markaðinn.
Ástrós: Bara vel.
24. TBL 1990 VIKAN 15