Vikan


Vikan - 29.11.1990, Side 16

Vikan - 29.11.1990, Side 16
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON ER TILGANGUR? TVEGGJA TÍMA SÖNGLEIKUR 18 ÁRA STRÁKS FRUMSÝNDUR HJÁ LEIKFÉLAGI KEFLAVÍKUR Hópurinn sem að sýningunni stendur. Skúli er eina aðalhlutverkið og lendir sögupersónan í ýmsum ver- öldum: eins og t.d. hippakommúnu, pönkhljómsveit svo eitthvað sé nefnt. Einn af meölimum hljóm- sveitarinnar Pandóru frá Keflavík hefur heldur betur haft mikið fyrir stafni undanfarið. Þetta er trommu- leikari hljómsveitarinnar, Júl- íus Freyr Guðmundsson. Hann stundar nám í píanóleik, þverflautuleik, sellóleik og slagverksleik við Tónlistaskóla Keflavíkur, leikur með Rokk- sveit Rúnars Júlíussonar um helgar, hefur gefið út þrjár plötur með Pandóru á einu ári, 16 VIKAN vinnur við húsamálun og æfir söngleik með Leikfélagi Kefla- víkur. Þennan söngleik, sem heitir ER TILGANGUR?, skrifaði hann reyndar sjálfur síðastlið- inn vetur og vor þegar hann var aðeins átján ára en auk þess að spila undir í lögunum æfir hann söngvarana sem koma fram í verkinu. Það er að vísu ekki meiningin að vera með neina ættfræði í þessari grein en á sínum tíma var sagt um föður Júlíusar að hann hefði verið svo önnum kafinn á _ sjöunda áratugnum að hann 1 hefði eiginlega ekkert sofið í s heilt ár. o JúlíusFreyrernýorðinnnítj- ' án ára. ( bernsku fór fátt fram hjá athugulum augum hans og þessi athyglisgáfa virðist hafa verið honum drjúgt veganesti hingað til. Hann er maður hóg- vær og eyðir ekki stuttu blaða- Höfundurinn, Freyr Júlíus Guðmunds- son. viðtali í mikið mas. Ég spurði hann um kveikjuna að verkinu. „Það var engin kveikja. Það kom bara eitthvað svona allt ( einu.“ - Varstu búinn að undirbúa þetta lengi? „Nei. í rauninni byrjaði ég bara að skrifa eitthvað. Svo fór ég í að lappa upp á það. Þetta fjallar um strák. Skúli heitir hann og er eina stóra hlutverk- ið í verkinu. Hann tekur þá ákvörðun að hætta í skóla til að athuga hvað lífið hefur upp á að bjóða. Síðan byggist þetta á því sem maður gæti ímyndað sér að gæti gerst ef maður hættir í skóla. Hann lendir [ alls konar veröldum; hippakommúnu, pönkhljóm- sveit og ýmsu.“ ( verkinu eru þrettán lög, tuttugu leikarar koma fram í því og um það bil tíu til viðbót- ar á bak við tjöldin. Það tekur um tvær stundir f sýningu og Halldór Björnsson er leikstjóri. Það tók Júlíus um það bil hálft ár að semja verkið nema hvað lögin voru samin á einni viku eða svo en hann fékk aðstoð tveggja félaga sinna við samn- ingu laganna. Ég spurði hvernig hann færi að því að semja svona verk. „Á Silver Reed ritvél," segir hann og brosir kumpánlega. „Ja, í rauninni var ég ekki bú- inn að skapa mér neina heild- armynd. Ég byrjaði bara að skrifa eitt atriði einhvers staðar inni í miðju leikritinu. Svo þró- aöist þetta svona fram og aftur." Sjálfur leikur hann með hljómsveit sinni, Pandóru, í söngleiknum en rétt fyrir frum- sýninguna kemur út plata með öllum lögunum. Henni fylgir textablað og það er meiningin að selja hana líka í leikhúsinu. En hvernig leggst frumsýning- in f hann? Hann hlær við en segir að þetta leggist ágæt- lega í sig. Samstarfið við leik- stjórann hefur gengið - svona og svona - en meðan á æfing- um stóð hafa orðið lítils háttar breytingar á verkinu. Nú er það hins vegar fullmótað og þá er bara að sjá hvernig til tekst.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.